Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Side 22
22 umræða
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 3. nóvember 2017
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl
Garðarsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson Ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur
Guðjónsson Aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Sporin eiga að hræða
Ö
rstutt er síðan Björt framtíð
sleit ríkisstjórnarsamstarfi
í skjóli nætur án þess að
ræða við samstarfsflokka
sína, Sjálfstæðisflokk og Viðreisn.
Þar voru samræðustjórnmál
ekki í heiðri höfð. Afleiðingar
þessa ábyrgðarleysis urðu vitan
lega þær að þjóðin gerði sér fulla
grein fyrir að flokki sem stundar
vinnubrögð af þessu tagi er ekki
treystandi. Björt framtíð þurrkað
ist út af þingi. Þingmenn flokksins
hafa því miður ekki horfst í augu
við það hversu ámælisverð vinnu
brögð þeirra voru við stjórnar
slitin heldur endurtaka í sífellu
að þeir hafi staðið með sannfær
ingu sinni. Þeir láta eins og þeir
hafi fallið með reisn þegar stað
reyndin er sú að þeir gerðu sig að
ómerkingum.
Sporin ættu að hræða, en samt
ætla formenn Vinstri grænna,
Framsóknarflokks og Samfylk
ingar að láta á það reyna að
sameinast í ríkisstjórnarsam
starfi með Pírötum. Þar yrði á
ferð stjórn með minnsta mögu
lega meirihluta, líkt og sú síðasta.
Ekki væri það gott en enn verra
er að varasamt er að treysta á út
hald Pírata í stjórnarsamstarfi. Í
þeim flokki er ekki strangur innri
strúktúr, enginn áhugi er á að
halda í hefðir heldur er stöðugt
verið að reyna að finna upp hjól
ið og auk þess þykja tilfinninga
upphlaup af minnsta tilefni nán
ast sjálfsögð. Slíkur flokkur er
ekki sérlega líklegur til að sýna
ábyrgð í ríkisstjórnarsamstarfi.
Samstarf við Pírata yrði afar erfitt
og ekki hægt að treysta því að þar
myndi grasrótin vera til friðs. Líkt
og grasrót Bjartrar framtíðar gæti
grasrót Pírata allt eins tekið upp á
því að efna til netkosninga og slíta
stjórnarsamstarfi hið snarasta
kæmi upp ágreiningur innan
stjórnarinnar.
Sigurður Ingi Jóhannsson, for
maður Framsóknarflokksins, á að
vita að ekki er óhætt að treysta á
Pírata. Þetta ætti Katrín Jakobs
dóttir, formaður Vinstri grænna,
sömuleiðis að vita. Logi Einars
son, formaður Samfylkingarinnar,
getur látið eins og hann trúi öðru,
enda þráir Samfylkingin að öðl
ast völd og komast aftur til vegs
og virðingar, en innst inni hlýt
ur einnig hann að vita þetta. Við
ræður stjórnarandstöðuflokkanna
geta ekki verið annað en sýndar
mennska fólks sem veit betur.
Vonlítið er að þessi fjögurra
flokka stjórn verði að veruleika en
jafnvel þótt svo verði eru sáralitlar
líkur á því að hún yrði langlíf. Hug
myndir hafa skotið upp kollinum
um fimm eða sex flokka stjórn
og satt best að segja hljóma þær
eins og óðs manns æði. Þar yrði
fljótlega hver höndin uppi á móti
annarri. Píratar myndu ólmast
og Flokkur fólksins myndi aldrei
fá brýnustu stefnumál sín í gegn,
svo kostnaðarsöm eru þau. Það
er einungis tímaspursmál hvenær
ríkisstjórn sem samsett væri af
svo mörgum og ólíkum flokkum
myndi deyja drottni sínum. Hún
myndi ekki kveðja hægt og hljótt
heldur springa með miklum lát
um.
Stjórnmálaflokkarnir verða að
vanda sig við stjórnarmyndun og
útkoman verður að vera trúverð
ug. Þjóðin er orðin leið á sífelldu
upphlaupi stjórnmálamanna og
stjórnarslitum af litlu tilefni. n
Val Framsóknar
Mikla athygli vakti sú frétt að
Sigurður Ingi Jóhannesson hefði
hringt í Sigmund Davíð Gunnlaugs-
son en talið er að samtalið hafi að
hluta snúist um þann valkost að
Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar
flokkur og Miðflokkur verði í
næstu ríkisstjórn. Sú ríkisstjórn
yrði afar umdeild og pólitískir
andstæðingar myndu ham
ast á því að þar væru Panama
prinsarnir, Bjarni Benediktsson
og Sigmundur Davíð, enn á ný
komnir í pólitískar valdastöður í
íslensku samfélagi. Innan Fram
sóknarflokksins hljóta menn að
íhuga hvort ráðlegt sé að koma
sér í aðstæður þar sem formenn
tveggja samstarfsflokka liggi und
ir stöðugu ámæli um spillingu.
Það gæti verið mun heppilegra
fyrir Framsókn að
sleppa því að
vera meðvirk
í slíku ríkis
stjórnarsam
starfi og
leita á önn
ur mið.
Þagað þunnu hljóði
Hugmyndir um sérstakt kvenna
framboð hafa skotið upp koll
inum og mælast misvel fyrir, en
einhverjir telja slíkt tímaskekkju.
Vissulega veitir ekki af að auka
hlut kvenna í stjórnmálum, en
líka má velta fyrir sér hvort ekki
sé beinlínis þörf á meiri kvenna
samstöðu. Þær konur sem eru í
áberandi áhrifastörfum í samfé
laginu eru stundum eins og einar
og stuðningslausar úti á berangri.
Það á til dæmis við um biskup Ís
lands, Agnesi M. Sigurðardóttur,
sem sætir ámæli í nær hvert sinn
sem hún stígur fram og segir
skoðun sína. Það er líkt og opið
skotleyfi sé gefið þegar Agnes
á í hlut. Ekki verður vart við að
kvennahreyfingar styðji þessa
kynsystur sína rösklega líkt og
vert væri, heldur er þagað þunnu
hljóði.
Það er ein fald lega óþarfi
að flækja lífið að óþörfu
Maðurinn var elskulegur og bauð mér bílstjórann
sinn því hann veit að ég er ekki með bílpróf
Inga Sæland um Sigmund Davíð Gunnlaugsson – mbl.isLilja Alfreðsdóttir – Rás 2
Myndin Sólsetur við Gróttu Það var fallegt um að litast við Gróttu þegar ljósmyndari DV var þar á ferðinni í vikunni. MynD BrynJA
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Viðræður stjórnar-
andstöðuflokkanna
geta ekki verið annað en
sýndarmennska fólks sem
veit betur.