Morgunblaðið - 30.06.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Trítlað íSölden
Ötztal er einn fallegasti dalur austurrísku Alpanna og býður
hann upp á einstaka möguleika til gönguferða og útiveru. Á
þessu fallega alpasvæði má finna tignarlega tinda, tær vötn, ár
og skóga og er dalurinn innrammaður af 250 fjallstindum sem
ná upp fyrir 3.000 m hæð. Í þessum fallegu fjallasölum má svo
sannarlega upplifa ógleymanleg ævintýri jafnt sem slökun.
Verð: 189.800 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir2. - 9. september
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Unnið hefur verið að því síðustu
daga að moka og dæla seti og aur
úr farvegi Andakílsár í Borgarfirði.
Tilgangurinn er að hjálpa búsvæð-
um að jafna sig eftir umhverfis-
slysið sem varð í vor og hjálpa lax-
inum sem von er á út á sjó á næstu
dögum að finna sér skjól í ánni.
Slíkar aðgerðir eiga sér ekki for-
dæmi hér á landi.
Vélgrafa var notuð til að grafa
gróft set sem safnast hafði ofan á
eyri rétt neðan við stöðvarhús
virkjunarinnar. Vonast er til að
þetta verði til að flýta því að gamli
botninn komi fram. Þá var mokað
úr hyljum ofan til í ánni. Áætlað er
að nokkur hundruð rúmmetrum af
seti hafi verið mokað á land. Þá var
gerð tilraun með að dæla aur upp
úr hyl neðar í ánni og láta hann
setjast í stórum kerum.
Stjórnarmenn úr Veiðifélagi
Andakílsár sögðust ánægðir með
gröftinn en töldu að dælingin væri
ekki nógu afkastamikil, það er að
segja að það þyrfti stærri settjarnir
til að dæla aurblandaða vatninu í.
„Þetta er mjög stórt verkefni
sem þarf að vinna áfram. Mjög mik-
ið set er í ánni og við viljum sjá
hvað áin gerir sjálf,“ segir Sig-
urður Már Einarsson, fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun,
sem verið hefur Orku náttúrunnar
til ráðgjafar. Aðgerðum er að
mestu lokið í sumar en Sigurður
tekur fram að ef til vill þurfi að
hjálpa ánni eitthvað meira til að
hreinsa sig.
Áin er friðuð fyrir veiðum í sum-
ar en áætlað að taka mikið af klak-
fiski til að hægt sé að rækta seiði til
að sleppa í ána á árunum 2019 og
2020. Það á að vera mótvæg-
isaðgerð vegna þeirra seiða sem
drepist hafa í sumar.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nátthagahylur Tilraun var gerð með að dæla upp aurblönduðu vatni og láta það setjast til. Andakílsá Fulltrúar bænda, Orku náttúrunnar og verktakans meta árangur af dælingu úr ánni.
Búa til skjól fyrir laxinn sem er að koma
Seti og aur mokað og dælt upp úr Andakílsá til að hjálpa búsvæðum árinnar að jafna sig
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jóhannes Rúnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó bs, segir að auka
þurfi framboðið á strætisvagnaferðum
til að ná markmið-
um um fjölgun far-
þega. Rætt hafi
verið um að lengja
þjónustutíma og
auka tíðnina.
Samkvæmt
ferðavenjukönnun
Capacent Gallup
voru 4,5% og 4,8%
allra ferða á höfuð-
borgarsvæðinu
2011 og 2014 farnar með almennings-
samgöngum.
Haft var eftir Hrafnkeli Á. Proppé,
svæðisskipulagsstjóra Samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH),
í Morgunblaðinu í gær að ólíklegt sé að
því markmiði verði náð að árið 2022
verði 8-9% allra ferða á höfuðb.sv. með
almenningssamgöngum. Þær þurfi að
komast á annað stig til að raunhæft sé
að þær verði „alvöruvalkostur“.
Jóhannes Rúnar tekur undir þetta.
„Við erum að þokast í áttina. Þetta
er erfitt markmið. Til þess að ná fleiri
farþegum þurfum við að vera miklu
betri valkostur og auka tíðni ferða. Það
þýðir óhjákvæmilega aukinn kostnað.
Við stefnum þangað en þetta er hæg
þróun. Launakostnaður er langstærsti
liðurinn í svona rekstri. Það hafa orðið
umtalsverðar launabreytingar hjá
sveitarfélögum,“ segir hann.
Hlutur fargjalda í raun hærri
Áðurnefnt markmið var hluti af
samningi ríkis og sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu 2011 um eflingu al-
menningssamgangna á svæðinu.
Meðal annarra markmiða var að ár-
ið 2022 væru fargjöld orðin 40% af
rekstrarkostnaði. Fram kom í
Morgunblaðinu í gær að hlutur far-
gjalda af rekstrarkostnaði hefði verið
33% árið 2012 og 25% árið 2015.
Jóhannes Rúnar segir þetta ekki
rétt. Hér hafi verið miðað við allan
rekstrarkostnað, þ.m.t. vegna aksturs
fyrir fatlaða og á landsbyggðinni. Að
honum frátöldum hafi hlutur fargjalda
af rekstrarkostnaði Strætó á höfuð-
borgarsvæðinu verið 32,6% 2012 og
30,7% 2015. Hlutfallið lækkaði því.
Kostnaðurinn jókst um 37%
Samkvæmt tölum frá Strætó jókst
nettókostnaður hvers íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu af Strætó úr 12.976 kr.
2012 í 17.734 kr. 2015, eða um tæp 37%.
Jóhannes Rúnar segir það þekkt úr
samgöngufræðum að tímatöf sé milli
aukinna framlaga til almenningssam-
gangna og aukinnar notkunar á þeim.
„Fólk þarf að treysta þjónustunni og
venjast henni. Sjá að hún sé komin til
að vera, og gerast fastir áskrifendur.
Við sjáum einmitt fjölgun fastra áskrif-
enda,“ segir Jóhannes Rúnar.
Hann bindur vonir við að notkun
smáforrits Strætó muni fjölga farþeg-
um. Það hafi þegar laðað að nýja hópa.
Auka þarf framboðið
svo fleiri noti strætó
Frkvstj. Strætó segir aukin framlög munu skila sér síðar
Jóhannes R.
Svavarsson
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Samkvæmt samþykktum Viðreisnar
hefði átt að halda næsta landsþing
flokksins haustið 2018, en halda ber
þingið á tveggja
ára fresti. Bene-
dikt Jóhannes-
son, formaður
Viðreisnar, sagði
í samtali við
Morgunblaðið í
gær að ákveðin
umræða hefði far-
ið fram um að
flýta næsta lands-
þingi til næsta
hausts. Niðurstaðan hefði orðið sú að
halda næsta landsþing eftir áramót
en stór fundur yrði haldinn í haust
með helstu valdastofnunum flokks-
ins.
„Samkvæmt samþykktum Við-
reisnar á landsþing að fara fram á
tveggja ára fresti og hefði því átt að
halda næsta þing haustið 2018. Við
fórum yfir þetta á fundi okkar í apríl
og okkur fannst eðlilegt að lands-
þingið yrði haldið fyrr á árinu 2018, í
ljósi þess að það eru sveitarstjórnar-
kosningar næsta vor,“ sagði Bene-
dikt.
Hann segir að eftir það hafi komið
fram hugmyndir um að jafnvel væri
betra að flýta landsþinginu enn
meira og halda það í haust. Á
stjórnarfundi núna um miðjan júní
hafi niðurstaðan orðið sú að Viðreisn
héldi næsta landsþing sitt eftir ára-
mót, en í september yrði fundur þar
sem fulltrúaráð flokksins, þingflokk-
urinn og aðrir trúnaðarmenn legðu á
ráðin og undirbyggju starfið fram
undan, bæði hvað varðar þingstörf
og áherslur flokksins í sveitar-
stjórnarmálum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur ákveðin gagnrýni inn-
an Viðreisnar beinst að formannin-
um, sem þykir ekki vera nógu
skólaður í pólitík.
„Það getur vel verið að reynslu-
leysi Benedikts í pólitík komi fulloft í
ljós og hann hafi misstigið sig í yfir-
lýsingum, en mér finnst að hann
njóti ekki alveg sannmælis. Hann fer
í málin og vinnur þau af heilindum.
Ef honum verða á mistök er hann
mjög snöggur að leiðrétta þau og
biðjast afsökunar á fljótfærninni,“
segir flokksmaður sem kveðst mjög
ánægður með formann sinn.
Landsþing eftir áramót
Viðreisn flýtir þinginu vegna sveitarstjórnarkosninga
Benedikt
Jóhannesson
Seðlabankinn hefur undanfarna
viku í tvígang gripið inn í gjaldeyr-
ismarkaðinn með kaupum á krón-
um, þegar krónan var að veikjast,
líkt og greint var frá í frétt í Morg-
unblaðinu og ViðskiptaMogga í gær.
Benedikt Jóhannesson fjármála-
ráðherra gerir ekki athugasemdir
við þau inngrip, sem séu til þess að
draga úr óæskilega miklum sveiflum
á gjaldeyrismarkaði.
„Mér skilst að þetta sé mjög
grunnur markaður, þannig að um
leið og einhver hreyfir sig, í aðra
hvora áttina, þá hefur það mikil
áhrif á krónuna, til styrkingar eða
veikingar,“ sagði fjármálaráðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær, þeg-
ar hann var spurður álits á ofan-
greindum inngripum Seðlabankans
sem urðu til þess að krónan styrktist
um 1,1% en hafði veikst um 5% á ein-
um mánuði.
Benedikt kvaðst telja að inngrip
Seðlabankans miðuðust við
ákveðnar vinnureglur og bankinn
leitaðist við með svona krónu-
kaupum að draga úr óæskilega mikl-
um sveiflum á gjaldeyrismarkaði.
agnes@mbl.is
Markaðurinn
mjög grunnur