Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 44

Morgunblaðið - 30.06.2017, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Þorskurinn er mikilvægasti fisk- stofninn á Íslandsmiðum og sá sem ár eftir ár skilar flestum krónum í þjóðarbúið. Aukning aflaheimilda um 6% á næsta fiskveiðiári skiptir því gríðarlega miklu máli. Hafa má í huga að ekki eru nema tíu ár síðan þorskstofninn stóð mjög veikt og hart var á dalnum í mörgum sjávar- byggðum samfara miklum samdrætti aflaheimilda. Horfurnar nú eru hins vegar já- kvæðar og búast má við að viðmið- unarstofn þorsks stækki nokkuð frá sem hann er nú. Sjávarútvegs- ráðherra, Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir, ákvað í síðustu viku að fara að ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar og verður leyfilegur heildarafli 257.572 tonn á fiskveiði- árinu 2017/18, en er á þessu fiskveiði- ári 244 þúsund tonn. Ráðherra fylgdi ákvörðun sinni úr hlaði og sagði þar að í heildina væri ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar góð tíðindi „sem benda eindregið til þess að stjórn fiskveiða hér við land hafi verið ábyrg á síðustu árum“. Það er athyglisvert að þegar rýnt er í gögn og upplýsinga aflað hjá Haf- rannsóknastofnun kemur fram að stækkun þorskstofnsins í ár miðað við það síðasta byggir fyrst og fremst á aukinni meðalþyngd, en síður á ný- liðun í stofninum. Í ástandsskýrslu Hafrannsókna- stofnunar segir meðal annars: „Hrygningarstofn hefur stækkað á undanförnum árum og hefur ekki verið stærri í fjörutíu ár. Veiðihlutfall hefur lækkað og er það lægsta á stofnmatstímabilinu. Nýliðun hefur verið fremur stöðug síðan 1988 (að meðaltali um 140 milljónir 3 ára ný- liða) en mun minni en hún var árin 1955–1987 (meðaltal um 205 milljón- ir). Stækkun stofnsins er því fyrst og fremst afleiðing minnkandi sóknar.“ Meðaljónar miðað við fyrra tímabil Einar Hjörleifsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, er spurður um skýringar á minni nýliðun á sama tíma og stofninn hefur styrkst. „Í sjálfu sér er lítið um haldbærar skýringar á minni nýliðun og serían frá miðjum níunda áratugnum er sér- kennileg,“ segir Einar. „Síðasti stóri árgangurinn er frá 1984 en síðan hef- ur nýliðun að meðaltali verið um 30% lægri. Mjög lélegir árgangar urðu tíðari þegar hrygningarstofninn var í lágmarki á tíunda áratugnum en jafnvel topparnir sem þó hafa sést eru aðeins meðaljónar miðað við fyrra tímabil. Menn hafa verið að tengja eldri seríuna við tímabil þegar við fengum innflæði af Grænlands- göngum, en það er hæpin skýring ein og sér. “ Í ástandsskýrslu Hafró kemur fram að árgangurinn frá 2013 sé met- inn slakur, en árgangar 2014 og 2015, sem koma í veiðina 2018 og 2019, séu við langtímameðaltal. Fyrsta mæling á árgangi 2016 bendi til að hann sé slakur, en sá árgangur kemur ekki inn í viðmiðunarstofninn fyrr en árið 2020. Hlutfallslega er meira af eldri fiski í afla nú en undanfarinn áratug. Afli á sóknareiningu helstu veiðarfæra hef- ur verið hár á undanförnum árum. Meðalþyngd eftir aldri í afla hefur aukist undanfarin ár og var árið 2016 nálægt langtímameðaltali (1955- 2016). Aflaregla í þorski frá 1995 Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er byggt á aflareglu. Sem nýtingar- stefnu til langs tíma var aflareglu fyrst komið á fyrir fiskveiðiárið 1995- 1996, til að tengja betur saman stofn- stærð og leyfilegan heildarafla á þorski. Í fyrstu var miðað við 25% aflareglu, þ.e. að veiða mætti 25% af viðmiðunarstofni þorsks, fjögurra ára og eldri. Það þótti ekki skila nægjanlegum árangri og lengi vel var afli talsvert umfram leyfilegan hámarksafla þar sem ýmsir þættir bættust við úthlutaðar heimildir. Veiðihlutfallið var lækkað í 20% af viðmiðunarstofni frá og með fisk- veiðiárinu 2008/09. Einar segir að hugsunin með að lækka veiðihlutfalllið í 20% hafi ekki verið að minnka afla til lengri tíma litið heldur að hafa stofninn aðeins stærri að jafnaði en ná þó svipuðum eða meiri afla úr honum. Eins og áður sagði hefur meðal- þyngd aukist og segir Einar að aukn- ing aflaheimilda nú sé að stórum hluta vegna þyngdaraukningar. Við- miðunarstofn er fjögurra ára fiskur og eldri og er reiknaður út frá fjölda fiska eftir aldri og meðalþyngd í afla. Þar sem meðalþyngd í afla fyrir árið 2017 liggur ekki fyrir er byggt á spá þar sem stuðst er við meðalþyngd eftir aldri í rallinu síðasta vor. Þyngdir 3-9 ára í vorrallinu 2017, sem eru notaðar til að spá um þyngd- ir í afla í viðmiðunarstofni í ár, eru í mikilvægustu aldurshópum nokkuð hærri í ár en verið hefur síðustu árin. „Meðalþyngdir hækkuðu tiltölu- lega mikið í rallinu miðað við meðal- þyngdir í fyrra,“ segir Einar. „Ein- staklingum hefur ekki fjölgað í sama hlutfalli og þyngd hefur aukist. Hærri meðalþyngd í vorralli er stærsti einstaki þátturinn í stækkun viðmiðunarstofns nú.“ Breytingar í kynþroska Athygli vekur að þorskur á Ís- landsmiðum verður kynþroska síðar núna en var í byrjun aldarinnar, en miðað hefur verið við að þorskur yrði kynþroska 5-7 ára. Þannig var hlut- fall kynþroska sex ára fisks um 50% í kringum 2000 en er nú undir 30%. „Það er spurning hvort þetta teng- ist því að stofninn hefur stækkað og ef mikið er af fiski í sjónum verði hann síðar kynþroska. Þetta séu stærðar- eða þéttleikaháð viðbrögð og eigi sér líffræðilegar skýringar. Þetta er svolítið sérstakt og öfug þró- un við það sem ýmsir hafa haldið fram að stífar veiðar og minni stofn hafi þau áhrif að fiskur verði erfða- fræðilega fyrr kynþroska.“ Minni sókn – aukin meðalþyngd  Nýliðun í þorskstofninum um þriðjungur af því sem var fyrir 1984  Afli á sóknareiningu helstu veiðarfæra hefur verið hár á undanförnum árum  Þorskurinn verður seinna kynþroska en áður Þorskstofninn á uppleið – þróunin síðustu 40 ár Viðmiðunarstofn þorsks í þúsundum tonna Heildarþorskafli á Íslandsmiðum í þús. tonna Hlutfall heildarafla af viðmiðunarstofni 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 1977–1986 1987–1996 1997–2006 2007–2016 1980 (stærsti viðmiðunarstofn) Viðmiðunarstofn: 1.490 þús. tonn Heildarafli: 434 þús. tonn (29%) 1981 (mesti heildarafli) Viðmiðunarstofn: 1.243 þús. tonn Heildarafli: 469 þús. tonn (38%) H ei m ild :H af ra nn só kn as to fn un 2016 Viðmiðunarstofn: 1.330 þús. tonn Heildarafli: 251 þús. tonn (19%) 2008 (minnsti heildarafli) Viðmiðunarstofn: 699 þús. tonn Heildarafli: 147 þús. tonn (21%) 1992 (hæsta aflahlutfall) Viðmiðunarstofn: 553 þús. tonn Heildarafli: 268 þús. tonn (48%) Aflaregla Var fyrst komið á fyrir fiskveiðiárið 1995– 1996. Í fyrstu var miðað við 25% aflareglu, þ.e. að veiða mætti 25% af viðmiðunarstofni þorsks. Síðar var reglunni breytt í 20% af viðmiðunarstofni. Þús. tonn Hlutfall Einar Hjörleifsson Aðeins er áratugur síðan blikur voru á lofti í sjávarútvegi og aflaheimildir voru skertar verulega í þorski og fleiri tegundum. „Eitt fyrsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar var að takast á við þau ótíðindi sem bárust snemma sumars um slæmt ástand þorskstofnsins. Hafrannsóknastofnun lagði til verulegan niðurskurð á þorskaflanum og öllum var ljóst að áhrifin yrðu gríðarlega mikil, eink- um fyrir útgerðir og einstök byggðarlög. Sjávarútvegsráðherra tók þá ákvörðun, með fullum stuðningi ríkisstjórnarinnar, að fara að tillögum vísindamannanna og hljóta allir að vona að hún leiði til hraðari uppbygg- ingar þorskstofnsins en ella hefði verið. Samhliða niðurskurðinum ákvað ríkis- stjórnin að ráðast í umfangsmiklar mót- vægisaðgerðir til þess að draga úr búsifjum af hans völdum. Mestu skiptir hins vegar að þeir sem nú taka á sig aflaskerðingu fái not- ið ávaxtanna þegar stofninn styrkist á nýjan leik,“ sagði Geir H. Haarde, þáverandi for- sætisráðherra, við áramót 2007/08. Horfið var frá 25% aflareglu fiskveiðiárið 2007/08 og aflaheimildir í þorski skornar niður verulega umfram það sem aflaregla hefði heimilað. Leyfilegur þorskafli var skorinn niður um 63 þúsund tonn, úr 193 í 130 þúsund tonn fiskveiðiárið 2007-2008. Einar K. Guðfinnsson var sjávarútvegs- ráðherra og var ákvörðunin tekin í ljósi upp- lýsinga sem lágu fyrir um stöðu þorskstofns- ins, stærð viðmiðunarstofns og hrygningar- stofns. Jafnframt var ákveðið að aflaregla yrði tekin upp að nýju fiskveiðiárið 2008/2009 og þá yrði leyfilegur þorskafli 20% afla úr við- miðunarstofni en þó ekki lægri en 130 þús- und tonn. Miklu réði um þessa ákvörðun að Hafrannsóknastofnunin taldi að með óbreyttri sókn, 25% af viðmiðunarstofni, myndi stofninn minnka enn á næsta ári á eft- ir og því augljóst að stjórnvöld hefðu staðið frammi fyrir enn skarpari niðurskurðar- tillögum árið eftir. Í ritstjórnargrein í Morgunblaðinu sagði svo meðal annars þegar ákvörðun um nið- urskurð aflaheimilda lá fyrir: „Það er alveg sérstök ástæða til að fagna ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnarinnar um að fylgja ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar um þorskafla á næsta fiskveiðiári. Þessi ákvörðun var erfið og hún kallar margvíslega erfiðleika yfir fólk og fyrirtæki í landinu og þá alveg sérstaklega í sjávarþorpunum í kringum landið, en hún leiðir til þess að í fyrsta skipti verður raun- verulega látið á það reyna, hvort fiskifræð- ingarnir hafa rétt fyrir sér.“ aij@mbl.is Niðurskurður Forsíða Morgunblaðsins á sjó- mannadag 2007 með frétt um ráðgjöf Hafró. Ótíðindi af þorskin- um fyrir áratug
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.