Morgunblaðið - 01.02.2017, Page 31
Með kanínum Ljósmynd sem tekin var við gerð myndbands við lagið „Change of Frame“ af plötunni Funeral.
myndagerð við SUPER 16 kvik-
myndaskólann í Kaupmannahöfn og
hlaut verðlaun fyrir tvær stutt-
myndir sínar, Mítt rúm og Skuld.
Ferilskrá Heiðríks er löng og til-
komumikil og þá sérstaklega þegar
litið er til þess að hann er bara 32
ára. Hann hefur m.a. starfað sem
grafískur hönnuður, ljósmyndari og
myndskreytt fjölda bóka og hannað
plötuumslög, svo fátt eitt sé upp tal-
ið. En ætlunin er ekki að ræða við
Heiðrík um alla hans listsköpun
heldur plötuna nýju, svo blaðamaður
haldi sig nú við efnið.
Færeyjar á réttri leið
„Platan fjallar um líf mitt í Fær-
eyjum og það sem hefur breyst þar.
Hvernig það er að vera samkyn-
hneigður í Færeyjum,“ útskýrir
Heiðríkur. Á plötunni geri hann
þetta tímabil upp, „setji lok á þetta
allt saman“, eins og hann orðar það
sjálfur á ágætri íslensku. Heiðríkur
segir að ákveðin skömm hafi fylgt því
að koma út úr skápnum á sínum tíma
og á plötunni sé hann m.a. að vinna
úr henni.
-Fordómar í færeysku samfélagi
gagnvart samkynhneigðum hafa
vakið athygli. Hver er staðan núna
hvað þá varðar?
„Þetta er að breytast mjög mikið. Í
fyrra voru hjónabönd samkyn-
hneigðra leyfð, við vorum síðasta
landið á Norðurlöndum til að sam-
þykkja þau. Núna er haldið upp á
Gay Pride í Færeyjum en fyrir tíu
árum var það ekki þannig. Sam-
félagið er að breytast en það á enn
eftir að gera mikið. Við erum þó á
réttri leið,“ segir Heiðríkur og bætir
við að platan hans sé tileinkuð ungu
LGBT-fólki í Færeyjum, þ.e. homm-
um, lesbíum, tvíkynhneigðum og
transfólki.
Jarðarför tilfinninga
Funeral, þ.e. jarðarför, er býsna
drungalegur titill og Heiðríkur segist
hafa velt því fyrir sér að kalla plöt-
una Closure, sem þýða mætti sem
sátt eða uppgjör. Hann sé enda að
gera upp fortíðina og hafi þótt við
hæfi að líkja því uppgjöri við fallega
athöfn, þ.e. jarðarförina. Hina hinstu
kveðju. „Þannig að titillinn er ekki
neikvæður,“ bendir Heiðríkur á og
bætir við að það fari ekki milli mála
um hvað hann sé að syngja á plöt-
unni. Textarnir fjalli um líf hans í
Færeyjum, að læra að sleppa takinu
á tilfinningum sínum og hleypa ást-
inni inn. „Það er mér mjög mikilvægt
að tala um þetta,“ segir hann.
Funeral er önnur plata Heiðríks
því fyrir tíu árum sendi hann frá sér
stuttskífuna An Invisible Gun sem
hann segir hafa verið poppplötu. Sú
nýja sé hins vegar djass- og þjóð-
lagaskotnari, órafmögnuð og ein-
kennandi hljóðfæri píanó, úkúlele og
önnur strengjahljóðfæri. Við það
bætist svo stimamjúkur söngur
Heiðríks.
Þeir sem vilja kynna sér tónlist og
aðra listsköpun Heiðríks geta gert
það á vefsíðu hans þar sem m.a. má
finna tónlistarmyndbönd. Vefslóðin
er heidrik-heygum.squarespace.com.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2017
Tónlistarmaðurinn Teitur Magn-
ússon heldur tónleika í röðinni
Blikktromman í kvöld kl. 20 í Kalda-
lóni í Hörpu, ásamt góðum hópi tón-
listarmanna sem verða sjö eða átta
talsins. Teitur hefur að undanförnu
unnið að annarri sólóplötu sinni sem
aðdáendur hans bíða eflaust með
mikilli eftirvæntingu.
Frumraunin, platan 27 sem kom
út árið 2014, hlaut mikið lof gagn-
rýnenda og góðar viðtökur lands-
manna og eflaust margir sem raul-
uðu fyrir munni sér lög á borð við
„Nenni“ sem Teitur samdi við ljóð
Benedikts Gröndal og „Vinur vina
minna“. 27 var tilnefnd til Norrænu
tónlistarverðlaunanna í fyrra.
Á tónleikum Blikktrommunnar í
kvöld munu Teitur og félagar leika
lög sem hafa ekki heyrst áður á tón-
leikum sem og eldri lög. Teitur seg-
ist ætla að taka nokkur lög af nýju
plötunni sem hann segir býsna langt
komna. „Við erum að klára að taka
upp sönginn og einhverjar loka-
hugmyndir kunna að koma upp,
væntanlega einhver lög á næstunni
og svo kemur platan út með vorinu,“
segir Teitur.
Haust- og vetrarplata
Á plötunni sem er í smíðum nýtur
Teitur liðsinnis upptökustjórans
Leifs Björnssonar og segir Teitur að
á henni kveði við aðeins nýjan tón,
annan en þann sem sveif yfir vötnum
á fyrstu plötunni. Hvaða tónn skyldi
það vera, hvað er nýtt? „Það er erfitt
fyrir mig að segja hvað það er en ef
maður myndi lýsa því væri það
kannski að ef hin platan var vor- eða
sumarleg er þessi kannski haust og
vetur,“ svarar Teitur.
-Er hún þá drungaleg?
„Já, örlítið, smá moll í henni. Á
hinni plötunni voru mörg lög í dúr en
þessi er svolítið moll líka. Og líka
meira um rafmagnsgítar …“
-Minna um sítar?
„Minni sítar, já.“
-Semurðu textana alla sjálfur eða
notarðu líka texta eftir aðra?
„Það er líkt með hina að á þessari
plötu er t.d. eitt lag við texta eftir
Davíð Stefánsson, ég nota tvö brot
úr ólíkum kvæðum eftir hann. Svo
hef ég samið mikið sjálfur,“ svarar
Teitur. Og spurður að því hvað plat-
an muni heita segist hann eiga eftir
að finna titilinn.
Blikktromman hóf göngu sína
haustið 2015 en í henni er áhersla
lögð á að bjóða upp á tónleika með
nokkrum af fremstu tónlist-
armönnum þjóðarinnar í hinu nána
umhverfi Kaldalóns. Meðal þeirra
sem komið hafa fram eru Sóley,
Högni Egilsson, Valdimar & Örn
Eldjárn, Mr. Silla, Sin Fang, Úlfur
Eldjárn, Tina Dickow & Helgi Hrafn
Jónsson og Benni Hemm Hemm,
Snorri Helgason, Úlfur úlfur, Presi-
dent Bongo & The Emotional Car-
penters og Soffía Björg.
helgisnaer@mbl.is
Meiri moll á næstu plötu
Teitur treður upp í Blikktrommunni í Hörpu í kvöld
Ný lög Teitur Magnússon kemur
fram í Blikktrommunni í kvöld.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 4/2 kl. 20:00 148. s Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s
Sun 5/2 kl. 20:00 149. s Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s
Fös 10/2 kl. 20:00 150. s Sun 19/2 kl. 20:00 154. s
Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 4/2 kl. 13:00 31. s Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s
Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Ræman (Nýja sviðið)
Mið 1/2 kl. 20:00 aukas. Lau 4/2 kl. 20:00 11.sýn
Fös 3/2 kl. 20:00 10.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 12.sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014!
Hún Pabbi (Litla svið )
Fim 2/2 kl. 20:00 9. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 11.sýn
Sun 5/2 kl. 20:00 10.sýn Fös 10/2 kl. 20:00 12.sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Fim 2/2 kl. 14:00 Fors. Sun 5/2 kl. 13:00 2. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn
Fös 3/2 kl. 14:00 Fors. Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn
Lau 4/2 kl. 13:00 Frums. Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn
Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 4/2 kl. 19:30 37.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 42.sýn
Sun 5/2 kl. 19:30 37.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn
Fös 10/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 41.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 aukasýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn
Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Fim 2/2 kl. 19:30 9.sýn Sun 12/2 kl. 19:30 11.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 12.sýn
Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 26/2 kl. 16:00 7.sýn
Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn
Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 26/2 kl. 13:00 5.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Sun 5/2 kl. 14:00 Mið 8/2 kl. 19:30 Fim 9/2 kl. 19:30
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 2/2 kl. 20:00 16.sýn Fös 10/2 kl. 20:30 22.sýn Fös 17/2 kl. 22:30 28.sýn
Fös 3/2 kl. 20:00 17.sýn Fös 10/2 kl. 23:00 23.sýn Lau 18/2 kl. 20:00 29.sýn
Fös 3/2 kl. 22:30 18.sýn Lau 11/2 kl. 20:00 24.sýn Lau 18/2 kl. 22:30 30.sýn
Lau 4/2 kl. 20:00 19.sýn Lau 11/2 kl. 22:30 25.sýn Sun 19/2 kl. 21:00 aukasýn
Lau 4/2 kl. 22:30 20.sýn Fim 16/2 kl. 20:00 26.sýn
Fim 9/2 kl. 20:00 21.sýn Fös 17/2 kl. 20:00 27.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 8/2 kl. 20:00 Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar