Morgunblaðið - 01.02.2017, Side 18

Morgunblaðið - 01.02.2017, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ J anúar er sem betur fer liðinn og kem- ur ekki aftur fyrr en að ári liðnu. Guði sé lof fyrir það. Þessi mánuður hefur ekki verið sérlega góður; hvorki fyrir íslensku þjóðina né heiminn allan. Það væri að bera í bakkafullan lækinn að tala um Trump. Hann kemur þó við sögu í þessum pistli. Þessi ógeðfelldasti forseti sem Bandaríkin hafa átt heldur áfram að sýna hvaða mann hann hefur að geyma. Sagan mun dæma hann síðar en við þurfum að lifa hana með honum. Þetta vekur óneitanlega hugsanir um hið góða og hið illa og hvernig hægt er að hafa áhrif til góðs. Lögmálið um karma segir að all- ar gjörðir, líkamlegar jafnt sem huglægar, hafi afleiðingar. Afleiðingarnar eiga að koma fram í næsta lífi, a.m.k. samkvæmt hindúisma og búddisma. Tal- að er um að hvorki sé til gott né slæmt karma en ég er ekki svo viss. Ég vil nefnilega trúa því að það góða ali af sér hið góða og mig langar að trúa að jákvæð orka skili sér út í heiminn. Kannski er gott að hafa í huga að allar gjörðir og hugsanir hafa afleiðingar. Hvort sem það heitir karma eða eitthvað annað. Með léttvægari og ómerkilegri fréttum janúarmánaðar eru áramótaheitin sívinsælu. Sykur- og hveitibindindið er alveg að missa sjarmann. Ég reyni þó að þrauka eitthvað áfram. Eitt af leynilegri áramótaheitum, sem nú er greinilega ekki leynilegt lengur, var að reyna að komast á nokkur stefnumót. Það gæti nefnilega verið leiðinlegt að hanga í klaustri svona til lengdar. En ég er auðvitað búin að skjóta mig í fót- inn í þeim efnum og móðga ýmsa karlmenn í fyrri skrifum mínum hér. Til dæmis á ég að hafa móðgað alla Asíubúa og hreinlega alla lágvaxna menn í pistli hér fyrir áramót. Ég móðgaði líka flesta íslenska menn á Tinder og alla sem kunna ekki að stafsetja. Kannski þá ósjálfrátt alla sem eru lesblindir, ég veit það ekki. Vinur minn tjáði mér að ég hefði ekki verið „politically correct“ með skrifum mín- um. Líklega myndi enginn karlmaður komast upp með svona skrif um kvenfólk en það er ekki mitt hlutverk endilega að vera „politi- cally correct“. En ég get líklega alveg gleymt því að komast á stefnumót á næstunni. Annars held ég að „refsingin“ hafi komið að ofan eða frá Óla Lokbrá öllu heldur. Ég fékk nefnilega hina verstu martröð sem nokkur kona getur fengið held ég, svei mér þá. Mig dreymdi að ég vaknaði við hlið Do- nalds Trumps! Af öllum mönnum í heiminum sem hefði verið hægt að senda til mín! George Clooney og Brad Pitt eru til dæmis tveir sem koma upp í hugann. En nei, í draumi var mér sendur Donald Trump! Skömmin var mikil þegar ég vaknaði og mundi drauminn. Sem betur fer mundi ég lítið annað en skítaglottið á manninum. Ég get lofað ykkur að það er ekkert freudískt við drauminn. Þá myndi ég frekar vilja sofa hjá öllum dvergunum sjö. Og Mjallhvíti með. asdis@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir Pistill Versta martröð hverrar konu STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is L öggæslumaður með ára- tugareynslu og -þekk- ingu á innflutningi fíkniefna segir að hafn- ir landsins séu afar berskjaldaðar fyrir fíkniefnainn- flutningi. Segir hann þá sem starfi í framlínu fíkniefnavarna hafa vitn- eskju um að langmestur hluti fíkni- efna sem smyglað er til Íslands komi með gámum í gegnum Sunda- höfn og Holtagarða. Tölur úr ársskýrslum embættis tollstjóra segja þó aðra sögu. Þar sést að fíkniefni eru oftast gripin í póstsendingum en í mestu magni í Leifsstöð í Keflavík. Engin fíkniefni fundust í gámum á þriggja ára tíma- bili, frá 2012-2014 en í fjórum skip- um. Á sama tímabili var lagt hald á fíkniefni í 321 tilviki í póstsend- ingum og í 68 tilfellum í Leifsstöð. Ekki fengust tölur hjá tollstjóra- embættinu um hve mikið af fíkniefn- um var lagt hald á árin 2015 og 2016. Nokkra athygli vakti fyrir skemmstu er 20 kílógrömm af hassi fundust um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq þegar hann kom til hafnar að nýju í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur. Áður lá hann í höfn í Hafnarfirði í nokkra daga og var tollskoðaður þegar hann kom hingað frá Danmörku. Leit í gámum skilað litlu Snorri Olsen, tollstjóri, segist aðspurður lítið vilja tjá sig um smyglleiðir til landsins en þegar horft sé til hafna landsins hafi mest magn verið tekið við komu Norrænu til Seyðisfjarðar. Rúmlega 150 þúsund gámar eru fluttir til landsins ár hvert með flutningaskipum um Sundahöfn og Holtagarða. Að sögn Snorra er starfrækt greiningardeild á vegum embættisins, sem hefur m.a. það hlutverk að fara yfir farmskrár gáma og meta hvern þeirra sé ástæða til þess að skoða nánar. Að sögn hans er hlutfall þeirra gáma sem leitað er í um 1%. „Leit í gám- um hefur skilað mjög litlu. Það er okkar mat að þetta sé ekki helsta leiðin en það er ekkert sem hægt er að fullyrða um. Auðvitað geta fyr- irtæki sem eru ekki með neinn tengdan því sem vekur grunsemdir flutt eitthvað inn. En það eru ákveðnar farmverndarreglur og menn þurfa að setja í gáma með ákveðnu fyrirkomulagi. Því er þetta aðeins flóknara en svo að ein- staklingur geti komið vörum eða fíkniefnum til landsins í gámi. Þú þarft mun meiri viðbúnað í kringum það, þó við getum ekki útilokað að einhverjir hafi sett upp slíkt kerfi,“ segir Snorri. Stórt svæði undir Hjá tollstjóra starfa 120 toll- verðir landið um kring. Að sögn Snorra hafa þrír til fjórir tollverðir það hlutverk að leita í gámum og skipum og einkaflugvélum á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Fer leit ein- göngu fram á dagvinnutíma og eru rýmin sem leitað er í að beiðni greiningardeildar. Tollverðir eru þó á vakt allan sólarhringinn í Sunda- höfn og Holtagörðum. Er þeirra hlutverk fyrst að veita gámunum móttöku. Eru þeir geymdir inni á tollasvæði þar til leitarmenn mæta til vinnu. „Þó við séum að skoða til- tölulega litla prósentu þá eru sveifl- ur í þessu. Stundum geta komið ár þar sem þú hittir ekki á neitt og stundum koma ár þar sem vel geng- ur. Þá telja menn að meira sé fram- leitt innanlands, bæði af kannabis og amfetamíni. Það gæti að ein- hverju leyti skýrt það að við séum að taka minna. Svo getur það líka verið að mönnum takist betur að fela þetta,“ segir Snorri. Hafnirnar berskjald- aðar fyrir fíkniefnum Morgunblaðið/Eggert Polar Nanoq Athygli vakti þegar um 20 kíló af hassi fundust um borð í Polar Nanoq þegar togarinn kom til hafnar öðru sinni í Hafnarfirði. Morgunblaðið talaði við sex sjómenn með samtals um 8 áratuga reynslu af sjó- mennsku. Eng- inn þeirra kannaðist við að nokkurn tímann hefði verið leitað í skip- um þeirra eftir dvöl ytra þótt ávallt taki á móti skipum lög- reglumaður eða tollvörður til að ganga frá pappírsvinnu. Jó- hannes Jóhannesson á Snæfelli EA 310 er einn þeirra en hann hefur verið til sjós í 37 ár. ,,Það hefur aldrei gerst að tollurinn hafi leitað í okkar skipi,“ segir hann. Snorri Olsen segir að menn hafi metið það sem svo að íslenskir sjómenn séu ekki líklegir til að flytja inn fíkniefni. „Þetta er alltaf mat. Ég er ekki viss um að það sé rétt að aldrei hafi verið fylgst með fiskiskipi en það er ekki víst að farið hafi verið um borð,“ segir Snorri. Hafa aldrei lent í tollleit FISKVEIÐISKIP Snorri Olsen Vestur íBandaríkj-unum er ekki ágreiningur um að betur hefði mátt standa að ákvörðun um 3 mánaða hlé á heimild fyrir fólk frá 7 tilgreindum löndum til þess að sækja Bandaríkin heim. Afsökun nýju stjórnarinnar á óhönduglegum vinnubrögðum er helst sú, að einungis 10 dagar eru frá því að hún tók til starfa og demókratar hafa tafið það að tilnefndir ráðherrar komist til starfa í sínum ráðuneytum. Repúblikanar benda á að slík skemmdarverk hafi ekki verið unnin gagnvart Obama þegar stjórn hans hóf störf. Demó- kratar hafa enn ekki sætt sig við að hafa tapað kosningunum og að nýir húsbændur fari með völdin í Hvíta húsinu og í báðum deildum þingsins. Um það verð- ur þó engum kennt nema kjós- endum. Blásið hefur verið til mót- mæla í fjölda borga af minnsta tilefni. Þær raddir eru farnar að heyrast meðal reyndari manna í flokki demókrata að festist sú mynd við flokkinn að þar fari óá- byrgur mótmælaflokkur muni tap hans halda áfram 2018. Trump hafði marglofað því í kosningabaráttunni að stöðva um skamma hríð heimildir manna til að ferðast til Banda- ríkjanna þar til komið yrði lagi á málið. Þetta var eftir að Alrík- islögreglan, FBI, hafði tilkynnt að hún treysti sér ekki lengur til að leggja mat á umsóknir um ferðaheimildir frá tilteknum löndum, því þaðan væri ekki trúverðugar upplýsingar að fá. Obama og ríkisstjórn hans tóku saman lista yfir 7 ríki þar sem múslímar eru í meirihluta íbúa. Þáverandi ríkisstjórn flokkaði þessi sjö ríki sem „co- untries of concern,“ eins og það var orðað í greinargerð hennar. Í desember 2015 staðfesti Obama lög um að setja mætti tilteknar hömlur varðandi vega- bréfsáritanir borgara sem hefðu verið í Íran, Írak, Súdan og Sýr- landi eftir 1. mars 2011. Tveim- ur mánuðum síðar bætti Obama við löndunum Líbíu, Sómalíu og Jemen. Sagði forsetinn að þetta væri gert vegna „vaxandi hættu sem stafaði af erlendum hryðju- verkamönnum“. Ríkisstjórn Trumps byggir lista sinn alfarið á þessu mati fyrirrennara sinna. Nú birtast hinir og þessir fræðimenn, hér sem annars staðar og segjast furðu losnir á þessu „vali Trumps“. Aðrir fullyrða út í blá- inn að um sé að ræða bann vegna trúarskoðana þessa fólks og gera ekkert með það þótt bannið taki ekki til fjölmargra múslímaríkja, þar á meðal hinna fjöl- mennustu í veröld- inni! Ekki er fótur fyrir því að þetta þriggja mánaða bann lúti trúar- legum forskriftum. Hins vegar er það óneitanlega bundið land- fræðilegum forskriftum. Slík mismunun hefur lengi gilt í Bandaríkjunum gagnvart öðr- um ríkjum og hefur Ísland lengi notið vinsemdar í þeim efnum og hingað til ekki æst sig út af mismununinni. Á Íslandi hrífast nú jafnvel atvinnustjórnmálamenn með í æsingnum og taka sér ekki nokkra daga til að kanna málið áður en hlaupið er á sig. Sumir þeirra hafa sömu afsökun og Trump-stjórnin að vera ný- komnir til starfa, þótt hinir ís- lensku búi að vísu við full- mönnuð, ef ekki ofmönnuð ráðuneyti. Í fyrradag, þennan eina dag, þegar ýmsir hér og í Evrópu hrukku af hjörunum, komu yfir 300 þúsund manns til Bandaríkjanna. Þar af voru 109 stöðvaðir vegna hinna nýju til- skipana og eftir fáeinar klukku- stundir var allur þorri þeirra farinn áfram ferða sinna. Það skondna við lætin í Evr- ópu er ekki síst það, hvar meg- inástæðu þessa máls er að finna. Obama forseti steig sín skref ár- ið 2015 og Trump forseti ákvað nú að setja tímabundnar tak- markanir gagnvart þeim sjö ríkjum sem Obama taldi valda sérstökum áhyggjum. Hvort tveggja er gert vegna flótta- mannaupplausnar í Evrópu! Ekki er um það deilt að Mer- kel kanslara varð stórkostlega á með yfirlýsingum sínum um þau mál enda viðurkennir hún það sjálf að mestu nú. Lögreglu- yfirvöld beggja vegna Atlants- ála telja varlega áætlað að yfir 5000 vígamenn Isis leynist nú á meðal þeirra milljóna óskráðra erlendra borgara sem flæddu yfir Evrópu. Til þeirrar stað- reyndar má rekja ákvarðanir fyrrverandi og núverandi yfir- valda í Bandaríkjunum. Þau vilja finna leiðir til að tryggja að þessir liðsmenn flæði ekki til Bandaríkjanna frá Evrópu. Það væri að minnsta kosti rétt að hafa það með í umræðunni, þeg- ar mesti hávaðinn er búinn. Þegar þessi orð birtast er lík- legt að Trump verði nýbúinn að kynna dómaraefni sitt í Hæsta- rétt Bandaríkjanna og er líklegt að stór hópur þeirra sem sinnt hafa æsingi út af fyrrgreindu máli verði algjörlega upptekinn við að ærast yfir tilnefningunni. Kannski munu íslenskir stjórn- málamenn líka láta það mál til sín taka. Því ekki það? Það ber varla við að menn kynni sér mál áður en þeir kyrja með} Uppnám er stundað betur en önnur lærdómsiðkun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.