Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 44

Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 44
KRINGLUNNI | 588 2300 krónur 7.995 Túnika krónur 9.495 Túnika 14. desember 20% af öllum kjólum Jóladagatal Ný sending 20% AFSLÁTTUR AF YFIRHÖFNUM Í JÓLAPAKKANN HENNAR Ég lít á líkamann sem striga sem hægt er að skreyta eins og lifandi listaverk,“ segir Hlíðar sem kominn er lengra en margur Íslendingurinn í að skreyta líkama sinn með götum, skurði og húðflúri. Hlíðar rekur klofna tunguna út úr sér. „Mig langaði að breyta til. Það eru allir með eðlilega tungu en mér finnst klofin tunga fallegri og skemmtilegri, og það getur verið gaman að láta fólki bregða með tungunni,“ segir Hlíðar og hlær. „Þetta er líkamsbreyting sem ég þarf ekki að sýna frekar en ég kýs sjálfur, en það fer um marga þegar þegar þeir sjá tunguna, enda ónáttúrulegt fyrir mannfólkið. Það býst enginn við að það komi tvær tungur út þegar þeir tala við mann- eskju, en þegar þeir eru komnir yfir mesta sjokkið þykir þeim þetta ýmist fyndið eða flott.“ Átta ár eru síðan Hlíðar fór til Noregs og lét kljúfa tunguna. „Þá var tekið sitt hvorum megin í tung- una, hún dregin pínulítið í sundur og skurðhnífur notaður til að skera í himnuna eftir henni miðri því tungan er gerð úr tveimur vöðvum sem eru aðskildir. Að lokum voru sárin saumuð svo tunguhlutarnir greru ekki saman aftur,“ útskýrir Hlíðar sem getur látið laga tunguna aftur ef vill. „Tungan grær fljótt og voru saum- arnir fjarlægðir á fjórða degi. Mér fannst skurðurinn alls ekki sár og aðgerðin tók fljótt af, eða um fimm- tán mínútur. Ég var hins vegar smá tíma að venjast þessu og bara það að borða reyndist vandasamt því maturinn fór á milli tunguhlutanna og tungan ýttist til hliðar, en þá var maður gjarn á að bíta í hana,“ segir Hlíðar, sem þykir bæði svalt og gaman að vera með klofna tungu. „En ég mæli ekki með þessu fyrir hvern sem er. Fólk þarf að búa sig undir að þetta sé verra og leiðinlegra en það heldur. Þetta er áreynsla á líkamann en skaðlaust og öðruvísi, án þess að vera ógeðs- legt,“ segir Hlíðar og vindur upp á tunguna, annan hlutann upp í loft og hinn niður. „Ég hef fremur stutta tungu og get því ekki gert eins miklar kúnstir með tungunni og þeir sem hafa lengri tungu en vegna þess að tungan samanstendur af tveimur vöðvum er hægt að hreyfa hana í sitt hvora áttina og upp og niður í sömu andrá, rétt eins og tvær hendur.“ Með geirvörtur í formalíni Hlíðar er fæddur og uppalinn á Egilsstöðum en flutti tíu ára suður á mölina. Hann segist hafa verið rólegt barn og ekki sýnt húðflúri né götun áhuga fyrr en á unglingsaldri. „Átján ára tók ég til óspilltra mál- anna og fékk mér „tunnel“ í eyrun og alltaf fleiri og fleiri, og það sama átti við um húðflúrin. Um leið og það fyrsta var komið vildi ég meira og nú er takmarkið að skreyta allan líkamann. Ég er þegar flúraður á öllum vinstri fæti sem er svartur með negatífum myndum þar sem húðliturinn skín í gegn. Ég vil vera þakinn flúrum en gera það rólega og almennilega, og hef afgerandi hugmyndir, enda gaman að gera eitthvað nýtt,“ segir Hlíðar sem er með stór tunnel í eyrnasneplum og minni tunnel í eyrnabrjóski. „Ég var líka með tunnel í nafla en fékk á mig heita súpu sem brenndi húðina af því og eftir stendur ör. Tvö göt voru sömuleiðis í geir- vörtunum en ég lét skera af mér geirvörturnar og er í staðinn með pínulítil ör á bringunni,“ segir Hlíðar sem fór í fjögurra tíma aðgerð til að fjarlægja geirvört- urnar og kirtla á bringunni til að fá ekki sýkingar. „Mér þóttu geirvörturnar ljótar og skelfilega óþægilegt ef til dæmis skyrta nuddaðist við þær eða önnur snerting. Fólki bregður rosa- lega að sjá mig geirvörtulausan en ekki síst ef það kemur heim og sér geirvörturnar sem ég geymi í formalíni uppi í skáp. Það spyr þá gjarnan hvort þetta séu hnetur í vökva en þegar ég svara að þetta séu geirvörturnar mínar fer ónot um það. Ég vildi þó eiga þær í stað þess að þær færu í ruslið, enda eru þær hluti af mér þótt þær séu alveg ónýtar.“ Hlíðar er líka með sílikonkúlur í viðbeini til að ýkja upp útlit þess, fimm kúlur sitt hvorum megin frá öxlum. „Mörgum bregður í brún við að sjá kúlurnar, sem og stór ör á bringunni eftir að ég lét húðfletta mig með skurðhníf til að fá fram stórar symmetrískar línur eins og á enninu,“ segir Hlíðar og vísar til ljósra rispna á enni og gagnaugum. „Upphaflega lét ég brennimerkja mynd á kjálkana en sárin greru svo vel að myndin hvarf. Því lét ég flúra rispur með hvítum lit í andlit mitt. Þær eru straumlínulagaðar og falla vel með formi andlitsins. Ég er þó iðulega inntur eftir því hvort ég hafi fengið hrífu í andlitið eða hvort vél hafi spænt upp húðina,“ segir Hlíðar og hlær. „Annars skipt- ist fólk í þrjár týpur; þessa sem fylgist með og þorir ekki að spyrja, þessa sem æðir í mann og spyr, og svo þá sem spyr hvað hafi eiginlega komið fyrir mig.“ Foreldrarnir fyrst í áfalli Fallegir, litríkir lokkar vekja athygli í götum í andliti Hlíðars. „Ég hef alltaf viljað hafa almennilegt og fallegt skart í götunum; ýmist úr handgerðu gleri eða títaníum. Mér finnst of mikil sóun að vera með járn í líkamanum og skarta þá bara járn- kúlum. Þetta þarf að vera fagurt,“ segir Hlíðar sem er rétt að byrja að skreyta líkama sinn. „Í febrúar verður haldið áfram að flúra frá fæti upp á maga og síðu. Það verður svört, symmetrísk geó- metría og flotterí sem mér þykir töff. Ég er opinn fyrir tækifærum til að gera meira sem skreytir skrokk- inn, en á sama tíma ana ég ekki út í neitt, kynni mér hlutina vel og fólkið sem gerir þetta, því ódýrt er ekki gott í þessu samhengi, né að vera snöggur að hlutunum.“ Hlíðar viðurkennir að foreldrum hans hafi brugðið þegar hann kom heim með klofna tungu. „Mömmu brá ótrúlega en pabbi var þó lengur að venjast götunum í andlitinu á mér. Þau voru í sirka mánuð í áfalli en höfðu skrifað þetta áhugamál mitt á unglingsár- in og að ég myndi svo hætta þessu. Þegar ég hætti ekki hafa þau vanist þessu og nú þykir pabba bara kúl þótt bætist við.“ Ástalífið hafi líka orðið skemmtilegra. „Fyrst eftir að ég var kominn með klofna tungu voru stelpurnar mjög hrifnar af því að prófa, sem er auðvitað bara gaman. Forvitnin var vakin og upplifunin önnur og öðruvísi.“ Ástalífið skemmtilegra Hlíðar segir sóun að skarta ekki fallegum lokkum í andlitsgötunum. MYND/STEFÁN Líkami og andlit Hlíðars Bergs er lista- verk í stöðugri mótun og vekur sann- arlega athygli og eftirtekt. Hann segir geirvörtur í formalíni og klofna tungu skjóta mörgum skelk í bringu. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Tungan samanstendur af tveimur vöðvum sem hægt er að snúa í sitt hvora áttina, eins og sjá má hér. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 C -6 D 7 4 1 E 7 C -6 C 3 8 1 E 7 C -6 A F C 1 E 7 C -6 9 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.