Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2006, Síða 23

Freyr - 01.09.2006, Síða 23
FÓÐRUN metnir, mældir og stigaðir og einnig V-flokks- skrokkarnir, sem voru þíddir upp til saman- burðarmats. Á mynd 3 má sjá muninn á fall- þunga, síðufitu og innanmör eftir skrokkum og sker B-hópurinn sig nokkuð úr. UMRÆÐA Ljóst var að lokinni tilrauninni að um veru- lega aukningu í átgetu og orkunýtingu er að ræða af köggluninni. Út frá niðurstöð- unum má leiða að því sterk rök að séu smálömb í rýrari kantinum, sem varla eru slátrunarhæf að hausti, tekin snemma á hús og fóðruð á 300-600 g af heyköggl- um og góðu heyi að vild í 2-2,5 mánuði borgi vaxtarauki eldisins kostnaðinn af köggluninni og að ullarverðið verði umbun fyrir vinnuna. Er þá miðað við að svipaðar Ivilnanir fáist fyrir slátrun á þessum tíma og verið hafa. Miðað við eðlilega efnasamsetningu hrá- efnisins á að vera hverfandi þörf á öðru viðbótarfóðri en steinefnum, sem hæglega má blanda í kögglana um leið og kögglað er. Getur þetta verið mikilvægt atriði þar sem nokkur hætta er á að einkum fiski- mjöl í eldisfóðri geti haft neikvæð áhrif á bragðgæði kjötsins. Þá er einnig kostur að fóðrið sé að öðru jöfnu sem þurrast þegar áhrif á bragðgæði eru annars vegar, en góð loftræsting er þeim mun nauðsynlegri sem fóðrið er blautara og ríkara að vannýttu próteini (PBV), sem skapar stækjuloft. Þetta síðastnefnda minnkar mjög með þurrefnis- stigi fóðurs og enn meira við kögglun, þar sem hinn nýtanlegi hluti próteinsins (AAT) eykst þá að sama skapi og minnkar mjög líkur á að þörf sé á viðbótarpróteinfóðri eins og fiskimjöli. Það, ásamt auknu fóðrun- arvirði orku, gerir allt aukafóður fyrir utan steinefni óþarft að mestu eða öllu leyti. Mik- ilvægt er að hafa í huga, eins og forðum gerðist með eldi lamba á grænfóðri, að það þarf ekki marga, sem ekki kunna til verka til að koma óorði á alla slíka framleiðslu. Fjölmargar tilraunir með áhrif slíkrar fóð- urvinnslu hafa leitt í Ijós að virðisaukinn af henni fyrir jórturdýr sé þeim mun meiri sem gripir eru minni og yngri að árum og ættu ung smálömb í léttari kantinum að vera einna best til slíks fallin. Þá er það marg- reynt, ekki síst hér á landi, að íblandaðir heykögglar eftir þörfum hafa reynst mjög gott fóður handa ám og kúm um burð, ekki síst heilsufarslega, meðal annars í gegnum jákvæð áhrif á vambarstarfsemi og efna- skiptaferilinn í kjölfarið. Að gefnu tilefni er rétt að taka fram í þessu sambandi að ætli menn sér að nota heyköggla að meira eða minna leyti, er mikilvægt að venja gripi á þá í tíma, eins og gert er með annað fóður og þykir þá ekkert tiltökumál. Taka skal fram að í ráði er að tengja þess- ar niðurstöður við tilraunir svipaðs eðlis, en þó miklu nákvæmari og umfangsmeiri, þar sem öll lömbin voru einstaklingsfóðruð og orkugreining gerð á vefjum lambanna að lokinni slátrun, auk þess sem raunverulegur meltanleiki fóðursins var mældur, svo að eitthvað sé nefnt. Af ýmsum ástæðum, sem ekki verða tíundaðar hér, hefur dregist þar til nú að ráðast í endanlegt uppgjör þessara tilrauna. Það er nú komið allvel á veg og er meiningin að gera þeim, ásamt tilrauninni á Vörðubrún, eins góð skil og unnt er, þegar allar niðurstöður liggja fyrir. Stefnt er að því að það geti orðið, í samstarfi við fagfólk hjá Landbúnaðarháskóla Islands m.a. á Fræða- þingi landbúnaðarins 2007. Mælt var með þessu verkefni af Fagráði f sauðfjárrækt 2004 og hefur það hlotið eftir- farandi þrjá beina styrki: Frá Framkvæmda- nefnd búvörusamninga kr. 1.000.000, Atvinnuþróunarsjóði Austurlands kr. 400.000 og frá Norðlenska kr. 200.000. Þetta er hér með vel þakkað og einnig fá þakkir þeir sem meira og minna lögðu fram vinnu og aðstöðu og er sérstök ástæða til að nefna þar til Lárus Dvalinsson og Stein- unni V. Snædal, bændum á Vörðubrún, en þau sýndu mikinn dugnað og þolgæði við umönnun og fóðrun lambanna. Auk þess má nefna LBHÍ og BsA, sem lagt hafa fram ákveðið mótframlag að ógleymdum Stefáni Þórðarsyni í Teigi, sem með samstæðu sinni annaðist keykögglagerðina af lipurð og dugnaði. FREYR 09 2006

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.