Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Qupperneq 68

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.2017, Qupperneq 68
4 Skrifstofan Helgarblað 3. nóvember 2017KYNNINGARBLAÐ Ný fjármögnunarleið: Fáðu kröfurnar þínar greiddar strax! Faktoría Fjármagnar ógreiddar kröFur Faktoría er nýtt fjár­málatæknifyrirtæki (e. fintech) sem býður fyrir­ tækjum að fjármagna kröfur þeirra. Fjárflæði fyrirtækja getur verið mjög sveiflukennt en kostnaðurinn fer aldrei í frí, það þarf að greiða laun og launatengd gjöld um hver mánaðamót auk fjölmargra annarra fastra kostnaðarliða, á meðan útistandandi kröfur falla ekki á gjalddaga fyrr en eftir mánuð eða mánuði. Þessar kröfur eru hins vegar fjármagnaðar strax hjá Fakt­ oríu, biðin eftir peningunum getur farið alveg niður í eina klukkustund. „Við erum að bjóða nýja tegund af fjármögnun fyrir fyrirtæki sem er nokkuð til hliðar við allt skrifræðið og biðina sem fylgir hefðbund­ inni lánafyrirgreiðslu,“ segir Hörður Bender, stofnandi og eigandi Faktoría, en auk hans starfa við fyrirtækið þeir Finnur Freyr gunnarsson og Haukur Baldvinsson og saman mynda þeir þriggja manna samhent teymi. Hin skilvirka og hraða þjónusta Faktoríu hvílir á afar velvirk­ um hugbúnaði sem þróaður var í nokkur ár og prófaður með örfáum viðskiptavinum áður en starfsemin hófst formlega fyrir rétt rúmu ári: „Við erum hluti af hinni svokölluðu Fintech. bylgju, þ.e. Financial technology, en hjá Seðlabanka íslands og á alþingi hefur verið kallað eftir meiri flóru í fjármálageir­ anum. Við erum klárlega að svara því kalli,“ segir Hörður. Það er fleira sem gerir kröfufjármögnun þægilegri en hefðbundna fjármögnun: Það þarf engin veð. Það þarf bara gilda kröfu, Faktoría gengur úr skugga um að reikningurinn sé réttur og þar með er forsendan fyrir fyrir­ greiðslu komin. að sjálfsögðu innheimt­ ast ekki allar kröfur og því er áhætta í spilunum sem Faktoría tekur á sig, en föst innheimtuþóknun er 2,5% af kröfunni. Það þýðir til dæmis 25.000 krónur af 1 milljón, sem fyrir marga er lítið í sam­ anburði við það óhagræði sem hlýst af því að bíða eftir að viðskiptavinir greiði kröfur eða fá hefðbundna lánafyrir­ greiðslu hjá banka. að sögn Harðar er mark­ hópur Faktoríu lítil og meðal­ stór fyrirtæki eða nánar tiltekið fyrirtæki með 5 til 100 starfsmenn: „Stærsti geirinn hjá okkur er byggingar­ iðnaðurinn og síðan eru það sjávarútvegurinn og ferða­ þjónustan. Ferðaþjónustan er gott dæmi um starfsemi þar sem fjárflæði er ójafnt. Það er oft gott yfir sumarið en síðan er mun erfiðara að reka fyrirtækin yfir vetrartímann. Þá er gott að hafa þessa fyrirgreiðslu sem jafnar út sveiflurnar. núna eru sér­ verslanir töluvert að leita til okkar, sem vantar fjármagn til að byggja sig upp fyrir jólin, þurfa að fylla á lagerinn og það er þungt að leggja út fyrir slíku þó að það eigi eftir að skila sér allt til baka í jólasölunni,“ segir Hörður. Sem fyrr segir hefur Faktoría aðeins verið í rúmt ár á markaðnum eftir langan aðdraganda þar sem menn huguðu vandlega að því að treysta tæknilegan grunn starfseminnar. Hörður segir að viðtökurnar hafi verið frábærar og þjónustan er greinilega kærkomin fyrir mörg lítil og meðalstór fyrir­ tæki. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þjónustuna betur og hafa ef til vill þörf fyrir fjármögnun af þessu tagi ættu endilega að skoða vel vef fyrirtækisins, faktoria. is. Þar eru greinargóðar og aðgengilegar upplýsingar auk þjónustuvefjar þar sem við­ skiptavinir taka nokkur skref að fjármögnuninni í einföldu og traustu ferli. Á vefnum er einnig að finna símanúmer þeirra Harðar, Finns og Hauks og er velkomið að hringja í þá og fá nánari upplýsingar og útskýringar á þjónustunni í símtali. Hörður Bender Finnur Freyr Gunnarsson Haukur Baldvinsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.