Freyr - 01.09.2006, Qupperneq 31
SVINARÆKT
Tafla 3. Framleiðsla og sala á svínakjöti 2001-2005
Framleiðsla kjöt, kg Sala kjöt, kg Útflutningur kg Sala kjöts á íbúa, kg
2001 5.283.517 5.280.744 0 18,5
2002 6.010.933 5.777.444 173.695 20,1
2003 6.204.949 5.976.350 233.526 20,6
2004 5.597.498 5.475.074 123.712 18,7
2005 5.299.585 5.300.133 0 17,9
Fallið hefur verið frá því fyrirkomulagi að
selja blendingsgyltur frá sérstöku svínabúi
sem ræktaði þær undan dýrum frá Hrísey.
Með þessu móti taka bændur eingöngu dýr
inn á sín bú frá Hrísey, sem er kostur. Nýja fyrir-
komulagið gerir hins vegar þá kröfu til bænda
að vel sé haldið utan um hverja rasa fyrir sig
og að skipulag tilhleypinga/sæðinga sé rétt.
Heimasæðingar voru stundaðar áfram
á svínabúunum. Veruleg hagræðing á sér
stað með þessu móti. Bændur taka sjálfir
sæði úr göltunum, þynna það og skipta
í allt að 20-30 skammta. Gölturinn nýtist
mun betur með þessum hætti og hentar
mjög vel að stunda heimasæðingar í hóp-
rekstrarfyrirkomulagi nútímasvínabúskapar.
FRAMLEIÐSLA OG SALA
Árið 2005 var framleiðsla 2,75% minni en
árið 2004. Miðað við árið 2000 hefur fram-
leiðsla svínakjöts aukist um rösklega 500
tonn eða 10,5%. Alls var slátrað 71.452
svínum, þaraf voru 70.361 grísir. Meðalfall-
þungi grísa var 73,8 kg.
Sala svínakjöts árið 2005 var 5.300 tonn
eða 23,3% af heildarkjötsölu í landinu.
Þetta er 3,19% samdráttur frá árinu 2005.
Miðað við árið 2000 hefur sala svínakjöts
aukist um 508 tonn eða 10,6%.
Tafla 3 sýnir framleiðslu og sölu svínakjöts
2001-2005. Allt svínakjöt er selt á innlend-
um markaði og nær allt ferskt. Birgðahald
er því yfirleitt mjög lítið.
VERÐLAGSMÁL
Þróun verðs til svínakjötsframleiðenda er
sýnd í töflu 4. Verð á svínakjöti til framleið-
enda hækkaði nokkuð á árinu 2005. Margir
framleiðendur eiga þó talsvert í land með
að ná sér eftir miklar verðlækkanir og átök
á kjötmarkaði á slðari hluta ársins 2002 og
á árinu 2003.
Tafla 4. Þróun framleiðendaverðs fyrir
svínakjöt 2001-2005
Kjöt, meðal- verð ársins kr. pr. kg Kjöt, verð- lag 2005 kr. pr. kg
2001 223 256,2
2002 182 199,6
2003 140 150,3
2004 208 216,4
2005 255 255,0
FREYR 09 2006
31