Morgunblaðið - 30.06.2017, Blaðsíða 86

Morgunblaðið - 30.06.2017, Blaðsíða 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 Fyrir salernið Karl K. Karlsson, Nýbýlavegi 4, 200 Kópavogi Listasafn Reykjavíkur hefurgefið út glæsilega bóksem veitir innsýn í listferilmyndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar (1893-1982). Ásmundur ánafnaði Reykjavíkur- borg listaverkasafn sitt árið 1973 ásamt húsunum við Sigtún sem voru bæði heimili hans og vinnustofa. Ásmundarsafn hefur verið þar til húsa frá árinu 1983 og í safn- eigninni, sem telur tæplega 2.500 verk, eru höggmyndir, skissubækur og teikningar. Í inngangs- orðum Ólafar K. Sigurðardóttur, safnstjóra Lista- safns Reykjavíkur, segir meðal ann- ars: „Varðveisla verkanna og rann- sóknir á þeim hafa verið mikilvægur hluti af starfi Listasafns Reykjavík- ur. Útgáfa þessarar bókar er þáttur í viðleitni safnsins til að auka al- menna þekkingu á list Ásmundar en er ekki síður ætlað að auka skilning á myndlist og hlutverki hennar í samfélaginu.“ Ásmundur var einn helsti braut- ryðjandi höggmyndalistar á Íslandi. Hann sótti sér efnivið bæði í sagna- hefð og þjóðtrú en var jafnframt einn af forgöngumönnum módern- ismans á Íslandi. Hann var frum- kvöðull í að kynna til sögunnar ný viðhorf til höggmynda- og bygginga- listar í anda þess sem var að gerast í Evrópu á námsárum hans á þriðja áratug síðustu aldar. Í bókinni eru greinar fræðimanna sem taka á ólíkum þáttum í list Ásmundar, en í hana rita listfræð- ingarnir Kristín G. Guðnadóttir og Eiríkur Þorláksson, Pétur H. Ármannsson arkitekt og Hjálmar Sveinsson heimspekingur. Kristín skrifar megintexta bókar- innar, þar sem hún fjallar ítarlega um feril og áhrifavalda í myndlist Ásmundar í grein sem nefnist „List fyrir fólkið“. Greinin skiptist í sex hluta, sem hver um sig fjallar um ákveðin tímabil og þróun í list Ásmundar, sem og persónulega hagi hans. Hún gerir góða grein fyrir því hvernig umhorfs var í borgar- og listalífinu í Reykjavík í upphafi 20. aldar þegar sveitapilturinn Ásmund- ur kom til þangað til náms og lærði bæði tréskurð hjá Ríkharði Jónssyni og teikningu hjá Þórarni B. Þorláks- syni. Íslendingar voru seinir til að læra að meta verk Ásmundar, verk- unum var ekki alltaf vel tekið og hann þurfti að þola ýmiss konar mótlæti í þeim efnum. „Á síðari hluta sjötta áratugarins varð alger viðsnúningur í viðhorfum til verka Ásmundar, bæði hjá borgaryfir- völdum og borgarbúum. Hann naut sívaxandi virðingar og viðurkenn- ingar og stundum var vitnað til hans sem listamanns fólksins.“ (57) Krist- ín rekur á greinargóðan og upplýs- andi hátt þær aðstæður og atburði sem sköpuðu listamanninn Ásmund Sveinsson. Eiríkur beinir sjónum sínum nán- ar að listferli Ásmundar og hvernig hann verður fyrir áhrifum af helstu straumum og stefnum samtíðar sinnar á erlendum vettvangi. Eirík- ur notar greinargóð dæmi og mynd- ir máli sínu til stuðnings og þrátt fyrir að Ásmundur hafi orðið fyrir áhrifum af nýjustu straumum og stefnum erlendis bendir Eiríkur jafnframt á að hann hafi unnið úr þeim á sinn hátt og valið sér við- fangsefni sem hafa sérstaka þýðingu í augum þjóðarinnar. „Hann kaus að lifa og starfa á Íslandi alla sína ævi, þrátt fyrir erfiðar aðstæður lengst af, bæði efnalega og í listrænum skilningi.“ (170) „Salir Ásmundar“ nefnist grein Péturs þar sem hann fjallar um byggingarferli þriggja húsa lista- mannsins, en Ásmundur byggði hús og vinnustofur eftir eigin hug- myndum sem hann lét útfæra í sam- starfi við sérfræðinga á sviði bygg- ingarlistar. Pétur rekur áhuga Ásmundar á húsagerð og myndun borgarskipulags til námsára hans í Stokkhólmi, hvernig fagurfræði og notagildi verða samhangandi þáttur og setur í samhengi við byggingar- sögu Reykjavíkur og fjallar um byggingarferlið í máli og myndum. Til að geta unnið stór verk og komið fyrir í almannarými þarf góða að- stöðu og um nauðsyn þess að byggja sér rúmgóðar vinnustofur er haft eftir Ásmundi: „Nú, ef ég hefði aldr- ei byggt hér heima, væri engin stór mynd til eftir mig. Ekki ein einasta. Það er ekki hægt að stækka högg- myndir nema hafa góðar vinnustof- ur, háar og bjartar, Slík hús eru ekki til hérlendis, enda ekki von, hér eru svo fáir myndhöggvarar.“ (174) Í grein Hjálmars sem nefnist „Listamaðurinn sem helgaði sig borginni“ veltir hann upp tengslum listar og borgarumhverfis og hvers konar list borgarsamfélagið þarf á hverjum tíma. Hjálmar rekur sýn Ásmundar á list í almannarými og skoðar út frá samtíma Ásmundar en setur líka í samhengi við tíðaranda nútímans og ber á áhugaverðan hátt saman hvernig sumar tæplega hundrað ára hugmyndir hans ríma við aðalskipulag Reykjavíkurborgar samtímans. Bókarkápan er afar falleg og bók- in er hönnuð og prentuð af miklu listfengi. Bókin er prýdd fjölda ljós- mynda af verkum listamannsins og ljóst er að hér hefur verið vandað til verka enda njóta bæði texti og myndir sín vel. Greinar um feril Ásmundar eru í senn fræðandi og aðgengilegar og það er vel til fundið að kalla til fræðimenn af fjölbreytt- um fræðasviðum til að nálgast við- horf hans og hugmyndir til listar- innar á ólíkan hátt. Ásmundur Sveinsson er stórglæsileg og eiguleg bók sem mun nýtast bæði leikum og lærðum á komandi árum til að kynn- ast betur listamanninum sem trúði á þjóðfélagslegt gildi listarinnar og vildi færa hana út á meðal fólksins. „Það er tilgangslaust að skapa listaverk ef þjóðin á ekki að njóta þeirra“ Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Listaverkabók Ásmundur Sveinsson bbbbm Ritstjóri: Ólöf Kristín Sigurðardóttir. Höfundar texta: Eiríkur Þorláksson, Hjálmar Sveinsson, Kristín G. Guðna- dóttir og Pétur H. Ármannsson. Hönnun: Ármann Agnarsson. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn gefur út 2017. Prentun: Prentmet. Innbundin, 200 bls. ALDÍS ARNARDÓTTIR BÆKUR Tröllkona Frá 1946, steinsteypa. Tónar hafsins Verk frá 1950, viður. Helreiðin Frá 1944, bronsskúlptúr. Samhljómur hnattanna Verk frá árinu 1959 úr járni og kopar. Brautryðjandi Ásmundur Sveinsson myndhöggvari við eitt verka sinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.