Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 82

Fréttablaðið - 14.12.2017, Page 82
Íslensk hönnu n & þjóðle gar vör ur fyrir alla fjö lskyldu na Landsli ðsbúni ngur Ís lands Lopavö rur Hálsme n og ar mbönd Slaufur Húfur o g trefla r Geysiv insælu tré-sólg leraugu n og mar gt marg t fleira. Laugavegur 8 Verið mee..lkomin Sk a r t g r i p a f y r i r t æ k i ð Orrifinn fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni ákváðu skart-gripahönnuðirnir Orri Finnbogason og Helga G. Friðriksdóttir að láta draum ræt- ast og smíða viðhafnarútgáfur af nokkrum gripum úr 18 karata gulli og þekja þá demöntum. „Okkur hefur svo ofboðslega lengi dreymt um að smíða meira úr gulli. En sökum kostnaðar þá hefur það ekki endilega alltaf verið snið- ugasta leiðin til að fara. En í tilefni af fimm ára afmælinu þá ákváðum við að taka þetta alla leið,“ útskýrir Helga sem viðurkennir að hráefnið í skartgripina hafi kostað sitt. „Maður náttúrulega svitnar þegar maður kaupir efnið og er hræddur um að setja sig á hausinn. Það er mjög óþægileg tilfinning,“ segir Helga og skellir upp úr. „Þetta er eitthvað sem ég hefði ekki treyst mér til að gera fyrr. Þegar við vorum að byrja að byggja fyrirtækið upp þá hefði maður ekki þorað að fjárfesta svona mikið í efniskaup.“ Eins mikið af demöntum og hægt er Beðin um að lýsa nýja skartinu nánar segir Helga: „Við völd- um þá skart- gripi frá okkur sem okkur hefur þótt standa upp úr á þess- um fimm árum. Og við tókum þá gripi og s m í ð u ð u m þá úr 18 karata gulli. Svo setjum vi ð b a ra e i n s mikið af demöntum og við getum í hvert og eitt stykki. Mest náðum við að setja 39 demanta í einn grip,“ segir Helga um nýja viðhafnar-skartið sem verður til í takmörkuðu upp- lagi núna fyrir jólin. Það verður svo afhjúpað í afmælisboði Orra- finn í kvöld. Þess má geta að Orri lærði dem- antaísetningu á sínum yngri árum í New York. „Okkur finnst þetta líka vera smá óður til fortíðar Orra sem vann við þetta í New York. Hann flutti þangað sem unglingur með ekkert nema bakpoka nánast og endaði nokkuð tilviljunarkennt á að vinna sem demantaísetjari hjá stóru demantafyrirtæki á Man- hattan. Það er því gaman að nýta þá dýrmætu reynslu og mikil for- réttindi að geta sett demanta í sjálf.“ gudnyhronn@365.is Svitnuðu við að kaupa efnið í gripina Orri og Helga afhjúpa nýju gripina í verslun sinni á Skólavörðustíg 17a í kvöld klukkan 17-20. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Demantar og 18 karata gull einkenna nýtt skart frá Orrafinn. Skartgripa- hönnuðurinn Helga G. Friðriksdóttir segir ákveðna áhættu fylgja því að vinna með svo dýrt efni en að nú sé rétti tíminn til að láta drauminn rætast. MeSt náðuM við að Setja 39 deManta í einn grip. 18 karata gull og demantar eru í aðalhlutverki í nýjustu línu Orrafinn. 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r70 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -5 9 B 4 1 E 7 C -5 8 7 8 1 E 7 C -5 7 3 C 1 E 7 C -5 6 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.