Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 6
Opið virka daga 9-18
Alltaf opið á
www.boksala.is
Háskólatorg s. 5-700-777
Jólabækurnar
fást hjá okkur!
Opið um helgina
16. desember 12 - 16
17. desember 12 - 16
og á Þorláksmessu frá 10 - 18.
Fáðu
gjafirnar
sendar heim
á elko.is
Sakamál Anna Katrín Snorradóttir,
sem lagði fram kæru gegn Roberts
Downey vegna kynferðisbrota 5.
júlí í sumar, bíður enn eftir niður-
stöðu lögreglu. Mál hennar er nú
komið á borð ákærusviðs þar sem
meðal annars er skoðað hvort mál
hennar teljist fyrnt. Hún var upplýst
um framgang málsins og rannsókn
lögreglu í gær og fékk þá að vita
að öllum gögnum úr máli Roberts
Downey hafði verið eytt. Það sé
bókað hjá lögreglunni á Suður-
nesjum þann 24. febrúar 2015.
„Þegar ég lagði fram kæru í sumar
spurði lögreglumaðurinn mig hvort
ég ætti einhver gögn til að styðja
mál mitt. Ég greindi frá því að á
sama tíma og hann hefði brotið
á mér hefði hann einnig brotið á
öðrum stelpum. Gögn um þau brot
hefðu verið gerð upptæk á heimili
hans. Þeirra á meðal minnisbók
með nöfnum barnungra stúlkna og
tölvugögn. Ég sagði við lögreglu-
manninn að ég væri 99 prósent viss
um að í þessum gögnum væri hægt
að finna sönnun fyrir brotum gegn
mér líka. Hann sagði mér þá strax að
það væri möguleiki á því að gögnin
væru týnd eða skemmd,“ segir Anna
Katrín.
Að sögn Önnu Katrínar er einn-
ig að finna í gögnunum samtöl við
þær stúlkur sem Robert hafði sam-
skipti við í gegnum tölvu og myndir
af þeim.
„Ég tel allar líkur á því að þar hafi
verið bæði samtöl sem hann átti
við mig frá því ég var 14 til 17 ára og
myndir sem ég hafði sent honum
af mér á því tímabili,“ segir Anna
Katrín. Hún hafi treyst á að þessi
gögn væru til þegar hún lagði fram
kæru. Það hafi verið henni mikið
áfall að heyra að gögnin gætu mögu-
lega verið týnd eða skemmd.
„Það er enn meira áfall fyrir mig
að fá það staðfest að gögnunum
Ákærusvið skoðar hvort málið sé fyrnt
Önnu Katrínu Snorradóttur, sem kærði Robert Downey í sumar fyrir kynferðisbrot, hefur verið tjáð að gögnum sem tengjast máli
hennar hafi verið eytt. Það sé bókað hjá lögreglunni á Suðurnesjum í febrúar 2015. Mál hennar er á borði ákærusviðs.
Nína Rún, Glódís Tara, Halla Ólöf og Anna Katrín lengst til hægri eru allar þolendur Roberts Downey og hittust fyrst
allar saman í nóvember. FRéTTAblAðið/STeFáN
Dómur Héraðsdóms
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
frá 2007 kemur fram að Róbert
hafi nýtt sér yfirburði sína til að
tæla fjórar stúlkur, þrjár 15 ára og
eina 14 ára gamla, með peninga-
greiðslum og blekkingum.
Komst hann í samband við þær
með blekkingum, og þóttist hann
til að mynda vera 17 ára gamall
táningspiltur að nafni Rikki í sam-
skiptum við eina þeirra í gegnum
netið.
Þá hafi hann í 15 skipti tælt
aðra stúlku, sem þá var 15 ára,
með peningagreiðslum og blekk-
ingum til þess að hafa við hann
kynferðismök í bifreið á ýmsum
stöðum í Reykjavík.
hafði verið eytt og engin haldbær
ástæða gefin fyrir því nema að það
sé svo langt síðan dæmt var í málinu
og að í gögnunum gætu verið við-
kvæmar upplýsingar um aðra þar
sem Robert var lögfræðingur. Ég er
miður mín og trúi því ekki að þetta
sé í lagi. Er í alvöru ekki mikilvægara
að tryggja rétt brotaþola heldur en
að varðveita lögfræðigögn? Málið er
ekki fyrnt. Það eru þrettán ár síðan
hann braut á mér. Það er fáránlegt
að áður en fyrningarfrestur er runn-
inn út sé gögnum í málinu eytt,“
segir Anna Katrín.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
voru kynferðisbrot Roberts Downey
í upphafi rannsökuð af lögreglunni
í Keflavík – nú lögreglunni á Suður-
nesjum – á sínum tíma . Tímabilið
sem um ræðir eru árin 2001 til 2004.
Réttargæslumanni Önnu Katr-
ínar, Steinunni Guðbjartsdóttur
hrl., kemur á óvart að umræddum
gögnum hafi verið eytt. Skýra þurfi
ástæðu þeirrar ákvörðunar og heim-
ild fyrir eyðingu gagnanna á þeim
tíma sem um ræðir.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Er í alvöru ekki
mikilvægara að
tryggja rétt brotaþola heldur
en að varðveita lögfræði-
gögn? Málið er ekki fyrnt.
Anna Katrín
PaleStína Leiðtogar 57 múslima-
ríkja undirrituðu í gær yfirlýsingu
þar sem kallað var eftir því að
alþjóðasamfélagið viðurkenndi
sjálfstæði Palestínu og að hinn
hernumdi austurhluti Jerúsalem
væri höfuðborg ríkisins. Ákvörðun
Donalds Trump Bandaríkjaforseta
um að öll Jerúsalem væri viður-
kennd höfuðborg Ísraelsríkis var
jafnframt dæmd dauð og ómerk í
augum leiðtoganna 57.
Alls hafa 136 af 193 aðildarríkjum
Sameinuðu þjóðanna viðurkennt
sjálfstæði Palestínu. Á meðal ríkja
sem ekki hafa gert það eru Ástralía,
Austurríki, Belgía, Danmörk, Finn-
land, Frakkland, Þýskaland, Bret-
land, Ísrael og Bandaríkin.
Á fundi leiðtoganna í gær sagði
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu,
að milliganga Bandaríkjanna um
friðarviðræður Ísraela og Palestínu-
manna væri óásættanleg þar sem
Bandaríkjamenn stæðu með Ísra-
elum. Þess í stað ættu Sameinuðu
þjóðirnar að hafa milligöngu.
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, tók einnig til máls.
Sagðist hann lofa því að standa uppi
í hárinu á „bandarískum yfirgangs-
seggjum“.
Í yfirlýsingunni segir enn fremur
að Bandaríkin reyni vísvitandi að
grafa undan friði á svæðinu og með
gjörðum sínum ýti Bandaríkja-
menn undir öfgar og hryðjuverka-
starfsemi. Bandaríkjamenn verði
ábyrgir fyrir afleiðingum ákvörð-
unar sinnar, dragi þeir hana ekki til
baka. – þea
57 ríki vilja viðurkenningu Palestínu
Múslimar víða um heim hafa mótmælt ákvörðun Trumps. NoRDicpHoToS/AFp
136 af 193 aðildarríkjum
Sameinuðu þjóðanna
viðurkenna nú sjálfstæði
Palestínu.
1 4 . d e S e m b e r 2 0 1 7 F I m m t U d a G U r6 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-4
A
E
4
1
E
7
C
-4
9
A
8
1
E
7
C
-4
8
6
C
1
E
7
C
-4
7
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K