Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 9 4 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 4 . d e s e M b e r 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Þorgerður Katrín skrifar
um kapphlaupið við tímann í
loftslagsmálum. 28
lÍFið Fólk rifjar upp bestu og
verstu jólagjafir sem það hefur
fengið. 74
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
D A G A R
TIL JÓLA
10
O P I Ð T I L 2 2 Í K V Ö L D
12 MANNA
ÁSAMT FYLGIHLUTUM
MIKIÐ ÚRVAL
VERÐ FRÁ KR. 24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
lögregluMál Anna Katrín Snorra-
dóttir, sem lagði fram kæru gegn
Robert Downey vegna kynferðis-
brota 5. júlí í sumar, bíður enn
niðurstöðu lögreglu. Mál hennar
er nú komið á borð ákærusviðs þar
sem meðal annars er skoðað hvort
mál hennar teljist fyrnt. Hún var
upplýst um framgang málsins og
rannsókn lögreglu í gær og fékk þá
að vita að öllum gögnum úr máli
Roberts Downey hafi verið eytt. Það
sé bókað hjá lögreglunni á Suður-
nesjum þann 24. febrúar árið 2015.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
voru kynferðisbrot Roberts Downey
í upphafi rannsökuð af lögreglunni
í Keflavík á sínum tíma, nú lög-
reglunni á Suðurnesjum. Tímabilið
sem um ræðir eru árin 2001 til 2004.
Réttargæslumanni Önnu Katr-
ínar, Steinunni Guðbjartsdóttur
hrl., kemur á óvart að umræddum
gögnum hafi verið eytt. Skýra þurfi
ástæðu þeirrar ákvörðunar og heim-
ild fyrir eyðingu gagnanna á þeim
tíma sem um ræðir.
Önnu Katrínu var tjáð í sumar
þegar hún lagði fram kæru að mögu-
leiki væri á því að gögnin væru týnd
eða skemmd.
Að sögn Önnu Katrínar er að finna
í gögnunum samtöl við þær stúlkur
sem Robert hafði samskipti við í
gegnum tölvu og myndir af þeim.
„Ég tel allar líkur á því að þar hafi
verið bæði samtöl sem hann átti
við mig frá því ég var 14 til 17
ára og myndir sem ég hafði sent
honum af mér á því tímabili,“
segir Anna Katrín. Hún hafi treyst
á að þessi gögn væru til þegar hún
lagði fram kæru. Það hafi verið
henni mikið áfall að heyra að gögn-
in gætu mögulega verið týnd eða
skemmd.
„Það er enn meira áfall fyrir mig
að fá það staðfest að gögnunum hafi
verið eytt og engin haldbær ástæða
gefin fyrir því nema að það sé svo
langt síðan dæmt var í málinu og
að í gögnunum gætu verið við-
kvæmar upplýsingar um aðra þar
sem Robert var lögfræðingur. Ég er
miður mín og trúi því ekki að þetta
sé í lagi. Er í alvöru ekki mikilvægara
að tryggja rétt brotaþola heldur en
að varðveita lögfræðigögn? Málið er
ekki fyrnt. Það eru þrettán ár síðan
hann braut á mér. Það er fáránlegt
að áður en fyrningarfrestur er runn-
inn út hafi gögnum í málinu verið
eytt,“ segir Anna Katrín.
– kbg / sjá síðu 6
Gögnum um mál Roberts Downey eytt
Anna Katrín Snorradóttir, sem kærði Robert Downey í sumar, hefur verið upplýst um að gögnum sem tengjast máli hennar hafi verið
eytt. Það var bókað hjá lögreglunni á Suðurnesjum í febrúar 2015. Mál hennar er á borði ákærusviðs og þar metið hvort það er fyrnt.
kjaraMál Viðræður flugvirkja við
Samtök atvinnulífsins (SA) halda
áfram í dag. Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdastjóri
SA, segir að viðræður hafi mjakast
áfram á fundi í gær. „Tíminn er á
þrotum og það dregur að úrslita-
stund,“ segir Halldór.
Flugvirkjar hjá Icelandair hafa
boðað til ótímabundins verkfalls
frá og með klukkan sex næstkom-
andi sunnudagsmorgun. Talið er að
verkfallið muni hafa áhrif á um tíu
þúsund farþega á dag en nærri þrjú
hundruð flugvirkjar starfa nú hjá
flugfélaginu. – hae
Mjakast áfram í
viðræðunum
Sænska félagið á Íslandi hélt Lúsíuhátíð í Seltjarnarneskirkju í gær. Hátíðin er alltaf haldin þann 13. desember í nafni heilagrar Lúsíu en var fyrst haldin í Värmland í Svíþjóð á átjándu öld
áður en hún breiddist út um alla Svíþjóð og Norðurlönd. Á Íslandi hefur Sænska félagið staðið að hátíðinni frá 1954 og haldið tónleika í tilefni hátíðarinnar frá 1991. Fréttablaðið/Eyþór
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-1
E
7
4
1
E
7
C
-1
D
3
8
1
E
7
C
-1
B
F
C
1
E
7
C
-1
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K