Fréttablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 22
Heilbrigðismál Stuttu eftir að leigu
samningur var undirritaður milli
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
(HSS) og einkafyrirtækisins Grav
itas um leigu á skurðstofu til að fram
kvæma magabands og magaerm
araðgerðir var samningnum breytt,
skyldur HSS auknar í samningnum
en leigan um leið lækkuð. Halldór
Jónsson, forstjóri HSS, segir þetta
eiga sér eðlilegar skýringar.
Einkafyrirtækið Gravitas fram
kvæmir magabands og magaerm
araðgerðir á einstaklingum í yfir
vigt. Voru gerðar um 330 aðgerðir á
síðasta ári og er fjöldinn í ár svipaður
að sögn Halldórs. Í upphaflegum
samningi greiddi fyrirtækið 100 þús
und krónur á aðgerð en fimm mán
uðum seinna hafði leigan lækkað í 80
þúsund á hverja aðgerð.
„Það er alveg ljóst að HSS er ekki
að greiða með þessari starfsemi,“
segir Halldór. „Þegar við skoðum
málið heildrænt erum við að nýta
þá aðstöðu sem fyrir er, fá fyrir það
greitt sem stendur fyllilega undir því
sem við setjum í samninginn. Einn
ig verður til fjármagn sem við getum
nýtt í annan rekstur. Því er það ábati
fyrir okkur hjá HSS. Vonir standa til
að þessi starfsemi eflist og eru við
ræður í gangi við fleiri einkaaðila um
að nýta aðstöðuna.“
Í maí árið 2015 er gerður samn
ingur við fyrirtækið þar sem skyldur
HSS eru listaðar. Auk aðgangs að
húsnæði er hjúkrunarfræðingur
HSS í vinnu á aðgerðadag sem sinnir
móttöku og útskrift allan daginn og
annar starfsmaður sinnir sótthreins
un. Auk þess skal HSS annast þrif á
skurðstofugangi en ekki á skurð
stofu. Greiddi Gravitas 100 þúsund
krónur til HSS fyrir hverja aðgerð.
Í október sama ár er samningur
inn framlengdur. Kemur þar fram
að fyrri samningur gildi en jafn
framt eru skyldur HSS auknar. Annar
hjúkrunarfræðingur er að störfum
frá HSS í fjóra tíma á dag og á heil
brigðisstofnunin að annast aukalega
þrif á skurðstofu fyrir hverja vinnu
lotu, útvega margnota tau á skurð
stofu, fatnað á sjúklinga og annast
þrif á því sem og að kaupa stærri
skjá á skurðstofu samkvæmt beiðni
Gravitas. Auk þess er verðið lækkað
niður í 80 þúsund krónur á hverja
skurðaðgerð.
Einstaklingar sem ákveða að
undirgangast þessar aðgerðir greiða
fyrirtækinu beint. Magabandsaðgerð
kostar rétt liðlega eina milljón króna.
Magaermaraðgerð kostar hálfa aðra
milljón króna. Ekki náðist í Auðun
Sigurðsson, eiganda Gravitas, við
vinnslu fréttarinnar.
sveinn@frettabladid.is
Juku eigin skyldur en
lækkuðu leiguverðið
Einkafyrirtæki leigir skurðstofu af Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um fimm daga í
mánuði og greiðir stofnuninni fyrir hverja aðgerð. Stuttu eftir að samningar voru
gerðir var samningur framlengdur, skyldur HSS auknar en leiguverð lækkað.
Heilbrigðisstofnunin hefur talsverðar tekjur af hverri framkvæmdri aðgerð fyrirtækisins Gravitas. Fréttablaðið/Pjetur
Viðskipti Af fimm þúsund viðskipta
vinum hýsingarfyrirtækisins 1984
ehf. hafa 12 sagt þjónustunni upp
síðan algert kerfishrun varð hjá fyrir
tækinu sem olli því að vefþjónusta
þúsunda fyrirtækja og einstaklinga
lá niðri um nokkurra daga skeið.
„Samstaða viðskiptavina með
okkur er nánast algjör sem við sjáum
til dæmis á því að allan tímann sem
þetta stóð héldu endurnýjanir á
hýsingaráskriftum áfram eins og
ekkert hefði í skorist, sem er bara
ótrúlegt,“ segir Mörður Ingólfsson,
framkvæmdastjóri 1984.
„Það eru allar deildarþjónust
ur komnar upp,“ segir Mörður,
aðspurður um gengi björgunar
aðgerða og biður hann viðskiptavini
að skoða vefi sína vel og tölvupóst og
láta vita strax ef eitthvað er ekki eins
og það á að vera.
Mörður segir þjónustuna sem
fyrirtækið veitir fagaðilum og þeim
sem starfa í kerfisstjórn hafa farið
verr út úr þessum hörmungum. „Við
skiptavinir með VPSþjónustu hafa
nú fengið nýja þjóna og við vinnum
að því að ná til baka eins miklu og
mögulegt er af þeim gögnum sem
voru á upprunalegu sýndarþjón
unum. Það er gríðarlegt verk.“
Orsakir kerfishrunsins eru enn
ókunnar og eru í rannsókn hjá starfs
mönnum Nýherja. Mörður segir sér
fræðinga telja ólíklegt að um árás eða
skemmdarverk hafi verið að ræða,
þótt ekkert sé útilokað um orsak
irnar. – aá
Segir aðeins tólf hafa farið frá 1984
Mörður ingólfsson er framkvæmdastjóri 1984 ehf. Fréttablaðið/antonbrink
Í upphaflegum samningi
greiddi fyrirtækið 100
þúsund krónur á aðgerð en
fimm mánuðum seinna
hafði leigan lækkað í 80
þúsund á hverja aðgerð
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A g U r22 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-5
4
C
4
1
E
7
C
-5
3
8
8
1
E
7
C
-5
2
4
C
1
E
7
C
-5
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K