Freyr - 01.08.2006, Blaðsíða 19
NÝJA SVÍNAHÚSIÐ
í sláturhús, en þurfi í rauninni aldrei að fara til
baka innan byggingarinnar sjálfrar eða á milli
húsalengja. Annað gildir um gylturnar sem
óhjákvæmilega verða að flytjast frá gotdeild-
um yfir í geldstöðu- og tilhleypingahús eftir
því sem við á, þó allt innan sömu húsalengju.
Gyltan og grísir hennar eru fyrstu þrjátíu
dagana frá goti höfð í gotstíu áður en fært er
frá gyltunni og smágrísunum komið fyrir í
samnefndri deild. í smágrísadeildinni eru þeir
til ellefu vikna aldurs. Að þeim tíma slepptum
eru eldisgrísirnir fluttir í eldisdeild hvar þeir
verja tímanum fram að slátrun eða í um tólf
vikur. Almennt er grísum slátrað þegar þeir
hafa náð 165-170 daga aldri.
Á Brúarlandi er að jafnaði fært frá tíu til ell-
efu gyltum hálfsmánaðarlega og er stærð
deildanna miðuð við að geta tekið við fjölda
grísa undan þeim fjölda gyltna. Sem fyrr seg-
ir eru herbergin sótthreinsuð á milli flutninga.
FÓÐRIÐ BLANDAÐ Á STAÐNUM
Allt fóður er blandað á búinu og eru eldis-
svínin og gylturnar fóðraðar á votfóðri en
smágrísirnir fé þurrfóður á mjólkurskeiðinu
og til ellefu vikna aldurs. Öll fóðurgjöf er
tölvustýrð en þó er smágrísum gefið hand-
virkt fyrst eftir fráfærur.
HRÖÐÞRÓUN
Árið 1991 þegar Guðbrandur byggði þann
hluta vestari húsalengjunnar sem nú hýsir
eldisgrísi stækkaði hann búið í 75 gyltur. Á
þeim tíma taldist Brúarlandsbúið vera með
stærri svínabúum á landinu. Þróunin í grein-
inni hefur verið gífurleg undanfarin ár. Bú-
um hefur fækkað og þau stækkað hlutfalls-
lega meira en gerst hefur í öðrum búgrein-
um á sama tíma. Búið á Brúarlandi á Mýrum
telst því í dag vera tæplega meðalstórt
svínabú á íslenskan mælikvarða.
Á myndinni má sjá gölt sem er blanda af land og Duroc-kyni
tiihleypingarstíu. Til hliðar við göltinn bíður gyltan
Byggingarlýsing
Geldstöðu- og tilhleypingahús á Brúarlandi
á Mýrum. Stærð 292,1 m2, rúmmál 1.051,6
m3. Húsið er teiknað af Byggingaþjónustu
Bændasamtaka íslands eftir frumteikningu
Hans Hojer Staldbyg a/s í Danmörku. Út-
veggir eru úr steinsteyptum einingum frá
Loftorku ehf. í Borgarnesi. Einangrun í út-
veggjum er 100 mm frauðplast. Botn flóra
og gólfplata er steypt á staðnum. Stein-
rimlar eru yfir flórum og í þeim svokallað
sogflórakerfi. ( þaki eru límtréssperrur,
langbönd úr límtré og yleiningar (ÞV-107)
frá Límtré-Vírneti ehf. ( gluggum er tvöfalt
gler og eru gluggarnir opnanlegir til neyð-
arloftræstingar. Tölvustýrt loftræstikerfi frá
Turbovent með inn- og útblæstri í þaki.
Innréttingarnar í byggingunni eru danskar
að uppruna (Akofunki), fluttar inn af Lif-
landi ehf. fré Hans Hojer Staldbyg a/s í
Danmörku.
Samhliða byggingunni var reist tengihús
við eldri byggingu sem er 40,6 m2 (129,3
m3). ( því er hreinlætisaðstaða og aðstaða
til fataskipta, sæðisblöndunar og sótt-
hreinsunar en húsið á jafnframt að vera
inngangur inn í gripahúsin. Veggir og þak
tengibyggingar eru úr sömu efnum og í
aðalbyggingunni.
FREYR 08 2006
19