Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Blaðsíða 25
fólk - viðtal 25Helgarblað 3. nóvember 2017 og foreldrar töluðu um þær sín á milli. Það gaf mér byr í seglin,“ segir Birgitta. Er einhvers konar boðskap að finna í Lárubókunum? „Mér finnst skipta máli að persónurnar í bókunum séu góð- ar fyrirmyndir. Krakkar eiga að geta samsamað sig við Láru, vini henn- ar og fjölskyldu. Lára á að vera þeim góð fyrirmynd en enginn er fullkominn og hún getur verið óþekk og gerir mistök. Bækurnar lýsa venjulegu lífi, þetta eru sög- ur úr raunveruleikanum, eitthvað sem þeim fullorðnu finnst hvers- dagslegt en börnum finnst vera stórkostlegt ævintýri.“ Glímdi við mikla sorg Víkjum að sjálfri þér. Hvernig barn varst þú? „Mamma segir að ég hafi verið mjög fjörugt barn með gott skap, viljasterk og fyrirferðarmikil. Þegar ég varð níu ára róaðist ég og varð feimnari.“ Unglingsárin reynast mörgum erfið. Hvernig voru þau ár í þínu lífi? „Ég var mjög stilltur unglingur, ég drakk lítið sem ekkert og var ekki í rugli. Unglingsárin voru mér þó erfið á annan hátt vegna þess að fjórtán ára missti ég bróð- ur minn. Hann var átján ára þegar hann fyrirfór sér. Honum gekk vel í skóla, glímdi ekki við andleg veikindi en var á viðkvæm- um aldri. Þegar maður er unglingur veit maður ekki alveg hver maður er og hvernig mað- ur á að vera. Það var óskaplega erfitt fyrir mig að upplifa þetta áfall og þurfa að glíma við svo mikla sorg. Árin eftir dauða bróður míns reyndust mér erfið. Ég reyndi að vera sterk fyrir fjölskyldu mína og tók sorgina ekki út strax. Sorgin braust út í líkam legum veikind- um. Ég var ekki þunglynd en lík- aminn var við það að gefa sig. Ég lenti í miklum meltingar- og ristilvandamálum, fékk svakalega krampa sem urðu til þess að lík- aminn slökkti á sér og þá leið yfir mig. Það tók tíma að finna út hvað var í gangi en eftir að hafa fengið rétt lyf jafnaði ég mig sem betur fer. Í dag sé ég alltaf ennþá betur að þessi veikindi mín stöfuðu af áfallinu.“ Þú ólst upp á Húsavík, hvernig var lífið þar? „Mér finnst ég ótrúlega heppin að hafa alist upp í litlu samfélagi úti á landi þar sem ríkir mikið frelsi, maður er í nálægð við nátt- úruna og traust og vinátta ríkir milli allra í bæjarfélaginu. Mað- ur veit að sama hvað gerist þá er samfélagið eins og ein stór fjöl- skylda. Það er samt þannig að þegar eitthvað bjátar á og mað- ur tekst á við áföll þá getur ver- ið erfitt að búa í litlu bæjarfélagi. Það getur reynt á að allir viti af lífi þínu og sorg þinni. Ég á afskaplega góðar minn- ingar frá Húsavík og fer þangað allavega tvisvar á ári. Húsavík er alltaf bærinn minn.“ Eins og rússíbanareið Birgitta var ung að árum þegar söngferill hennar hófst. Hún var sextán ára þegar hún söng í Abba- sýningu á Broadway við miklar vinsældir. „Þetta var óskaplega skemmtileg vinna og ég fann ekki fyrir álagi. Það voru forréttindi að flytja til Reykjavíkur og syngja skemmtileg lög fjórum sinnum á viku á flottu sviði,“ segir hún. Um tvítugt varð hún síðan hluti af hinni vinsælu hljómsveit Íra- fár. „Strákana vantaði söngkonu í hljómsveit og ég sló til. Við vorum með góðan lagahöfund og um leið og við byrjuðum að gefa út efni fór allt af stað. Fólk spyr af hverju Íra- fár varð svo vinsæl hljómsveit. Ég held að það hafi verið vegna þess að við vorum að einbeita okkur að því að gera góða tónlist. Við vor- um ekki að keppast við að verða fræg eða djamma.“ Varst þú mikið vör við djammið? „Þótt við værum að spila á böll- um þar sem stundum var sukk og svínarí þá leyfði ég mér aldrei að fara þangað vegna þess að ég þurfti að syngja kvöldið eftir. Ég söng og fór svo yfirleitt beint heim að sofa. Vín eða vímuefni voru lítið í kringum mig og vini mína, ég er ekki karakter sem líður vel að missa stjórnina. Mér finnst best að vinna samkvæmt góðu plani og hef alltaf gætt þess að gera hlutina vel.“ Hvernig er þessi tími í minningunni? „Það er súrrealískt að horfa til baka, þetta var svo ótrúlega skrýtið. Þessi tími var rússíbanareið, það var svo brjálæðis- lega mikið að gera. Við gáfum út þrjár met- söluplötur og ákváð- um svo að taka okkur hlé. Írafár var komin á toppinn og við þurftum að taka ákvörðun um hvort við vildum halda áfram eða hvort við vildum passa upp á tón- listina okkar og hljómsveitina. Við ákváðum að hætta á toppnum. „Þegar maður veit hver maður er og hvernig fólkið manns er þá getur maður ekki verið að velta sér upp úr því þótt aðrir reyni að pota í mann með ljótum skrifum. „Þegar við í Írafári vorum að byrja að koma fram mætti ég með smá brynju, en ég var aldrei sátt við það. Birgitta Haukdal „Mér finnst best að vinna sam- kvæmt góðu plani og hef alltaf gætt þess að gera hlutina vel.“ Mynd Brynja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.