Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Morgunblaðið/Ernir
Jafnvægi Eyrún Ævarsdóttir og Katla Þórarinsdóttir pósa hýrar á brá.
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja@mbl.is
V
ið fórum í fyrsta íslenska sirkus-
ferðalagið fyrir þremur árum, eftir
að við keyptum sirkustjaldið okk-
ar, Jöklu. Þá fór þetta virkilega að
rúlla af stað,“ segir Eyrún Ævars-
dóttir, ein þeirra sem hafa verið í sirkus-
hópnum Sirkus Íslands frá upphafi. „Við átt-
uðum okkur á því að það væri kannski alveg
hægt að vera með sirkustjald þegar haldin var
sirkushátíð í Vatnsmýrinni árið 2013, en þar
var fullt af tjöldum og við töldum okkur í Sirkus
Íslands alveg geta fyllt eitt slíkt. Við réðumst
því í hópfjármögnun á Karolina Fund og þvert
á allar líkur þá gekk það upp og tjaldið okkar
Jökla hefur síðan þá ferðast með hópnum.“
Árið 2016 tók sirkushópurinn sér pásu í
eitt ár en er nú kominn á fullt í undirbúningi
fyrir sumarið.
„Þetta er þriðja sumarið okkar sem við er-
um með tjaldið. Við vorum tvö sumur með
sömu sýningarnar en erum núna komin með al-
veg splunkunýtt efni sem við erum að æfa. Við
nýttum pásuna til að byggja upp nýjar sýn-
ingar og læra nýja hluti sem eru núna hluti af
nýju sýningunum.“ Aðspurð hvaðan þau fái
hugmyndir að efni segir Eyrún að það sé héðan
og þaðan.
„Þrjú okkar hafa verið í námi erlendis, ég
og tveir aðrir, sem við erum að ljúka núna. Það-
an kemur eitthvað en svo er þetta líka mikið
innblástur út frá því sem er að gerast í kringum
okkur, við skoðum til dæmis hvað er á netinu.
En svo er líka um að gera að prófa sig áfram
sjálfur, þróa sína hæfileika.“
Eyrún segir að undanfarin ár hafi sú þró-
un átt sér stað að sífellt fleiri hafi getað unnið
við sirkusinn hér á landi allan ársins hring.
„Núna myndi ég segja að það séu sex eða sjö
manns sem eru að vinna við þetta einvörðungu
og framfleyta sér á þessu. Mörg okkar eru að
kenna sirkuslistir og skemmta út um allan bæ.
Þetta er atvinnugrein í þróun.“
Vinsældirnar sífellt að aukast
Eyrún segir það hafa breytt miklu fyrir
hópinn að festa kaup á sirkustjaldinu. „Það hef-
ur gert okkur mun sjálfstæðari að geta verið
með tjaldið og sirkusvinnan verður miklu raun-
verulegri fyrir vikið. Við getum ákveðið að setja
saman sýningu hvenær sem er og sett hana á
svið.“ Aðspurð segir Eyrún viðtökurnar hafa
verið mjög góðar allt frá byrjun. „Fyrsta sum-
arið voru yfir 20 þúsund manns sem sáu sýn-
ingarnar okkar. Við prófuðum líka að setja upp
eina fullorðinssýningu að vetri til. Það var ekki
góð hugmynd,“ segir Eyrún og hlær.
„Núna hafa hátt í 40 þúsund manns komið
í tjaldið og séð okkur skemmta. Við erum afar
sátt við þessar frábæru viðtökur og að sjálf-
sögðu vonar maður að það haldi áfram. Þess
vegna erum við svona spennt að kynna nýtt efni
og sjá viðbrögðin.“
Nýjar sýningar í mótun
Í sumar verður Sirkushópurinn með þrjár
sýningar sem innihalda hver um sig alveg
splunkunýtt efni. Ein sýningin nefnist Róló.
„Við höfum verið að leggja mesta áherslu á
þessa nýju fjölskyldusýningu, hún er ekki ein-
vörðungu hefðbundin sirkussýning heldur ger-
ist hún á róluvelli. Persónurnar í sýningunni
eru fólkið sem á leið um leikvöllinn og er gætt
áhugaverðum hæfileikum sem fá að njóta sín
þegar fólkið sýnir listir sínar. Þetta er því í
rauninni einn dagur á róluvelli, það er ákveðinn
söguþráður og áhorfendur fá svolítið að kynn-
ast persónunum. Við ætlum að bæta meiri sögu
og þema í þessa sýningu og bæta þetta enn
frekar,“ segir Eyrún og bætir við að Róló sé
ekki eina sýning Sirkuss Íslands.
„Við erum með tvær aðrar sýningar, önnur
er barnasýning og heitir Litli Sirkus. Hún er
aðeins ljúfari og ekki jafn stór í sniðum, í henni
er ekki jafn mikill æsingur í sirkusatriðunum.
Svo erum við líka með fullorðinssýninguna okk-
ar sem heitir Skinnsemi. Hún hefur verið í
gangi hjá okkur í nokkur ár og er í sífelldri þró-
un. Það er einhverskonar kabarettsýning sem
er bönnuð innan 18 ára. Þar leyfum við okkur að
segja ýmsa brandara sem passa ekki inn í hefð-
bundnu fjölskyldusýningarnar.“ Að sögn Ey-
rúnar hefur fólk tekið fullorðinssýningunni vel.
Pælingin að breiða úr sér
Eyrún segir sirkushópinn vinna vel saman,
enda sé ekki við öðru að búast þegar fólk hefur
unnið saman þetta lengi. „Þegar maður fer í
sirkusferðalag þá eru í rauninni allir að gera
allt. Þannig þéttist hópurinn. Margir eru búnir
að vera með alveg frá upphafi, svo þetta er svo-
lítið orðið eins og önnur fjölskylda okkar.“
Sirkus Íslands hefur ferðast víða um land
frá stofnun, en Eyrún segir að í sumar verði
sirkusinn hins vegar aðallega í Reykjavík.
„Fyrstu tvö sumrin fórum við út um allt land,
meðal annars til Ísafjarðar, Akureyrar, um allt
Austurland, á Selfoss, til Keflavíkur og til Fá-
skrúðsfjarðar. En í sumar verðum við aðallega
hér fyrir sunnan, hitum aðeins upp þessa nýju
sýningu og sjáum hvernig það gengur, en við
ætlum líka að sýna á Selfossi, verðum þar í
ágúst en í júlí verðum við í Reykjavík.“ Aðspurð
hvort sirkusinn horfi ekkert út fyrir landstein-
ana vill Eyrún lítið segja til um það.
„Það er alls ekkert staðfest í því, en við er-
um voða hrifin af þeirri hugmynd að fara jafnvel
til Grænlands eða Færeyja með þetta. Við erum
í landi sem hefur aldrei haft sirkus og það er
heldur ekki sirkus í Grænlandi eða Færeyjum,
þannig að okkur finnst gaman að pælingunni
um að breiða aðeins úr okkur. Það er aldrei að
vita hvað gerist. Við erum bara spennt að sjá
hvernig þessar nýju sýningar ganga.“
Við erum ein stór fjölskylda
Sirkus Íslands hefur notið fádæma vinsælda frá því hann var stofnaður fyrir
tæpum tíu árum. Þau hafa æft grimmt undanfarið fyrir nýjar sýningar sem
fara af stað nú í júlí, bæði fyrir alla fjölskylduna og einnig einvörðungu fyrir
fullorðna. Þau njóta þess að ferðast með sirkustjaldið sitt, Jöklu, og langar
að fara til Grænlands og Færeyja.
Ljósmynd/Sirkus Íslands
Áhætta Eyrún leikur hér listir sínar í háloftunum og skemmtir áhorfendum.
Ljósmynd/Sirkus Íslands
Sirkus Eyrún Ævarsdóttir er meðlimur í Sirkus Íslands.
Morgunblaðið/Golli
Listir Sirkus Íslands á Klambratúni þar sem sýningin Heima er best var frumsýnd.
Árið 2007 ákvað ástralski götulistamaðurinn
Lee Nelson að setjast að á Íslandi. Sirkuslistir
Nelson þóttu einstakar, og fljótlega hóf hann að
auglýsa eftir einhverjum til þess að sýna list-
irnar með sér. Á þeim tíma var enginn sirkus á
Íslandi. Áhuginn var mikill. Sífellt fleira fólk fór
að mæta á æfingar hjá honum að byggja upp
sirkushæfileika sína og úr varð dágóður hópur
sem fljótlega fór að skemmta á alls konar árs-
hátíðum og öðrum viðburðum. Smám saman
fór hópurinn að búa til sýningar og var fyrsta
sýningin í fullri lengd sett upp árið 2009.
Upphaf Sirkuss Íslands