Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 34
34 menning Helgarblað 3. nóvember 2017
L
eikhópurinn Aldrei
óstelandi, gerir í þessari
stuttu sýningu tilraun til þess
að sýna nokkrar mögulegar
ástæður fyrir morðinu á Natani
Ketilssyni á Illugastöðum árið
1828. Þau Friðrik, Agnes og hin 16
ára gamla Sigríður voru sek fund
in um morðið og bæði Agnes og
Friðrik hálshöggvin tveimur árum
síðar. Sigríður var hins vegar send
utan til ævilangrar fangelsisvistar.
Hvað var það sem fékk þau til
þessa voðaverks? Var það ágirnd,
öfund, ofbeldi, ástríða, misnotk
un eða blanda af öllu þessu ásamt
ömurlegum aðbúnaði og kol
svartri framtíð? Ólíkar sviðsmynd
ir eru mátaðar og áhorfendum
eftir látið að finna sitt eigið svar.
Óspennandi illmenni
Grunnhugmyndin er mjög
spennandi en sýningin nær þó ekki
því flugi sem maður hefði óskað sér.
Það kemur fátt á óvart og ekki tekst
að skapa þá dýpt í persónurnar að
maður finni til samkenndar með
þeim. Stefán Hallur leikur Natan og
fer létt með að sýna fjölmargar illar
og andstyggilegar hliðar húsbónd
ans á Illugastöðum. Einsleit túlkun
in verður þó rislítil og enginn sam
úð er með grimmilegum örlögum
hans. Natan þótti mikill kvenna
maður og kunni ýmislegt fyrir sér
svo einhver möguleiki hlýtur að
hafa verið á meiri sjarma og dýpt í
bland við illmennskuna.
Edda Björg Eyjólfsdóttir leikur
Agnesi. Framsögn hennar var á
köflum full dramatísk og dró sá stíll
frekar úr harmi frásagnarinnar en
styrkti. Samleikur þeirra Stefáns
Halls var þaulæfður en hvorki
nógu hættulegur til þess að draga
áhorfendur fram á sætisbrúnina
né heitur til þess mynda þær
ástríður sem að var látið liggja.
Einfaldir morðingjar
Kjartan Darri Kristjánsson fer með
hlutverk Friðriks Sigurðssonar,
morðingja Natans. Hann er ekki
atkvæðamikill í hlutverkinu, ráð
villtur en viljugur til óhæfuverka.
Það var erfitt að láta endurtekið
hangs hans í kringum konurnar á
Illugastöðum ganga upp og ólík
legt að Natan hefði þolað hans
löngu og tíðu heimsóknir. Það
hefði mátt skerpa betur á eðli Frið
riks, finna á honum fleiri fleti en
einfeldnina og heimskuna og gera
hlutverkið meira spennandi.
Birna Rún Eiríksdóttir fer með
hlutverk hinnar 16 ára bústýru.
Birna Rún er nýútskrifuð leik
kona með mikla reynslu af kvik
myndaleik og býr yfir firna sterku
og þroskuðu raddsviði. Hún gæt
ir þó styrks síns í þessu hlutverki
og túlkar hina umkomulausu og
barnslegu Sigríði af alúð og næmni.
Litlausir búningar á vel
hönnuðu sviði
Mikið er lagt upp úr flóknum
sviðshreyfingum og dansi. Þetta
kemur oft skemmtilega út þrátt
fyrir að nokkur atriði hafi verið of
löng. Búningarnir voru litlausir og
flatir, saumaðir á röngunni. Þessi
útfærsla virkaði full einföld og að
greindi persónurnar ekkert. Sviðs
myndin var hins vegar hugvit
samlega unnin og skapaði sterka
tilfinningu fyrir bæði þrengslum
og vanlíðan íbúanna á Illuga
stöðum. Þá var upptökutækni
einnig beitt með skemmtilegum
hætti.
Sem áður sagði, þá er grunn
hugmynd verksins spennandi en
niðurstaðan er hálfklárað verk þar
sem umgjörðin er að skríða saman
þótt kjarninn sé enn ófundinn. n
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Natan
Höfundur: Salka Guðmundsdóttir og
leikhópurinn Aldrei óstelandi.
Leikstjórn: Marta Nordal
Leikarar: Stefán Hallur Stefánsson, Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Birna Rún Eiríksdóttir,
Kjartan Darri Kristjánsson
Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson
Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
Tónlist og hljóðmynd: Guðmundur Vignir
Karlsson
Lýsing: Jón Þorgeir Kristjánsson
Aðstoð við hreyfingar: Valgerður Rúnars-
dóttir
Sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins
„ Grunnhugmynd
verksins er
spennandi en niðurstaðan
er hálfklárað verk þar sem
umgjörðin er að skríða
saman þótt kjarninn sé
enn ófundinn.
Efniviður í morð
Framkvæma eigin rannsókn
Í rannsókn sinni á morðinu á Natani
Ketilssyni árið 1828 leitar leik-
hópurinn Aldrei óstelandi meðal
annars fanga í dómskjölum og
þeim fjölmörgu fræðigreinum, bók-
um, kvikmyndum og sjónvarpsefni
sem gert hefur verið um morðið.
Það besta í íslenskri hönnun
Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands kynntar
T
ilkynnt hefur verið um
forval dómnefndar á
fimm tilnefningum til
Hönnunarverðlauna Ís
lands árið 2017. Þetta er í fjórða
skipti sem verðlaunin eru veitt,
en þau hlýtur hönnuður, arkitekt,
hönnunarteymi eða stofa fyrir
framúrskarandi nýtt verk; einstak
an hlut, verkefni eða safn verka.
Sigurvegarinn verður tilkynntur
9. nóvember næstkomandi.
Marshall-húsið
Listamiðstöðin Marshall-húsið var
opnuð í sumar í gamalli síldarbræðslu við
Reykajvíkurhöfn, en það voru arkitektarn-
ir Steinþór Kári Kárason og Ásmundur
Hrafn Sturluson sem leiddu verkefnið í
samstarfi við ASK Arkitekta. Dómnefndin
segir verkið „kristalla velheppnaða
breytingu eldra iðnaðarhúsnæðis fyrir
nýtt hlutverk í samtímanum.“
Reitir Workshop
+ Tools for Collaboration
Reitir er alþjóðlegt samstarfsverkefni Ara
Marteinssonar hönnuðar og Arnars Ómars-
sonar myndlistarmanns, og undir því nafni
stóðu þeir fyrir þverfaglegum vinnusmiðjum
í Alþýðuhúsinu Siglufirði frá 2012 til 2016.
Í ár gáfu þeir svo út leiðarvísinn, Tools for
Collaboration, en það var Sophie Haack sem
hannaði og ritstýrði.
Einkenni
listahátíðarinnar Cycle
Döðlur hönnuðu merki og heildarásýnd listahátíðarinn-
ar Cycle sem er ætlað að skapa samtal milli tilrauna-
kenndrar samtímatónlistar og myndlistar. Dómnefndin
segir hönnunina „endurspegla áherslur hátíðarinnar á
einfaldan en tilraunakenndan hátt.“
Orlofshús BHM
í Brekkuskógi
Tvö orlofshús Bandalags háskólamanna
í Bláskógabyggð voru byggð eftir hönnun
PKDM árið 2015. Þau eru sögð einkennast af
ríkri efniskennd með umlykjandi lands-
lagsmótun, hlöðnum veggjum, kolaðri
timburklæðningu og grasi grónu þaki.
Saxhóll
Landslag hannaði varanlegan stíg sem
á að takmarka umgang ferðamanna við
ákveðið svæði við gíginn Saxhól í þjóð-
garði Snæfellsjökuls. Dómnefnd segir
að stígurinn sé „gott dæmi um hvernig
hlúa má á faglegan og fagurfræðilegan
hátt að vinsælum ferðamannastöðum.“