Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Ég kann vel við Ísland,“ segir
Witold Waszczykowski, utanrík-
isráðherra Póllands, en hann var
staddur hér á landi í síðustu viku
til þess að taka þátt í ráðherrafundi
Eystrasaltsráðsins. Þetta er þriðja
heimsókn Waszczykowskis til Ís-
lands, en hann hefur tvisvar áður
komið hingað í opinberum erinda-
gjörðum, þar á meðal sem hluti af
sendinefnd þáverandi forsætisráð-
herra Póllands, Kazimierz Marc-
inkiewicz, þegar hann sótti fund
Eystrasaltsráðsins árið 2006.
„Þetta er hins vegar fyrsta op-
inbera heimsókn utanríkisráðherra
Póllands til Íslands frá árinu 1976,“
segir Waszczykowski og bætir við
að það hafi verið löngu tímabært að
bæta þar úr. Waszczykowski nefnir
að Ísland hafi reynst Pólverjum
vel, þar sem um 17.000 af sam-
löndum ráðherrans hafi náð að
koma sér vel fyrir og aðlagast sam-
félaginu hér.
Eystrasaltsráðið mikilvægt
Waszczykowski segir að Íslend-
ingar geti verið stoltir af fram-
göngu sinni í Eystrasaltsráðinu.
„Ég hef nú þegar óskað Íslend-
ingum til hamingju með fundinn og
að þeir hafi náð að halda ráðherra-
fund í ráðinu. Síðast, þegar við vor-
um í forsæti ráðsins, þá gátum við
ekki komið saman fundi ráðherra,
því að nokkrir þeirra vildu ekki
funda ef [Sergei] Lavrov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, tæki þátt. Að
þessu sinni vildum við funda með
Lavrov, en þá neitaði hann að taka
þátt.“
Waszczykowski segir Eystra-
saltsráðið gegna mikilvægu hlut-
verki sem samráðsvettvangur fyrir
ríkin þar, til dæmis í umhverfis-
málum, málefnum fyrirtækja eða
önnur vandamál sem best séu leyst
í sameiningu. „Ísland hefur staðið
sig vel í forsæti ráðsins, og ég vona
að Svíar muni einnig ná árangri,
þegar þeir taka nú við.“
Yfirgengileg hegðun Rússa
Í kjölfar Úkraínudeilunnar hefur
verið nokkuð stirt á milli Rússlands
og annarra ríkja við Eystrasalt,
sem flest eru í Atlantshafsbanda-
laginu. Waszczykowski segir banda-
lagið hafa átt þann einn kost að
styrkja stöðu sína í austri. „Þetta
hefur verið erfitt ástand, sem Rúss-
ar hafa skapað. Og við skulum hafa
það á hreinu að hegðun þeirra er
yfirgengileg og árásargjörn,“ segir
Waszczykowski.
Máli sínu til stuðnings vísar hann
til innrásar Rússa í Georgíu 2008,
átökin í Úkraínu og innlimun Krím-
skagans auk stuðnings þeirra við
uppreisnina í Donbass-héruðum
Úkraínu. „Eina svarið sem hægt
var að veita við þessu, var það sem
samþykkt var á fundi Atlantshafs-
bandalagsins í Varsjá á síðasta ári,
að virkja „austurvæng“ bandalags-
ins með því að staðsetja hersveitir í
Póllandi, Eystrasaltsríkin og Rúm-
eníu.“
Waszczykowski leggur áherslu á
að ákvörðunin hafi verið rökrétt og
ætlað að verja ríki bandalagsins og
fæla Rússa frá því að gera árás.
„Það er ekki síður mikilvægt það
sem við ákváðum líka [í Varsjá],
sem var að halda öllum sam-
skiptalínum til Rússlands opnum,“
segir Waszczykowski.
„Það veltur á Rússum að nýta
sér þær til þess að skýra út ástand-
ið, bæði hernaðarlega og pólitískt,
með því að eiga samtal og samráð
við okkur. Það er því synd að Lavr-
ov nýtti ekki tækifærið til þess að
taka þátt í fundinum hér, bæði til
þess að hlusta á áhyggjur okkar, en
einnig til þess að útskýra fyrir okk-
ur hverjar fyrirætlanir Rússa séu.“
NATO er að bregðast við
En sér Waszczykowski von til
þess að samskipti Rússlands við
Vesturlönd skáni á næstunni? „Allir
lyklarnir að bættum samskiptum
milli Atlantshafsbandalagsríkjanna
og Rússa eru í Moskvu. Bandalagið
hefur ekki áætlanir um árás og það
vill ekki vera í sóknarstöðu. Banda-
lagið er að bregðast við þeirri stöðu
sem Rússar hafa tekið sér. Það
voru Rússar sem ákváðu að setja
þrjár herdeildir til viðbótar við
vesturlandamæri sín. Það voru
Rússar sem innlimuðu landsvæði
fullvalda ríkis og það eru Rússar
sem eru að ýta undir alls kyns ögr-
andi atvik í Evrópu,“ segir
Waszczykowski og nefnir einnig
átökin í Sýrlandi sem dæmi um það
hvernig Rússar séu nú að þenja út
áhrif sín og ítök.
„Atlantshafsbandalagið ákvað að
bregðast við. Ef það reynist ekki
nóg þurfum við að hugsa um það
hverju við getum bætt við til þess
að tryggja friðinn í álfunni.“
Waszczykowski leggur einnig
áherslu á það að bandalagsríkin
framfylgi ákvörðun sinni um að
verja 2% af þjóðarframleiðslu sinni
til varnarmála.
„Það er mjög mikilvægt, því að
við getum ekki tekið frið og öryggi
sem gefnum hlut.“ Hann bendir á
að Pólland sé á landfræðilega erf-
iðum stað og því tilneytt til að eyða
miklu í varnarmál. „Það er ekki
deilt um það í heimalandi mínu og
ég vona að hin bandalagsríkin muni
einnig verja því sem þarf til þess
að verja sameiginlegt öryggi okk-
ar.“
Geta ekki einblínt á Brexit
Talið berst að Evrópusamband-
inu, sem hefur ekki siglt lygnan sjó
á síðustu árum. Spurður um fram-
tíð sambandsins, sérstaklega í ljósi
væntanlegrar útgöngu Breta, Brex-
it, segir Waszczykowski að ESB
muni þurfa að takast á við ýmis
vandamál á næstu árum.
„Brexit er útkoman úr nokkrum
óleystum vandamálum sem hafa
hrjáð Evrópusambandið um hríð.
Þar á meðal er til dæmis spurn-
ingin hvort við ættum að stækka
sambandið út á við eða auka á sam-
runaferlið? Við höfum glímt við það
um árabil og nú, í staðinn fyrir
stækkun sambandsins fáum við
Brexit,“ segir Waszczykowski.
„Það er synd, því að við munum
missa næststærsta hagkerfi Evr-
ópu, kjarnorkuveldi og fastafulltrúa
í Öryggisráðinu og lykilaðila í Atl-
antshafsbandalaginu. Við verðum
því að ígrunda það vel hvers vegna
þetta gerðist, hverju var um að
kenna og hvernig við getum lagað
Evrópusambandið og hvers vegna
svona mikilvægt ríki ákvað að stíga
það afdrifaríka skref að yfirgefa
það.“
Hins vegar sé ekki hægt að ein-
blína bara á Brexit, þar sem önnur
vandamál bíði einnig úrlausnar.
„Við verðum að ræða umbætur á
Evrópusambandinu, við verðum að
ræða hvernig eigi að leysa vanda-
málin sem eru í nágrenni sam-
bandsins, eins og til dæmis átökin í
Úkraínu og í Mið-Austurlöndum
sem enn eru óleyst, eða Líbýu. Og
við þurfum að leysa þetta allt á
sama tíma og Brexit-viðræðurnar
eiga sér stað,“ segir Waszczy-
kowski.
Hann bætir við að ef Evrópu-
sambandsríkin einbeiti sér um of að
útgöngu Breta og láti hin vanda-
málin vera, þá muni aðrir taka sig
til við að leysa þau. „Og sú úrlausn
verður ekki endilega hagkvæm fyr-
ir Evrópu. Þannig að Evrópu-
sambandið þarf að huga bæði að
innri málefnum sínum og þeim
utanaðkomandi ógnum sem steðja
að.“
Styrkur í verunni innan ESB
Spurður um umsókn Íslands að
Evrópusambandinu og því hvort að
við ættum að sækja um að nýju
segir Waszczykowski það alfarið
vera ákvörðun Íslands sem full-
valda ríki.
„Það sem ég myndi segja við
ykkur er að Evrópusambandið er
samtök ríkja sem vilja öðrum vel.
Flest ríki hafa bætt stöðu sína á
verunni þar og ég tel að það sé
betra að vera hluti af stórri heild
sem getur beitt sér á alþjóðavett-
vangi heldur en að reyna að leysa
vandamálin einn síns liðs, og það
gildir alveg sérstaklega fyrir smá-
ríki. Að því sögðu myndi ég vara
ykkur við því að vera raunsæ. Við
vorum ögn auðtrúa fyrir tuttugu
árum og trúðum því að það yrði
nóg að ganga í sambandið og sam-
þykkja löggjöf þess til þess að
bæta líf okkar. Evrópusambandið
er hins vegar í grunninn samansafn
ákveðinna staðla og hefða, og það
veltur á aðildarríkjunum sjálfum að
beita þeim.“
Hann bætir við að sambandið
hafi í gegnum sögu sína náð að
áorka miklu en einnig brugðist að
sumu leyti. „Í heildina hefur Evr-
ópusambandið hins vegar komið að-
ildarríkjum þess til góða.“
Lyklarnir eru í höndum Rússa
Witold Waszczykowski, utanríkisráðherra Póllands, heimsótti landið í síðustu viku vegna fundar
Eystrasaltsráðsins Segir Evrópusambandið standa frammi fyrir ýmsum áskorunum á næstunni
AFP
Utanríkisráðherra Witold Waszczykowski, utanríkisráðherra Póllands, var hér á landi í síðustu viku vegna ráð-
herrafundar Eystrasaltsráðsins. Hann segir að Rússar haldi á lyklunum að bættum samskiptum austurs og vesturs.
Ljósmynd/Marta Magdalena Niebieszczanska
Ráðherrar hittast Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tekur í höndina á Waszczykowski við upphaf fund-
ar þeirra í síðustu viku, en þetta var fyrsta opinbera heimsókn utanríkisráðherra Póllands til Íslands frá árinu 1976.
Dr. Witold Waszczykowski er
fæddur 5. maí 1957. Hann er
með doktorspróf í sagnfræði
frá háskólanum í Lodz, þar
sem hann kenndi frá 1981 til
1987 en hann lærði einnig al-
þjóðafræði og hlaut meist-
aragráðu í þeim frá Oregon-
háskóla í Bandaríkjunum.
Waszczykowski á að baki
langan feril í alþjóðamálum.
Hann var ráðinn til pólska ut-
anríkisráðuneytisins árið
1992, á sama tíma og hann
stundaði framhaldsnám um
alþjóðleg öryggismál í Genf í
Sviss. Hann varð yfirmaður
sendiskrifstofu Póllands hjá
Atlantshafsbandalaginu árið
1997 og var þar til ársins
1999 þegar hann var skip-
aður sendiherra Póllands í Ír-
an.
Waszczykowski var
aðstoðarutanríkisráðherra
Póllands á árunum 2005 til
2008 og náði kjöri til pólska
þingsins árið 2011. Hann hef-
ur gegnt starfi utanríkis-
ráðherra frá 2015.
Langur ferill í
alþjóðamálum
WITOLD WASZCZYKOWSKI