Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 28

Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 SVIÐSLJÓS Sigurður Ægisson sae@sae.is Guðríður Bjargey Helgadóttir er mögnuð kona. Hún er 96 ára að aldri en iðar af lífi, hefur sitthvað til mál- anna að leggja, skrifar í blöð og tek- ur virkan þátt í umræðu samtímans, ekki síst til varnar lítilmagnanum, náttúrunni og eldri borgurum þessa lands, hefur tekið góðan þátt í fé- lagsmálum og stjórnmálum á langri ævi, er snjall kvæðamaður og góður hagyrðingur. Með sundurröktu árórugarni og silki saumar hún út myndir af landslagi og vættum í um- hverfi sínu í léreft, sem strengt er á blindramma, og hefur sýnt þau verk sín opinberlega í höfuðborginni og víðar. Hún sker út fagra muni í tré og málar listilega á postulín. Hún er með farsíma innan seilingar og tölvu á skrifborðinu. Þegar hún var 89 ára ritaði hún og gaf út bókina Þessi kona, og hafði sumarið áður farið ríð- andi yfir Kjöl, sem greint er frá í bókinni, og árið 2015 kom önnur bók, Þessi kona á tíunda áratugnum. Og vera má að sú þriðja líti dagsins ljós, því enn er Guðríður að safna, punkta hjá sér eitt og annað úr liðinni tíð og nýrri. Og hún segir að það kæmi sér ekkert á óvart ef það endaði á prenti. „Mér finnst það vera skylda okkar, sem lifum svona lengi, að skila ein- hverju af arfinum, því að fortíðin er svo gjörólík því sem núna er,“ segir hún. „Það hafa orðið svo miklar bylt- ingar á síðustu öld, frá því að vera bara gamli tíminn, með hand- verkfærum, í þessa miklu véla- og vísindaöld. Fólk þarf að hafa glugga aftur í fortíðina og mér finnst það vera skylda okkar að halda honum opnum og bækurnar sem ég skrifaði og gaf út fyrir nokkrum árum eru það, þær eru bara skyndimyndir út um gluggann, á lífið eins og það hef- ur komið þessari konu fyrir sjónir. Þetta er ekki ævisaga, ég reyni að hverfa eins mikið og ég get á bak við frásögnina, þetta eru svona skyndi- myndir af því sem maður er og hefur verið að fást við, sem segir auðvitað nokkuð um aldarhætti og verklag á hverjum tíma. Og það eru ansi mörg verkfæri sem fólk á mínum aldri er búið að meðhöndla og leika sér að læra á. Eins og tölvan, sem ég notaði við að rita bækurnar mínar. Hún er bara eitt af þessum verkfærum sem hafa komið upp í hendurnar á mér eins og öðrum. Ég keypti hana þegar tölvur fóru að verða almenningseign. Og ekki kemst maður af án þess að eiga gemsa. Ef við ekki fylgjumst með verðum við gamaldags. Á eftir tímanum. Stöðnum.“ Þéttbyggðasta sveit héraðsins Guðríður er fædd 16. mars árið 1921. Móðir hennar var Kristín Jakobína Guðmundsdóttir (1894−1983) frá Kirkjuskarði á Lax- árdal fremri í Holtastaðasókn í Aust- ur-Húnavatnssýslu, og faðir hennar var Helgi Magnússon (1895−1981) fæddur á Hrúteyri við Reyðarfjörð. Þegar hér er komið sögu bjuggu þau á Núpsöxl á Laxárdal fremri, þar sem faðir hennar var alinn upp. Dal- urinn var kallaður þetta til aðgrein- ingar frá Laxárdal í Skagafjarð- arsýslu, sem er handan við fjallgarðinn milli Skagafjarðar og Húnavatnssýslu og er stundum kall- aður Laxárdalur ytri. Þarna var áður allmikil byggð, þéttbyggðasta sveit héraðsins, alls 32 bæir. Í dalnum verður aldrei vart grasleysis. „Ég er fædd í Svangrund á Blöndubökkum, í Engihlíðarhreppi,“ segir Guðríður, aðspurð um uppruna sinn. „Mamma var búin að fæða eitt barn áður sem gekk illa með að koma í heiminn en kom nú samt og lifði lengi, en af því að þetta var í mars, fannfergi mikið og ófærð og allra veðra von, ákvað hún til öryggis þeg- ar fór að líða að fæðingu að fara og vera nokkra daga þar sem ljósmóðir sveitarinnar bjó. Og allt gekk þetta nú eftir.“ Alls fæddist þeim hjónum, Krist- ínu og Helga, sjö börn meðan þau bjuggu á Núpsöxl. Og þarna ólst Guðríður upp, rétt fyrir utan miðjan dal, með foreldrum og systkinum við algeng sveitastörf, til 14 ára aldurs. „Það var snjóþungt í Laxárdal,“ segir hún, „og gat verið að vorið kæmi seint, ef það var hart í ári, en það kom að endingu og þá kom gróð- urinn vel undan snjónum, því yfir- leitt kom snjór snemma í dalinn. Þetta er hærra en Langidalur og gat verið vetrarríki, en mjög sumardag- urt. Og flóarnir, til dæmis, þeir komu grænir undan snjónum.“ Guðríður tók fullnaðarpróf 13 ára gömul, eftir nám í skammvinnum farskóla. Missti af fermingunni sinni Ári síðar, 1935, var hún búin að ganga til prestsins, sr. Gunnars Árnasonar, til spurninga, vera hjá honum í viku ásamt jafnöldrum sín- um, en hann bjó þá á Æsustöðum í Langadal, og læra það sem krafist var. Það átti að ferma á hvítasunnu. Í vikunni á undan voru fardagar og hún að flytja með foreldrum sínum og systkinum norður yfir fjöll og öræfi, að Skollatungu í Gönguskörð- um í Skagafirði. Ætlunin var að Guð- ríður færi ríðandi til Holtastaða- kirkju er þar að kæmi, en ekkert varð úr því, þá gerði nefnilega stór- hríð og ekki komst stúlkan vestur. Sr. Helgi Konráðsson fermdi hana því eina í Sauðárkrókskirkju um sumarið. „Það var ekki mikið um skóla- göngu yfirleitt, eftir að skyldunámi lauk, nema fyrir þá unglinga sem komu af efnaðri heimilum, og fóru þá í menntaskóla. Alþýðuskólarnir voru ekki orðnir eins algengir þá og síðar varð, það var ekki fyrr en með Jónasi frá Hriflu að það breyttist. Ég fór í vist á Sauðárkróki næstu vetur eftir fermingu og var heima á sumrin og einn vetur var ég á Akureyri, starf- aði í þvottahúsi menntaskólans. En svo fór ég í Kvennaskólann á Blönduósi 1942−1943 og síðan í Iðn- skólann í Reykjavík 1944−1946; það var kvöldskóli og ég tók tvo bekki í einu, stytti mér tímann í tvo vetur í staðinn fyrir fjóra, og lauk þaðan prófi sem kvenklæðskeri. Fyrsta ár- ið var ég í vist hjá Kristínu Önnu Thoroddsen, sem var kennari, pass- aði Helgu Kress litla, og fór svo að vinna á saumastofu, tók faglega hluta námsins þar.“ Á þessum árum kynntist hún fyrri eiginmanni sínum, Sæmundi J. Kristjánssyni. Þau eignuðust saman tvö börn, Helga 1946, og Ásdísi, 1947, en fljótlega eftir það skildu leiðir þeirra hjóna. Síðari eiginmaður Guðríðar var Friðrik Brynjólfsson. Þau bjuggu fyrstu tvö árin í Reykja- vík, þar sem Guðríður vann við kjóla- saum og annan saumaskap á verk- stæðum og heima, en vorið 1961 ventu þau kvæði sínu í kross og höfðu skipti á íbúðinni þar og jörð- inni Austurhlíð í Blöndudal. Þangað fluttu þau hjónin 2. maí það sama ár. Þar bjuggu þau myndarbúi til 1988. Þau eignuðust saman fjögur börn. Elst er Sigríður Guðrún, fædd 1959, næstur er Brynjólfur, fæddur 1960, þá er Kristín, fædd 1963, og yngst Ólína Þóra, fædd 1966. Friðrik lést árið 2008. Árið 2010 tók Guðríður sér bólstað suðaustan undir hlíðum Tindastóls, á Dvalarheimili aldraðra á Sauðár- króki. Gott mannlíf í Laxárdalnum „Það var mjög gott mannlíf í Lax- árdal, sérstaklega gott nágrenni,“ segir hún. „Þetta var heimur út af fyrir sig. Það hjálpuðust allir að. Ef eitthvað var, þá var bara einhver kominn til aðstoðar frá næsta bæ. Það er mannlíf sem ég sakna. Fólk fór á milli bæja bara að gamni sínu til að spjalla og þetta mannlíf varð eitt- hvað svo manneskjulegt. Og þarna komu fram skáld og rithöfundar, Rósberg G. Snædal, Sigurður Ingj- aldsson frá Balaskarði, Sveinn Hannesson frá Elivogum og sonur hans, Auðunn Bragi, og margir fleiri. Ungmennafélagið var mjög öflugt, hélt meira að segja út blaði, og það voru rædd allskonar þjóðmál á fund- um og krakkarnir auðvitað fylgdust með þessu öllu. Ég var ekki hrædd við neitt. Það þýddi t.d. ekkert að vera að hræða mig á Grýlu, ég vissi að það var plat, en eins og allir vildi ég auðvitað frekar hafa ljós, en það var ekki alltaf hægt. Við bárum með okkur það sem kallað var týruljós, en það var ekkert rafmagn í bænum. Það, ásamt símaleysi og lélegu vega- sambandi, gerði það að verkum að dalurinn lagðist smám saman í eyði að mestu leyti um og upp úr miðri síðustu öld. Það voru að byrja aðrir tímar. Við vorum með þeim fyrstu sem fluttum burtu en litlu síðar fór að grisjast enn frekar. Með stríðinu komu vélarnar og bílar og vélar þurftu vegi, en það var engin sýn á það að bæta úr þessum skorti hjá okkur, fólk áttaði sig á því að ekki yrði um neinar framfarir í þessu efni að ræða og sætti sig ekki við að þurfa að notast við kerrustíga á þeim tíma- punkti.“ En hvernig er svo að vera komin á tíræðisaldur? „Það er ágætt. Þetta er bara einn kapítuli ævinnar. Ég held mér við með því að vera sífellt að hugsa og gera eitthvað. Og svo er þetta bara Guðsgjöf.“ Græðgin er allt að drepa „Ég nefndi breytingar hér áðan, þær sem orðið hafa á síðustu áratug- um. En þær eru ekki allar af hinu góða. Það hafa t.d. orðið miklar stökkbreytingar á þessari öld, bændaþjóðfélag sem var allsráðandi í stjórnarfari og öðru er nánast að hverfa, að þurrkast út. Það er mark- visst unnið að því að gera lítið úr landbúnaði. Fólk kann ekki að meta það að einhver framleiði matinn handa því, heldur að þetta komi bara í póstinum. Það er ótrúlegt. En það er seigt í bændum, þeir gefast ekki allir upp. Eins og þetta eyland er nú háð því að framleiða sjálft allt sem hægt er, sem er alveg gífurlega margt, og flest, miðað við heitu upp- spretturnar og allt það. Við erum svo einstaklega lánsöm að hafa þetta gjöfula land. En fólk kann ekki að meta það. Og kann ekki að nýta það rétt. Það er allt troðið niður í staðinn fyrir að vinna með því og lifa með því. Þetta er sorglegt. Græðgin er allt að drepa. Það tók svo ótrúlega stuttan tíma að rjúfa þessi tengsl milli borgar og sveita, sem voru mjög sterk, meðan t.d. börn voru send í sveit, þarna á tímabili, og það eitt myndaði svo órjúfandi tengsl milli fjölskyldna. En svo var tekið fyrir það. Börn fara ekki lengur í sveit. Það eru vélarnar náttúrulega, þær útheimta ekki svona liðléttinga í vinnu. En það er mikill skaði, því að þetta var mjög hollt uppeldi, að kynnast lífinu ómenguðu, og kenndi börnum margt. Ég veit það að strákar sem voru hjá mér í sveit, þeir segja það að þeir hafi lært meira í sveitinni heldur en í öllum þeim skólum sem þeir hafa far- ið í gegnum, þeir eignuðust fjöl- breyttari sýn á lífið og tilveruna. Það vantar í nútímann þetta manneskjulega samneyti og sam- kennd. Þess vegna er ójöfnuðurinn að eyðileggja allt. Og það bara kallar á uppreisn og leiðindi. Ekkert annað. Og þetta, að kunna ekki að lifa með landinu sínu, það kann ekki góðri lukku að stýra.“ Það vantar þetta manneskjulega  Missti af fermingunni sinni  Er kvenklæðskeri að mennt  Fór ríðandi yfir Kjöl 88 ára  Skrifaði og gaf út bók árið 2010 og aðra 2015  Málar á postulín, saumar út listaverk og yrkir Ljósmynd/Sigurður Ægisson Síung Guðríður Bjargey Helgadóttir, 96 ára gömul, í íbúð sinni á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki. Ljósmynd/Sigurður Ægisson Núpsöxl í Laxárdal fremri 1935 Listsaumur í léreft. Myndir Guðríðar eiga rætur í sterkum tengslum við móður Jörð og gjöfult föðurland. Guðríður kveðst eiga góðar minningar frá æskustöðvunum, þar sem hún lék sér í frelsi nátt- úrunnar, veiddi silunga með berum höndum og nam af öllu því öðru sem fyrir augu bar. Ein- hverju sinni á ævinni orti hún þetta: Mjög þá heiðin magnar seið, manni greiðust verða sporin, úr sér breiðir opin leið inn í þreyðust lönd á vorin. Ekkert helsi, engin bönd, auðnarfrelsi sumardaga. Angrið dvelst við ystu rönd, andinn stelst að sölum Braga. Bragi − óðfræðivefur (bragi.info) geymir fleira úr hennar ranni af þessum toga, sem og áðurnefndar bækur hennar. Ekkert helsi, engin bönd ÆSKUSTÖÐVARNAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.