Morgunblaðið - 14.02.2017, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2017
Það er allt ljómandi að frétta héðan. Veðrið er búið að leika viðokkur en ég vildi gjarnan fá meiri snjó í fjallið,“ segir Ingi-björg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri, en hún á 40 ára
afmæli í dag.
„Við stöndum í miklum endurbótum í sundlaug Akureyrar og erum
að setja upp þrjár nýjar rennibrautir. Ein er löng og þar næst mikill
hraði og hún verður lengsta braut landsins, önnur er svokölluð trekt
og er aðeins styttri og svo kemur ný barnarennibraut. Einnig kemur
nýr heitur pottur og vaðlaug ásamt endurbótum á sundlaugarsvæði.
En akkúrat þessa dagana hlakka ég til að fylgjast með heimsmeist-
aramóti kvenna í íshokkíi sem hefst 27. febrúar í Skautahöllinni á
Akureyri. Mér finnst frábært að fá mót sem þetta í bæinn minn og
gaman að sjá hvernig bæjarbragurinn breytist meðan á því stendur.“
Ingibjörg starfar einnig sem forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar-
innar í Eyjafjarðarsveit, en hún sér um sundlaugina, tjaldstæðið og
íþróttahúsið sem er í Hrafnagili. „Aðsóknin er alltaf að aukast hjá
okkur, bæði í sundlaugina og á tjaldsvæðið. Ungmennafélagið í Eyja-
fjarðarsveit, Samherjar, bjóða upp á fjöldann allan af íþróttum í
íþróttahúsinu auk þess sem við erum búin að skrifa undir samning við
landlækni um Heilsueflandi samfélag í Eyjafjarðarsveit og erum að
vinna í því á fullu.“
Sambýlismaður Ingibjargar er Sigurjón Karel Rafnsson, sölustjóri
hjá Netkerfum. Samtals eiga þau sex börn og eru þau í aldursröð
Arna Ýr, f. 1997, Ragnar Ágúst, f. 1998, Andrea Björk, f. 1999, Stefán
Daði, f. 2003, Ólöf Kristín, f. 2005 Eydís Arna 2008.
„Ég ætla að njóta þess að vera með fjölskyldu og vinum í dag en það
verður haldið upp á afmælið síðar.“
Bæjarfulltrúinn Ingibjörg fyrir framan sundlaugina á Akureyri.
Spennt fyrir HM í
íshokkíi kvenna
Ingibjörg Ólöf Isaksen er fertug í dag
E
yvindur Erlendsson
fæddist í Grindavík
14.2. 1937. Hann
stundaði nám við Iðn-
skólann á Selfossi og
lauk þaðan sveinsprófi í hús-
gagnasmíði 1959, stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík
1960, stundaði nám við Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins til 1962 og
lauk BA-prófi í leikstjórn frá Leik-
listarháskólanum í Moskvu 1967.
Eyvindur hefur verið sjálfstætt
starfandi leikstjóri, leikari, rithöf-
undur, þýðandi, gagnrýnandi,
myndlistarmaður, trésmiður og
bóndi. Hann starfaði hjá Teatr
Sovré- mennik í Moskvu 1967, var
leikstjóri hjá áhugamanna-
leikhópnum Grímu 1966-68 og hjá
Leiksmiðjunni 1967-68, starfaði við
Þjóðleikhúsið af og til frá 1968 og
Eyvindur Erlendsson leikstjóri – 80 ára
Í Vigelandsparken í Ósló Eyvindur, ásamt Rún og Reyni og sonarsonunum Erlendi, Pálma, Halldóri og Eyþóri.
Lífskúnstner og kátur
þúsundþjalasmiður
Skírnarveisla 1960 Sjöfn og Eyvindur, Ásta Guðrún og Heiðrún Dóra.
Reykjavík Adrían Leví
Björnsson fæddist 23.
febrúar 2016 kl. 2.48.
Hann vó 3.420 g og var
52 cm langur. For-
eldrar hans eru
Rebekka Þórisdóttir
og Björn Clifford Alex-
andersson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Bíla- og vélavörur
...sem þola álagið!
Það borgar sig
að nota það besta!
Viftur
HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir
Stýrisendar
og spindilkúlurViftu- og tímareimar
Kúplingar- og höggdeyfar
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is