Fréttablaðið - 14.12.2017, Síða 86
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Bestu og verstu
jólagjafirnar
Nú styttist óðum
í jólin og eflaust
margir farnir að huga
að jólagjöfum fyrir
sína nánustu. Og svo
er bara að vona að
gjafirnar hitti í mark
hjá þeim sem fá þær.
Lífið fékk nokkra ein-
staklinga til að rifja
upp eftirminnilegar
gjafir, þær bestu og
verstu nánar tiltekið.
Séra Hildur Eir
Bolladóttir
Besta jólagjöfin er
án efa dúkka sem
ég fékk frá foreldrum
mínum þegar ég var
átta ára, hún var risastór og hlaut
nafnið Bolli. Síðar eignaðist ég
dreng sem heitir einmitt Bolli og er
risastór í dag, 192 cm á hæð, svo ég
lít svo á að þessi jólagjöf hafi haft
forspárgildi um framtíð mína. Ég
hef nú aldrei fengið ljóta jólagjöf
en ég man að þegar við maðurinn
minn vorum nýbyrjuð saman
rúmlega tvítug að aldri fengum við
alls konar hluti í framtíðarbúið í
jólagjöf, ég var ekkert að fíla það,
mig langaði bara að fá áfram bækur,
skart og snyrtidót eins og þegar ég
var einhleyp, þetta var alltof mikið
fullorðins fyrir mig.
FElix BErgSSon, lEikari
Ég hef nú eiginlega bara
fengið bestu jólagjafir og
erfitt að velja eina en ætli ég
segi ekki að það sem er mér
efst í hug er að ég fékk æðis-
legan frakka frá eiginmanni
mínum fyrir ári síðan. Frakkinn
er blár með rauðu í kraganum
og keyptur í uppáhalds-
búðinni okkar, Ganzo,
en hana má finna í París,
London og víðar. Ég hef ekki
haft undan að segja fólki hvaðan
frakkinn kemur og taka hrósi fyrir
hvað hann fer mér vel. Baldur er
mjög smekklegur þegar kemur að
því að velja á mig föt til gjafa.
Versta jólagjöfin var nú kannski
ekki svo slæm en sagan af henni er
skemmtileg.
Þannig var að þegar við bræð-
urnir, Þórir og ég, vorum fimm og
sjö ára ákvað ég að gefa honum for-
láta riffil í jólagjöf en riffilinn mátti
kaupa í Kaupfélagi Austur Húnvetn-
inga á Blönduósi. Ég gat ekki lýst
undrun minni þegar mamma kom
því þannig fyrir að við opnuðum
gjafirnar hvor frá öðrum á sama
tíma því að ég fékk nákvæm-
lega eins riffil.
Ég skildi ekkert í þessu
fyrr en mörgum árum síðar
þegar ég fattaði hlutverk
foreldra í því „að láta
hlutina gerast“ eins og
þeim hentaði. Við bræður
vorum alveg himin-
sælir með gjöfina hvor frá
öðrum og skutum hvor
annan ástúðlega í indíána-
leik í nokkur ár eftir það.guðrún óla JónaSdóttir,
Söngkona
Bestu jólagjafirnar eru
gjafirnar frá sonum
mínum, bæði þær sem þeir
hafa föndrað í leikskóla og
skóla og eins þær sem þeir
hafa valið sjálfir og keypt
handa mér í seinni tíð.
Það er eiginlega ekki
hægt að gera upp á
milli þeirra en mér þykir
óskaplega vænt um gler-
krukkuna sem þeir máluðu og fylltu
með jákvæðum staðreyndum um
mömmu sína og líka hálsmenið
með upphafsstafnum mínum.
Engin jólagjöf verið verst, en ein
sérstök frá ónefndum ættingja; lítið
box með nokkrum ólífupinnum.
Kæmi sér kannski vel að hafa það
í veskinu í dag en var ekki alveg
málið á þessum tíma þegar ég var
10 ára og borðaði ekki einu sinni
ólífur.
gErður kriStný,
ritHöFundur
Ein besta jólagjöfin var þegar ég
var 11 ára og fékk Þjóðsagnabækur
Sigurðar Nordal í jólagjöf frá for-
eldrum mínum. Mér fannst mjög
hátíðlegt að raða þessum þremur
fallegu bindum upp í hillu við
hliðina á Löbbu-, Kátu- og Liljubók-
unum. Á jólanótt lá ég í þjóðsög-
unum og sleppti draugunum
lausum í herberginu mínu. En
ekki man ég eftir því að neinn
hafi gefið mér vonda jólagjöf.
Allar hafa þær verið gefnar af
góðum hug og alltaf hefur verið
jafnspennandi að taka þær upp.
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r74 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
06.12.17 - 12.12.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Sönglögin okkar
Ýmsir höfundar
Saga Ástu
Jón Kalman Stefánsson
Myrkrið veit
Arnaldur Indriðason
Gatið
Yrsa Sigurðardóttir
Mistur
Ragnar Jónasson
Fuglar
Hjörleifur H. / Rán F.
Sakramentið
Ólafur Jóhann Ólafsson
Amma best
Gunnar Helgason
Þitt eigið ævintýri
Ævar Þór Benediktsson
Heima
Sólrún Diego
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-3
2
3
4
1
E
7
C
-3
0
F
8
1
E
7
C
-2
F
B
C
1
E
7
C
-2
E
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K