Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Síða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Síða 58
Vikublað 3. nóvember 2017 10 „Mig hefur alltaf langað að deila einhverju nánu. Einhverju sem skiptir máli og hreyfir við fólki. Þegar ég kom þarna á Kjarvalsstaði horfði ég í kringum mig og hugs- aði hvað það væri eitthvað klikkað að nota þetta flotta húsnæði, undir einhverja leiðinlega konseptlist. Af hverju ekki að sýna tilfinningar, eitthvað sem skiptir fólk máli? Ég var einmana á þessum tíma, mér leiddist á vinnustofunni á daginn, stundaði sjálfsfróun, tók það upp og fór svo með þetta á Kjarvalsstaði. Ég var þarna ungur maður með kynhvöt sem fékk takmarkaða útrás, þetta var hluti af því, hluti af því að vera til, vera manneskja. Steikt manneskja undir þessu pottloki þar sem aldrei má tala um neitt. Þetta var tilraun til að sýna eitthvað skítugt úr sjálfum mér. Á sama tíma fannst mér þetta rosalegur skandall. Sem sagt að ég væri að gera þetta á vinnustofunni, á bak við gluggann, um hábjartan dag. Þetta var eins þveröfugt við útreiknaða leiðinlega konseptlist og mögulega hugsast gat.“ Hélt sig frá áfengi, kjöti og kynlífi í mörg ár Egill lýsir þessu þannig að hann hafi einfaldlega gengið út á hengiflugið og kastað sér fram af brúninni. „Ég lét mig bara gossa. Sveif niður af þessari bjargbrún um leið og ég hugsaði að ég gæti aldrei boðið mig fram sem forseta, hvað allar frænkurnar yrðu hrikalega hneykslaðar, ég yrði örugglega útskúfaður og svo framvegis. Svo fékk ég auðvitað mjög sterk viðbrögð. Sumir voru alls ekki sáttir við að ég skyldi hafa verið að sýna eitthvað svona dónalegt á virtasta listasafni landsins,“ segir hann kíminn og bætir við að oft sé þetta dónalega inni í okkur einhvers konar uppreisn eða svar við bælingu. Sjálfur hafi hann til að mynda verið í hugleiðsluhóp frá sextán ára til rúmlega tvítugs þar sem mikil áhersla var lögð á að iðkendur héldu sig frá kynlífi, bæði með sjálfum sér og öðrum. „Ég hafði verið á kafi í tíbeskum búddisma í mörg ár. Drakk ekkert áfengi, borðaði engan sykur, ekkert hveiti, ekkert ger, ekkert kjöt og engar dýraafurðir, stundaði ekkert kynlíf. Var bara vegan á kafi í hugleiðslu. Svo hætti ég þessu. Fann að mig langaði meira til að vera mannlegur. Maður reynir alls konar leiðir til að laga sig en besta leiðin sem ég hef fundið er að láta sér bara þykja vænt um sjálfan sig og taka smá hlé frá kaldhæðninni. Hún er allt of sterk í Íslendingum, allt of fyrirferðarmikil.“ Fannst barnalegt að bjóða upp á ímyndaða vini sem list Fyrir tæpum tíu árum fór Egill að hafa áhuga á tröllum. Hann lýsir þeim eins og furðulegum, illa lykt- andi osti sem hann varð að skoða betur. Hann fór að safna sögum af tröllum og velta þeim mikið fyrir sér. Smám saman fæddust svo hugarfóstrin Ūgh og Bõögâr, tröllin sem slógu í gegn á Feneyjatvíær- ingnum. „Karakterþróun hefur alltaf ver- ið stór hluti af lífi mínu og að eiga ímyndaða vini er eitthvað sem hef- ur alltaf fylgt mér. Þegar ég var lítill þá bjuggum við bróðir minn til alls konar karaktera sem við lékum í mörg ár en tröllin Ūgh og Bõögâr þróuðustu með vini mínum, lista- manni sem heitir Diego Fernandes sem er frá Chile. Hann bjó á vinnu- stofunni minni í Berlín, við fórum að leika okkur að því að herma eftir tröllum og smátt og smátt fór mig að langa til að gera verk sem væru eftir þessa karaktera. Fyrst átti þetta ekkert að vera list heldur aðeins leikur, þannig séð. Svo gerðist það fyrir tveimur árum að ég fór með vini mínum, Magnúsi Alberti Jenssyni arkitekt, niður í MHÍ til að búa til hurðarhúna úr leir, en við erum stundum að bralla saman í alls konar verkefnum. Þegar við byrjuðum að vinna með leirinn fann ég allt í einu að tröllin langaði að gera skartgripi úr þessum efni- við en þegar Feneyjatvíæringurinn nálgaðist ákvað ég að setja þau í pásu. Mér fannst svo kjánalegt og barnalegt að setja þessa ímynduðu vini fram sem list, og svo var ég hræddur um að tröllin þættu ekki kúl. Þetta væri of mikil klisja og enginn nútímalegur listamaður gæti leyft sér að vinna með það.“ Tröllin tóku Tvíæringinn með trompi Líkt með sýninguna á Kjarvals- stöðum nítján árum fyrr reið Egill aftur á vaðið og ögraði sjálfum sér. Tröllin hertóku umsóknina um að komast á Tvíæringinn og lögðu fram tillögu. Verkið skyldi vera risastór espresso-kaffibar, tveir risa- stórir tröllshausar sem hægt væri að ganga inn í, alls þrjár hæðir. Tillagan var samþykkt og verkið sló í gegn. „Margir þekktir fjölmiðlar völdu þetta sem einn af fimm, átta eða tíu bestu skálunum á sýningunni. Það þótti eitthvað svo ferskt að láta ímyndaða vini taka yfir skálann, svo eru þetta í þokkabót tröll, sem er ótrúlega forneskjulegt. Ég held að fólki hafi kannski bara þótt þetta skemmtilegt. Þannig að núna er ég bara stoltur og ánægður með ímynduðu vini mína, sem er breyting frá því sem áður var, þá skammaðist ég mín fyrir svo margt, líka tónlistina mína,“ segir hann en margir tóku fyrst eftir Agli í kring- um aldamótin þegar hann sendi frá sér meistaraverkið Tonk of the Lawn, frábæra plötu sem sló ræki- lega í gegn og þá aðallega samnefnt lag sem nú er meðal annars hægt að heyra á Youtube og Spotify. Hjálpar innflytjendum að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins Í Berlín hefur Egill um 400 fermetra vinnuaðstöðu til ráðstöfunar. Hann hefur jafnframt aðstoðarfólk sér til halds og trausts enda í nægu að snú- ast og verkefnin fjölbreytt og mörg. Eitt þeirra fer fram í bænum Kristinehamn í Svíþjóð. Þar búa um 2.000 innflytjendur og hælisleitendur sem sumir hverjir hafa lítið fyrir stafni. Egill segist lengi hafa velt því fyrir sér hvað væri hægt að gera fyrir þetta fólk og fékk þá hugmynd að setja upp einhvers konar stað þar sem fólkið gæti fengið það á tilfinninguna að það væri að leggja eitthvað af mörkum til samfélagsins. „Ekki bara koma sem flótta- maður, fá ölmusu og geta ekkert gefið til baka. Það er svo mikil niðurlæging,“ útskýrir hann. Tilurð verkefnisins varð með þeim hætti að Andreas Brändström safnstjóri bauð Agli að setja upp sýningu í bænum. Þeir hlutu styrk úr ríkisstyrktum sjóði sem kallast Kreative Platser og er á vegum Kulturradet í Svíþjóð. Tilgangurinn er að hjálpa innflytjendum, at- vinnulausum og hælisleitendum að taka þátt í listatengdum verkefnum. „Við byrjuðum á að setja upp brennsluofn og leirgerðarverk- stæði. Það hefur nefnilega mjög já- kvæð áhrif á fólk með áfallastreitu að vinna með höndunum og gera eitthvað skapandi. Nú eru þau búin að gera heilmikið af leirmunum, diskum, skálum, bollum og þess háttar,“ segir hann og bætir við að fljótlega hafi verið ákveðið að smíða líka gróðurhús og byrja að rækta grænmeti. „Svo er lítið vatn þarna rétt hjá verkstæðinu sem hægt er að veiða í. Næsta skref er að koma upp veitingahúsi og veitingastaðurinn kemur þá í staðinn fyrir hefð- bundna listsýningu. Fólkið kemur inn á hlýjan veitingastað og fær að borða góðan mat í stað þess að standa á miðju gólfi og virða fyrir sér kalda konseptlist á „Kjarvals- stöðum“. Er það ekki fín umbót? Breyting á því hvað list getur verið. Mér finnst gott að taka listina út úr sérfræðingaumhverfinu og láta hana vera part af daglegu um- hverfi,“ segir Egill sem stefnir á að flytja til Kristinehamn og búa þar fyrstu þrjá mánuðina 2018 enda sé verkefnið krefjandi. „Við þurfum að skapa myndir af þessum heimi sem við viljum búa í“ Spurður að því hvort hann gæti hugsað sér að vinna í sambærilegu verkefni hér á landi segir hann ekkert því til fyrirstöðu, svo lengi sem það væri innan rétta rammans. Nægilegur skilningur stjórnvalda þurfi þó að vera fyrir hendi. „Ég hef mjög mikinn áhuga á því að taka þátt í stjórnmálum á Íslandi en það er erfitt að sinna þeim hér. Ég sé það nefnilega fyrir mér að stjórnmál eigi að gerast meira í gegnum myndmál. Fólk þarf að hafa mynd eða myndrænt kort til að fylgja eftir í stað þess að vera alltaf að karpa og þrasa og hrapa svo aftur og aftur ofan í sama gapið. Við þurfum að sjá lífið fyrir okkur … visjúalisera ný sam- félagsmódel. Myndin sem Hrafn Gunnlaugsson gerði á sínum tíma, um það hvernig önnur tegund af Reykjavík gæti litið út, var mjög gott dæmi um þessa aðferð. Við gætum til dæmis skapað okkur mynd af því hvernig lífið með greiðu aðgengi til spítala og skóla gæti litið út, og hvernig lífið verður ef kvótinn verður tekinn til baka og við notum fiskinn á annan hátt – og við gætum gert myndband af lífinu á Íslandi þegar hagnaðurinn af vatninu okkar verður notaður til að gera kjör almennings betri. Þá mætti sjá fyrir sér bensínbíla- laust Ísland og margt, margt fleira. Þannig finnst mér að gott stjórn- málaafl ætti að starfa vegna þess að þannig er auðveldara að láta draumana rætast. Við þurfum að skapa myndir af þessum heimi sem við viljum búa í.“ „Maður reynir alls konar leiðir til að laga sig en besta leiðin sem ég hef fundið er að láta sér bara þykja vænt um sjálfan sig og taka smá hlé frá kaldhæðninni. Hún er allt of sterk í Íslendingum, allt of fyrirferðarmikil. „Björk kenndi mér meðal annars að fara úr heimi kaldhæðninnar í heim hlýju og öryggis. Komast heim til mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.