Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Page 56
Vikublað 3. nóvember 2017 8 Egill hefur á liðnum árum skapað sér sess sem einn dáðasti myndlistarmaður þjóðarinnar. Hann var nokkuð áberandi í fjölmiðlum fyrr á þessu ári enda fulltrúi íslendinga á Fen­ eyjatvíæringnum en svo kallast ein stærsta, elsta og virtasta myndlist­ arhátíð heims. Þangað hélt hann með tröllin sín tvö, þau þau Ūgh og Bõögâr, ímynduðu vinina sem hann lætur framkalla listgjörninga víða um heim. Nú hafa þau til að mynda opnað skartgripaverslun í Gallerí i8 og Egill hefur dvalist á landinu undanfarnar vikur til að styðja við bakið á þeim. Listamaðurinn tekur höfðing­ lega á móti blaðamanni þegar hún hringir bjöllunni, síðdegis á mildum mánudegi í lok október. Hann býður til sætis í eldhúsinu, sker niður súrdeigsbrauð og hrærir í nýgerðu túnfisksalati. Á borðinu standa bollar og diskar, bleikja, smjör og ostur. Stemningin minnir svolítið á síðustu öld. Ekkert undir sautján sortum. Íbúðin er framandi blanda af vinnustofu, geymslurými og gam­ aldags íslensku heimili. Myndar­ legur stofuskápur, sem eitt sinn prýddi heimili ömmu hans, Hlífar Magnúsdóttur í Flatey á Breiðafirði, skipar veigamikinn sess í stofunni en á sparilegu parketinu eru steypuklessur og ryk eftir leirgerð. Í flestum herbergjum standa svo leirmunir sem ýmist eru tilbúnir eða að þorna. Af þessum ástæðum er líka frekar heitt í kotinu. „Íbúðin dugar mér alveg sem vinnustofa. Að minnsta kosti eins og er,“ útskýrir Egill sem eftir um tuttugu ára dvöl í Berlín segist nú geta hugsað sér að flytja aftur heim enda mikið vatn sem rennur til sjávar á tuttugu árum. Ísland og allt hefur breyst „Þegar ég flutti til Þýskalands árið 1998 var ég kominn með mikla innilokunarkennd á Íslandi. Ég hafði þá búið í París í eitt ár og komið heim til að klára skólann. Mér fannst þetta svo lítið samfélag hérna. Lokað og stíft. Ég var líka óhamingjusamur og hafði verið lengi. Mig langaði til að komast í burtu og sjá hvort ég gæti ekki rétt úr mér sem persónuleiki,“ segir Eg­ ill sem þá var tuttugu og fimm ára en hann er fæddur í júní árið 1973. „Ég er alinn upp á áttunda og níunda áratugnum og flyt svo af landi brott á þeim tíunda. Síðan hefur auðvitað allt breyst. Ekki bara ég sjálfur heldur Ísland líka og það á mjög skömmum tíma. Flugsam­ göngur urðu til dæmis greiðari og ódýrari fljótlega eftir að ég flutti, internetið auðveldaði manni samskipti og þetta varð allt opnara en ég hafði áður vanist. Nú eru til dæmis nokkur bein flug til Berlínar á dag en hér áður fyrr þurfti ég að taka lest og rútu frá Kaupmanna­ höfn til að koma mér yfir,“ segir hann og hristir höfuðið. Íslendingar fá áfallastreitu í arf frá forfeðrunum Egill segir heimþrána hafa byrjað að toga í sig fyrir um sjö árum. Hann lét undan þránni, kom til Íslands og dvaldi hér samfellt í hálft ár árið 2012. Á þessum mánuð­ um segist hann hafa upplifað eins konar endurfæðingu, hann sleit langtímasambandi við brasilíska unnustu og hellti sér í uppgjör við sjálfan sig og fortíðina. Losaði sig við áföll úr barnæsku og einhvern óskilgreindan múrstein sem hann hafði burðast með í höfðinu. Hann Ísland er eins og mannætupottur margrét H. gústaVsdóttir margret@dv.is Egill Sæbjörnsson er einn dáðasti myndlistarmaður þjóðarinnar. Margrét H. Gústavsdóttir settist niður í eldhúsinu hjá Agli og saman spjölluðu þau meðal annars um áfallastreituna sem Íslendingar erfa frá forfeðrunum, tröllin í sálinni og hvernig hann komst heim í gegnum ástina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.