Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.2006, Side 33

Freyr - 01.09.2006, Side 33
SAUÐFJÁRRÆKT DJÚPFRYST SÆÐI Eins og fram kemur var notkun á djúpfrystu sæði heldur minni en árið áður. Því miður liggja ekki enn fyrir neinar tölur um árangur þeirra sæðinga en fengist hafa, líkt og áður, upplýsingar um breytilegan árangur. Það er Ijóst að notkun djúpfrysta sæðisins verður enn að líta á sem þróunarstarf. Flest bendir til að þessi aðferð muni ekki leysa ferska sæðið af hólmi. Engu að stður er mikilvægt að þróa þessa tækni enn frekar þannig að hún geti orðið raunhæfur valkostur fyrir ákveðinn hóp bænda. Það er ef til vill fyrst og fremst fyrir tvo hópa sem notkun frysta sæðisins gæti verið áhugaverður valkostur. Það er á svæðum þar sem flutningar eru enn ótryggir. Þar er óneitanlega öryggi fólg- ið í því að hafa sæðið tiltækt strax við byrjun sæðingavertfðar á hverju ári. I öðru lagi eru það bú þar sem veruleg áhersla er lögð á val á tilteknum hrútum til notkunar. Það er augljóst mál að stöðvarnar hafa margfalda möguleika á að sinna slíkum óskum með notkun á djúpfrystu sæði. Erfitt er að anna eftirspurn á fersku sæði þegar ásóknin í einstaka hrúta er ef til vill tvöfalt eða þrefalt meiri en líffræðilegir möguleikar hrútsins leyfa. Að síðustu er ástæða til að benda á að þörfum þeirra sem eru að sækjast eftir sérstökum eiginleikum (forystu, ferhyrndu, frjósemiserfðavísum, ákveðnum litum) verð- ur í framtíðinni auðveldast að sinna með notkun á djúpfrystu sæði. MOLAR Salmonella og hamingjuhænur Margir hafa spurt sig hvort lífræn ræktun á hænum eða öðrum búfénaði komi niður á heilsufari þeirra þar sem hefðbundinnar lyfjagjafar nýtur ekki við. Til þess að finna svar við hluta af þessari spurningu könnuðu bandarískir búvísindamenn málið með því að gera samanburð á magni salmonella-bakt- ería í lífrænt ræktuðum hamingjuhænum og hænum sem aldar eru í húsum. Með hamingjuhænum er átt við þá fugla sem fá að koma undir bert loft og ganga lausir á afmörkuðum svæðum. Bændur sem stunda lífræna framleiðslu haga fuglabúskap sfnum gjarnan með þessum hætti. [ Bandaríkjunum er hlutfall hænsna sem alast upp við það frelsi að geta valsað um landareign bóndans innan við 1 % af heildarframleiðslunni sem nemur milljörðum fugla. Verð á lífrænum kjúklingi er töluvert hærra en á þeim hefð- bundna. Salmonellu-smit í matvöru veldur um 40 þúsund alvarlegum matareitrunartilfellum á ári í Bandaríkjunum. Þar sem fjölmörg tilfelli eru væg og koma ekki inn á borð sjúkrastofn- ana er talið að þessi tala sé mun hærri. Af 110 hænum sem kannaðar voru á þremur lífrænum búum reyndust 25% vera smituð af salmonellu. Það er aðeins örlítið hærra hlutfall en á kjúklingabúum þarsem hænurn- ar eru lokaðar inni. Á íslandi hefur náðst góður árangur í bar- áttunni við salmonellu í alifuglaræktinni. Árið 2005 greindist engin salmonella í alifuglum, hvorki við eldi né slátrun. Heildarfjöldi sýna sem tekin eru árlega vegna eftirlits með þessum vágesti er um 79.600. Árið 1993 voru tæp 15% kjúklingaeldishópa smituð af salmonellu en markvissar aðgerðir komu hlutfallinu niður í 0,5% árið 1997. Síðan þá hefur hlutfallið ætíð verið undir einu prósenti og sum árin hefur ekkert mælst. Heimild: Vefur Agricultural Research Serv- ice, www.ars.usda.gov og Embætti yfirdýra- læknis. FREYR 09 2006

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.