Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 75

Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 75
ÍSLENDINGAR 75 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 Að loknu framhaldsskólanámi hélt Þórey Edda til æfinga í Sví- þjóð, æfði þar í tvö ár, stundaði nám í Tækniháskólann í Lundi, lauk þar eins árs námi, hélt síðan til Athens í Bandaríkjunum og lærði við Georgíuháskóla til að stunda stangarstökk á skólastyrk. Hún varð háskólameistari í stang- arstökki um veturinn og nánast ósigrandi í greininni, en – „ég stefndi hærra, fannst ég ekki hafa réttan þjálfara, flutti heim. innrit- aði mig í verkfræði við HÍ og tveimur árum síðar bauðst mér draumaæfingasvæði stangar- stökkvara, í Leverkusen í Þýska- landi, undir stjórn eins fremsta stangarstökksþjálfara landsins.“ Þórey Edda fór til Þýskalands 2003 og bjó þar að mestu fram yfir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Verkfræðináminu hélt hún áfram með hléum og í fjarnámi og lauk BSc-prófi 2007. Að loknum Ólympíuleikum 2008 flutti Þórey Edda heim, hóf störf hjá VSB verkfræðistofu í Hafnar- firði um haustið og hafði vart kom- ið sér þar fyrir er hrunið varð. Eft- ir fimm mánuði varð hún atvinnu- laus um hríð, fékk sumarstarf hjá Velferðarsjóði barna við verkefnið Sumargleði. Næsta haust tóku við nánast tvö fæðingarorlof í röð, hún hóf meistaranám í umhverfisverk- fræði við HÍ milli fæðingarorlofa, hóf síðan störf með námi og fæð- ingarorlofi, sem verkefnastjóri landsliðsmála í hálfu starfi hjá Frjálsíþróttasambandi Íslands, haustið 2011. Vorið 2014 lauk hún verkfræðináminu, hætti hjá FRÍ þá um haustið, flutti til Hvammstanga og hefur síðan starfað þar hjá verkfræðistofunni Ráðbarður sf. „Hér fer vel um fjölskylduna. Við förum reglulega á skíði, hjólum töluvert, leikum okkur í íþróttahús- inu, förum í sund og teflum. Ég stunda hér blak og keppi með lið- inu sem kallast Birnur. Liðið er undir hatti Ungmennafélagsins Kormáks.“ Þórey Edda er í stjórn Ung- mennasambands Vestur-Húnvetn- inga, USVH, í stjórn Rauða kross- ins í Húnaþingi vestra, í stjórn Íþróttasambands Íslands, situr í nefnd Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ og í nefnd um afreksmiðstöð. Þórey Edda varð tvisvar Íslands- meistari í fimleikum á palli í fjöl- þraut og tvisvar á tvíslá, var lands- liðsmaður í fimleikum í fimm ár, er núverandi Íslandsmethafi í stang- arstökki; 4,60 m frá árinu 2004, Ís- landsmetið var jafnframt Norður- landamet í 11 ár en var slegið árið 2015. Hún varð margoft Íslands- meistari í stangarstökki, vann til gull- og silfurverðlauna í þeirri grein á Smáþjóðaleikjunum, hefur lent í 6., 11. og 13. sæti á heims- meistaramótum utanhúss og tvisvar í 9. sæti HM innanhúss. Þá varð hún Háskólameistari innanhúss 2001, náði tvisvar árangurslega inn á loka gullmót í Mónakó (árin 2004 og 2005) og hafnaði þá í 7. og síðan 8. sæti, en einungis átta stigahæstu íþróttamenn í heimi í hverri grein fengu þátttökurétt á mótinu. Hún hefur keppt þrisvar á Ólympíu- leikum og hafnaði í 5. sæti í Aþenu 2004. Þá varð hún í 2. sæti í kjöri Íþróttamanns ársins 2004 og í 3. sæti 2001. Fjölskylda Sambýlismaður Þóreyjar Eddu er Guðmundur Hólmar Jónsson, f. 28.4. 1979, tónlistarkennari í Tón- listarskóla Húnaþings vestra. For- eldrar hans eru hjónin Jón Böðv- arsson, f. 15.7. 1949, rafvirki og bóndi að Syðsta-Ósi í Húnaþingi, og Ingibjörg Guðrún Jóhannes- dóttir, f. 10.10. 1946, fyrrverandi bóndi. Synir Þóreyjar Eddu og Guð- mundar Hólmars eru 1) Bragi Hólmar Guðmundsson, f. 9.9. 2009, og 2) Ingi Hólmar Guðmundsson, f. 27.4. 2011. Systkini Þóreyjar Eddu eru 1) Albert Brynjar Elísson, f. 14.2. 1972, kerfisfræðingur í Hafnarfirði, og 2) Kristinn Rafn Elísson, f. 12.9. 1981, kerfisfræðingur í Hafnarfirði. Foreldrar Þóreyjar Eddu eru hjónin Elís Stefán Eyfjörð Stef- ánsson, f. 29.5. 1950, bókbindari í Prentsmiðjunni Odda, og Sigríður Albertsdóttir, f. 18.3. 1949, fyrr- verandi skrifstofumaður. Úr frændgarði Þóreyjar Eddu Elísdóttur Þórey Edda Elísdóttir Ráðhildur Björnsdóttir verkak. í Hafnarfirði Kristinn Guðmundsson málari í Rvík Brynhildur Kristinsdóttir verkak. í Hafnarfirði Albert Þorsteinsson prentari í Hafnarfirði Sigríður Albertsdóttir skrifstofum. í Hafnarfirði Sigríður Albertsdóttir húsfr. í Hafnarfirði Þorsteinn Arndal sjóm. í Hafnarfirði Jóna Kristjánsdóttir húsfr. á Tálknafirði Gísli Guðbjartsson sjóm. á Tálknafirði Þórey Gísladóttir húsfr. í Rvík Stefán Hermann Eyfjörð Jónsson sjómaður í Rvík Elís Stefán Eyfjörð Stefánsson bókbindari í Hafnarfirði Elísa Stefánsdóttir húsfr. á Látraströnd Jón Þorsteinsson b. á Látraströnd Gísli Jón Hermannsson fæddistá Svalbarði í Norður-Ísafjarðarsýslu 30.6. 1932, sonur Hermanns Hermannssonar, búfræðings og útvegsbónda í Ögur- vík, og Salome Rannveigar Gunn- arsdóttur húsfreyju. Hermann var sonur Hermanns Þórðarsonar og Guðrúnar Bjarna- dóttur í Hagakoti, en Salome var dóttir Gunnars Sigurðssonar, bónda á Eyri í Skötufirði, bróður Halldóru, móður Jóns Baldvinssonar, alþingis- manns og forseta ASÍ. Eiginkona Gísla Jóns var Jónína Margrét Einarsdóttir frá Ísafirði, en hún lést 2001. Þau eignuðust þrjú börn; Hjört, framkvæmdastjóra Ögurvíkur, Margréti Jónínu stjórnarformann og Hermann útgerðarstjóra. Meðal bræðra Gísla Jóns voru skipstjórarnir Gunnar Haraldur og Þórður Guðmundur sem eru látnir, Birgir, skipstjóri og kaupmaður, og Sverrir, fyrrv. alþingismaður, ráð- herra og bankastjóri. Gísli Jón lauk gagnfræðaprófi á Ísafirði 1948, fékk stýrimannarétt- indi frá Stýrimannaskóla Íslands 1957 og skipstjórnarréttindi að lok- inni starfsreynslu. Hann var stýri- maður hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur 1958-60 og hjá Eldborg hf. 1960- 63,var skipstjóri og útgerðarmaður hjá Vigra hf. frá 1963-70. Þá stofnaði hann útgerðarfélagið Ögurvík ásamt fleirum, en félagið hefur gert út togarana Vigra, Ögra og Frera. Gísli Jón var útgerðarmaður hjá Ögurvík og skráður framkvæmda- stjóri allt til ársloka 2013, en hætti daglegum störfum um ári áður en hann lést. Hann átti um skeið sæti í stjórn Félags íslenskra botnvörpu- skipaeigenda, sat í mörg ár í stjórn LÍÚ og stjórn innkaupadeildar þess, átti sæti í stjórn Faxamarkaðar um skeið og sinnti ýmsum nefndar- störfum á vegum LÍÚ. Þá var hann um skeið framkvæmdastjóri fisk- vinnslunnar Kirkjusands, sem Ögurvík átti með SÍS. Gísli Jón lést 13.1. 2014. Merkir Íslendingar Gísli Jón Hermannsson 90 ára Hallgrímur Helgason 85 ára Katrín I. Magnúsdóttir Ragnar Jóhannesson Unnur G. Úlfsdóttir 80 ára Gunnlaugur Traustason Hanna Bárðardóttir Inga Stína Stefánsdóttir Magnús G. Ellertsson Marta Þorsteinsdóttir Reynir Guðmundsson 75 ára Ágúst Skarphéðinsson Ragnheiður Gíslason Þórarinn Viðfjörð Jónsson 70 ára Bergþór Guðjónsson Egill Benedikt Hreinsson Ingimar Víglundsson Sigurbjörn Ó. Ragnarsson Sigurður G. Hjörleifsson Símon Georg Rafnsson Úlfar Þórðarson Þorleifur Þorkelsson Þórarinn Klemensson Þór Sveinsson 60 ára Andrzej Jan Fraczyk Ágústa Sigríður Karlsdóttir Björg Kristín Einarsdóttir Eiríkur Ágústsson Elsa Guðjónsdóttir Halla Ásgeirsdóttir Inga Sigurðardóttir Jóna Sigþórsdóttir Lúðvík Svanur Daníelsson Ólafur Davíð Jóhannesson Sigurður Pétursson Úlfar Kristinsson Þorsteinn Vilhjálmsson 50 ára Bergþóra Hrafnhildardóttir Constance Louise Mills Fanney Harðardóttir Guðmundur Pétursson Guðný Guðmundsdóttir Rúnar Þór Birgisson Sigmundur Sæmundsson Sigurbjörn Rúnar Jónasson 40 ára Christiaan LR. van der Valk Davíð Ólafsson Elmar H. Hallgrímsson Erla Valdimarsdóttir Freyr Bjarnason Garðar Valur Hallfreðsson Gunnar Sigurðsson Gunnlaugur E. Sævarsson Halla Dögg Káradóttir Ingvar Birgir Jónsson Jennifer Montemayor Jose Jasper P. Montemayor Jóhann G. Baldvinsson Katrín Laufey Rúnarsdóttir Oddur Grétarsson Pétur Thors Rolandas Jackevicius Þórarinn Ásdísarson 30 ára Ari Sylvain Posocco Axel Ragnar Lúðvíksson Cezary Emil Plotka Davíð Ben Guðmundsson Elmar Reyr Hauksson Guðjón Ingi Guðlaugsson Heiðrún H. Bæringsdóttir Joao P. De Brito L. Da Silva Jón Andri Helgason Katrín Ósk Þorbergsdóttir Loubna Ouaziz Mariusz Jan Lazienka Tomasz Toczylowski Þórarinn Sigurðsson Til hamingju með daginn 30 ára Rúnar Jón ólst upp á Ísafirði, býr í Hafnarfirði og er vöru- stjóri hjá Símanum. Maki: Bryndís Eyjólfs- dóttir, f. 1989, sérfræð- ingur hjá Símanum. Börn: Ásdís Björk, f. 2010, og Kári, f. 2016. Foreldrar: Hermann Gunnarsson, f. 1961, smiður, og Þorgerður Kristjánsdóttir, f. 1964, skrifstofumaður. Þau búa á Ísafirði. Rúnar Jón Hermannsson 30 ára Bjarki Freyr ólst upp á Egilsstöðum, býr þar, lauk prófum í leiklist frá Kvikmyndaskóla Ís- lands og er tæknimaður hjá Tölvulistanum. Maki: Fanney Ósk Rík- harðsdóttir, f. 1986, leik- skólakennari. Stjúpdóttir: Álfrún, f. 2009. Foreldrar: Anna Gunn- laugsdóttir, f. 1953, og Haukur Jónsson, f. 1947, d. 2013. Bjarki Freyr Hauksson 30 ára Anna Birna býr í Reykjavík, lauk BA-prófi í uppeldis- og menntunar- fræði frá Háskóla íslands og hefur sinnt sérkennslu við leikskóla. Maki: Karl Sigurðsson, f. 1989, verkefnastjóri. Synir: Sigurður Orri Karlsson, f. 2013, og Baldur Rafn Karlsson, f. 2017. Foreldrar: Sif Sigurðar- dóttir, f. 1966, og Rafn Rafnsson, f. 1964. Anna Birna Rafnsdóttir Eitt best geymda leyndarmálið á markaðnum Weleda Skin Food er í miklu uppáhaldi hjá þekktum tískufyrirsætum og förðunarfræðingum um allan heim. Skin Food er 100% lífrænt árangursríkt alhliða krem sem nærir þurra og viðkvæma húð og kemur jafnvægi á húðina. Skin Food kom fyrst á markað fyrir meira en 80 árum síðan og hefur uppskriftin verið óbreytt síðan. Kremið er unnið úr lífrænt ræktuðum Stjúpum, Baldursbrá, Morgunfrú og Rósmarín, gott krem fyrir alla fj ölskylduna – Í samhljómi við mann og náttúru. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/WeledaIceland
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.