Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 67
67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
„Hanky-Panky er kokkteillinn sem ég gríp
oftast til. Hann er blandaður með gini, sætum
vermút og Fernet-Branca. Hann var hannaður
af konu sem hét Ada Coleman, fyrsta kvenkyns
barþjóninum á Savoy-hótelbarnum. Ég held að
hún hafi fyrst búið hann til árið 1903 fyrir fræg-
an leikara og það átti að vera kokkteillinn hans.
Hann er beiskur, fágaður og þægilegur og get-
ur virkar jafnt í sumarsólinni sem um vetur og
haust.“
Það er ekki sama hvernig kokkteill er búinn
til og framreiddur. Bjartur segir að metnaður
sé það helsta sem skilji að tvo kokkteila sem
bera sama nafn. „Af hverju ekki að taka þetta
einu skrefi lengra? Til dæmis með því að
breyta úr glasi í dós, úr krús í könnu. Ég vil að
einhver hugsi helst „vá“ þegar ég ber fram
drykkinn. Það gerir maður til dæmis með því
að skreyta hann fallega. Þetta er ekki lengur í
sama fasta forminu, maður þarf alltaf að leggja
sig allan fram í þjónustu en kokkteilarnir sjálf-
ir eru ekki jafn staðlaðir og áður.“ Hann bætir
við að það sem einkenni góðan kokkteilbarþjón
sé samkvæmni, þannig að viðskiptavinurinn
geti gert ráð fyrir að fá nákvæmlega eins
drykk eftir hálft ár og hann fékk í dag. Kokkt-
eillinn þarf að vera eins á bragðið og í minning-
unni.
„Síðan er það þjónustan, þú getur náð langt
með því að heilsa kúnnanum um leið og hann
kemur inn um dyrnar. Það er gott að spyrja
hvernig drykkurinn bragðast og ef honum líkar
hann ekki spyr ég hvað megi fara betur.“
Óþarfi að flækja drykkinn
Bjartur segir að stundum séu kokkteilar
flæktir um of, hann reynir að nota ekki of mikið
af hráefnum í hvern drykk og er ekki hrifinn af
löngum innihaldslýsingum. Hvernig drykkur
er gerður veltur hins vegar endanlega á bar-
þjóninum.
„Maður fær innblástur frá uppskriftum og
síðan má allt, þetta er opinn markaður og allir
hafa sinn smekk. Sumir myndu segja að það
sem ég geri sé algjört kjaftæði en ég þróa minn
stíl og geri það sem mér finnst vera rétt.“
Að viðtali loknu fékk blaðamaður að bragða á
„Hauki í horni“, ljúffengum lakkrís- og blá-
berjakokkteil, sem er nefndur eftir ótil-
greindum Hauki sem kíkir við endrum og eins.
Sá hængur er á að Rosenberg hefur lofað
Hauki að afgreiða engum drykkinn nema hon-
um sjálfum og því er til lítils að reyna að panta
hann á barnum.
„Vá!“
Kokkteilagerð Bjartur beitir ýmsum framandi aðferðum til þess að fullkomna kokkteilinn.
25 ml gin
25 ml Luxardo Maraschino (kirsuberjalíkjör)
25 ml grænn Chartreause (franskur munkalíkjör)
25 ml límónusafi
„Klassískur drykkur og fullkominn til þess
að reyna örlítið meira á pallettuna. Örlítið
súr, örlítið sætur og örlítið kryddaður. Ef þú
vilt taka skrefið í áttina að dýpri þekkingu á
kokkteilamenningu er The Last Word full-
kominn til að vísa veginn. Bæði ferskur og
flókinn.“
The Last Word
VÍKURVAGNAR EHF.
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
FARANGURSBOX ÁALLARGERÐIR BÍLA
STÆRÐIR 360 - 550 LÍTRA - VÖNDUÐ EVRÓPSK FRAMLEIÐSLA.
VERÐ FRÁ = 59.500