Morgunblaðið - 30.06.2017, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 30.06.2017, Blaðsíða 79
MENNING 79 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 með manni sem er nú látinn, J Dilla, en hann var fyrst og fremst takt- smiður,“ segir Hancock. Blaðamaður þykist heyra á máli Hancock að hann fylgdist vel með tónlist unga fólksins en Hancock svarar því til að hann hafi ekki fylgst nógu vel með á árum áður, hafi t.a.m. ekki þekkt til fyrrnefnds J Dilla á meðan hann var á lífi en kynnst verk- um hans seinna meir. Þannig hafi það verið með marga tónlistarmenn, m.a. Terrace Martin sem verður með hon- um á tónleikunum í Hörpu. Skarpari sýn –Þú hefur alltaf verið mjög opinn fyrir nýrri tækni og hljóðfærum og virðist vera tilraunagjarn og óhrædd- ur við að taka áhættu sem listamað- ur… „Það er í eðli mínu, þannig hef ég alltaf verið, alveg frá því ég var for- vitinn, lítill strákur. Þannig er ég ein- faldlega gerður,“ svarar Hancock. –Þú tókst upp búddatrú árið 1972 og í viðtölum hefur þú m.a. talað um tengsl trúarinnar við sköpunargáf- una. Varð einhvers konar breyting innra með þér eftir að þú gerðist búddatrúar, þ.e. breyting hvað sköp- unargáfuna varðar? „Ég varð víðsýnni. Með búddisma hef ég öðlast skarpari sýn á lífið og lífið er eldsneyti sköpunarinnar og sögunnar sem þú vilt segja þegar þú býrð til tónlist eða hvað sem er. Þess vegna er ég enn virkur í trúnni og hún blæs mér anda í brjóst,“ svarar Hancock. –Þar er kannski komin skýringin á því að þú ert enn í fullu fjöri sem listamaður, orðinn 77 ára? Hancock hlær og segist vissulega vera ungur í anda. ,,Fólk hefur sagt við mig að ég sé unglegur í útliti og tali og ég get ábyggilega þakkað það búddatrúnni. Hinn ungæðislegi andi býr í öllum en hann getur legið í dvala og með því að stunda búdd- isma er hægt að vekja hann úr þeim dvala,“ segir Hancock en bætir því við að minni hans hafi vissulega hrakað með árunum. Mistök að hægja á sér Blaðamaður segist sjálfur orðinn frekar minnislaus, þó að hann sé 33 árum yngri og Hancock hlær þá inni- lega. „Þú ert frekar ungur en þetta er kannski að byrja hjá þér núna,“ segir hann og hlær hjartanlega. „Einu sinni gat ég samið lag á nokkr- um sekúndum en það er miklu erf- iðara núna. En Wayne Shorter, orð- inn 83 ára, hefur ekki misst þann hæfileika, hann er eldri en ég en allt- af að semja tónlist. Mín mistök voru að hægja á mér,“ segir Hancock og bætir við að hann eigi stundum erfitt með að halda athyglinni við það sem hann sé að gera. Athyglin eigi það til að beinast að einhverju öðru. Hann hlær innilega að þessum athyglis- bresti. „Ég hef áhuga á öllu mögu- legu og sérstaklega nú á tímum mik- illa og hraðra tækniframfara. Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast sem vekur athygli mína og það er minn Akkillesarhæll, ef einhver er,“ segir Hancock, léttur í bragði. -Það er erfitt að hafa áhuga á hverju sem er? „Já!“ hrópar Hancock og skelli- hlær og blaðamaður getur ekki ann- að en hlegið með honum. Algengar stíflur –Kannski ertu nú þegar búinn að svara þessari spurningu en finnst þér þú enn eiga margt ókannað í listinni, er þörfin fyrir að fara ókunnar slóðir enn til staðar? „Já, heldur betur. Ef ég missi þá þörf einhvern daginn get ég bara pakkað saman og búið mig undir næsta líf.“ –Lendirðu stundum í því að sköp- unargáfan dragi sig í hlé, færðu list- sköpunarstíflu? „Það er alltaf að gerast!“ segir Hancock eldhress og bætir í þegar blaðamaður segir það óneitanlega létti fyrir aðra tónlistarmenn að vita af því að meistarar á borð við Herbie Hancock glími líka við stíflur. Og talandi um listræna sköpun, að hverju skyldi Hancock vera að vinna nú um stundir? „Ég hef verið að vinna að hljómplötu í yfir tvö ár og veit ekki enn hvenær hún verður gef- in út. Þetta gengur hægt því það koma margir að gerð hennar, mikill fjöldi ólíkra listamanna, ungir lista- menn frá mörgum löndum, frá ólík- um menningarsamfélögum og úr ólíkum áttum tónlistarlega séð,“ svarar hann. Árið 2010 sendi hann frá sér The Imagine Project, plötu með lögum eftir aðra tónlistarmenn, m.a. Bob Dylan og Peter Gabriel, og var hún tekin upp víða um lönd. Á plötunni mætast ólíkir menningar- og tónlist- arheimar, bæði í söng og hljóðfæra- leik, enda hugmynd Hancock að benda á mikilvægi friðar og sam- vinnu í heiminum og sýna hversu mögnuð listin getur orðið þegar svo ólíkir listamenn vinna saman að einu markmiði. Má sem dæmi nefna lag Johns Lennon, „Imagine“, sem er á plötunni flutt af kongóska tónlist- arhópnum Konono N°1, tónlistar- konunum Pink og India Arie frá Bandaríkjunum, enska söngvaranum Seal og landa hans og gítarleikara Jeff Beck og malísku tónlistar- konunni Oumou Sangaré. Hancock er spurður að því hvort hin væntanlega plata sé e.t.v. sjálfstætt framhald þessa verkefnis, Imagine. „Að vissu leyti er hún það en að þessu sinni er ég með listamenn úr heimi hip hops, m.a. rappara og lista- menn sem vinna með talað mál (e. spoken word artists). Ég er að vísu ekki búinn að koma þeim á plötuna en vil gjarnan hafa þá með,“ segir Han- cock. Ríkulegri uppskera Í fyrirlestri sem Hancock hélt í Harvard-háskóla í Boston árið 2013, um búddisma og sköpunargáfuna, vitnaði hann í orð Daisaku Ikeda, forseta alþjóðlegu búddistasamtak- anna Soka Gakkai (sem Hancock er félagi í og stunda sk. Nicherin búdd- isma) þess efnis að menn verði að ögra sjálfum sér og ganga lengra en þeir haldi að þeir komist svo vel- gengni hafi einhverja merkingu fyrir þeim og þeir öðlist virðingu annarra. Blaðamaður spyr Hancock hvort þarna sé e.t.v. kominn lykillinn að því að geta lifað af sem listamaður, hvort þetta sé það sem þurfi til. „Þetta er vissulega einn af lyklunum og mjög mikilvægur sem slíkur. Þeir sem fylgja þessu sýna hugrekki og að hugur þeirra er leitandi, í leit að einhverju sem þeir búa ekki yfir en vilja gjarnan ná. Með því að fara þessa leið verður lífið meira spenn- andi en ella og uppskera erfiðisins mun ríkulegri. Þá á ég við hvernig maður þroskast sem listamaður og vex með hverri raun. Og í mörgum tilvikum opnast manni dyr að öðrum heimi sem maður hafði ekki áður að- gang að. Maður fer að líta hlutina öðrum augum en maður áður gerði og sækja innblástur úr nýjum átt- um,“ segir Hancock og hlær enn og aftur þegar blaðamaður segir þetta góð lokaorð. „Og nú þarf ég að halda áfram að vinna að plötunni minni!“ segir þessi eldhressi og stór- merkilegi listamaður og kveður blaðamann með furðugóðum fram- burði á nafninu Helgi. Áhrifamikill Herbie Hancock á að baki glæsilegan og fjöl- breyttan feril. AFP Djassdagur Hancock með söngkonunni Cassöndru Wilson á tónleikum sem haldnir voru í Havana á Kúbu á alþjóðlega djassdeginum 30. apríl sl. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.