Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 70
70 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
✝ Guðmundurfæddist á Hell-
issandi 9. ágúst
1928. Hann lést á
Landakotsspítala
15. júní 2017.
Foreldrar hans
voru Júlíus Alex-
ander Þórarinsson,
sjómaður og verka-
lýðsforingi á Hellis-
sandi, f. 1889, d.
1964, og Sigríður
Katrín Guðmundsdóttir hús-
freyja, f. 1895, d. 1969. Börn
þeirra voru fimm: Jón, Guð-
mundur, Hrefna, Þuríður og
Þórður en Þuríður er ein eft-
irlifandi þeirra systkina. Guð-
mundur átti eina hálfsystur,
Lilju Jónsdóttur, sem lifir bróð-
ur sinn.
Árið 1959 kvæntist Guð-
mundur Katrínu Stellu Briem, f.
20.2. 1935 í London. Börn þeirra
Guðmundur tók stýrimannspróf
í Noregi. Hann var stýrimaður á
norskum fraktskiptum að loknu
námi í Noregi og stundaði sigl-
ingar ásamt Katrínu allt þar til
þau hófu verslunarrekstur. Þau
stofnuðu Kjörbúð Vesturbæjar á
Melhaga í Vesturbæ Reykjavík-
ur árið 1964 og keyptu Melabúð-
ina árið 1979 sem hann rak
ásamt sonum um árabil þar til
hann settist í helgan stein. Guð-
mundur var virkur félagi í
Lionshreyfingunni, var formað-
ur Lionsklúbbs Reykjavíkur um
tíma og fékk alþjóðlega við-
urkenningu hreyfingarinnar,
Melvin Jones Fellow award, fyr-
ir félagsstörf sín. Guðmundur
var einn af stofnendum Þinnar
verslunar, samtaka smásölu-
verslana og félagi í Kaupmanna-
samtökum Íslands. Guðmundur
hafði mikinn áhuga á hesta-
mennsku seinni árin og undi sér
mest við útreiðar og samgang
við hesta sína á landskika við
bústað þeirra hjóna við Eystri-
Rangá.
Útför Guðmundar fer fram
frá Neskirkju í dag, 30. júní
2017, klukkan 15.
eru: 1) Friðrik Ár-
mann, f. 31.7. 1960,
eiginkona Rúna
Hauksdóttir
Hvannberg, f. 2.7.
1962. Börn þeirra
eru: a) Rúna, f. 2.7.
1990, sambýlis-
maður Mattia
Pozzi, f. 9.11. 1973,
b) Katrín Stella
Briem, f. 30.12.
1997. 2) Pétur Alan,
f. 29.9. 1963. 3) Snorri Örn, f.
26.6. 1970. Fyrrverandi eig-
inkona, Maríanna Garðars-
dóttir. Börn þeirra eru: a) Maja
Snorradóttir, f. 10.4. 2001 og
Arna Snorradóttir, f. 28.8. 2003.
Núverandi sambýliskona Lisa
Knutsson, f. 20.12. 1977.
Guðmundur ólst upp á Hellis-
sandi en fór snemma frá heima-
högum til að vinna fyrir sér við
vegavinnugerð og sjómennsku.
Guðmundur tengdafaðir minn
er látinn í hárri elli og saddur
lífdaga. Samferð okkar spannar
rúmlega 30 ár og var með ágæt-
um. Hann lét mig alltaf finna
hversu ánægður hann var með
mig sem tengdadóttur og það
var gott. Ég geri ráð fyrir að
honum hafi fundist það tilbreyt-
ing að fá stúlku svona snemma í
strákahópinn sinn og svo bættist
nú heldur við því svo eignaðist
hann fjórar sonardætur og
strákarnir þrír voru komnir í
minnihluta.
Mamma mín og Guðmundur
áttu það sameiginlegt að hafa
flutt úr sveitinni ung og stofnað
sína eigin verslun. Þeim þótti
gaman að spjalla saman um
verslunarrekstur og skildu það
bæði hversu mikilvægt það var
að vera í góðum tengslum við
viðskiptavinina.
Ég velti oft fyrir mér hvað
það hlaut að hafa verið skrýtið
fyrir pilt frá Hellisandi að sigla
um öll heimsins höf – flytja
skipsfarma af ávöxtum sem
hann hafði aldrei séð áður, sigla
í gegnum Panamaskurðinn ný-
opnaðan og svo til Japans með
ungan son og eiginkonu með sér
í för.
Það voru líka mikil viðbrigði
fyrir pilt sem ólst upp í stórum
systkinahópi í litlu húsi á Sandi
að búa síðan í einbýlishúsi á
Laugarásveginum þar sem her-
bergin voru fleiri en börnin. En
inn við beinið var hann alltaf
strákurinn vestan af Sandi og
þangað þótti honum gott að
koma.
Við Guðmundur og Katrín
ferðuðumst töluvert saman bæði
innanlands og utan. Innanlands
var gjarnan ferðast á hestum og
þegar farið var til útlanda var
farið í sól og hita. Hlutirnir voru
ekki flóknir hjá honum tengda-
pabba.
Guðmundur var afskiptalítill í
barnauppeldinu eins og margir
menn af hans kynslóð en hann
vildi samt hafa strákana sína
með sér í leik og starfi og það
gekk heldur betur eftir. Bestu
eftirmæli hans eru hversu góðir
og umhyggjusamir strákarnir
hans voru við hann á ævikvöld-
inu. Sameiginlega lögðu þeir sig
fram um að sinna honum af
natni og ástúð, hvort sem það
var að skreppa með hann í ísbíl-
túr, færa honum uppáhaldsbakk-
elsið eða skála við hann í eft-
irlætisviskíinu.
Takk, kæri tengdapabbi, fyrir
samfylgdina og gakktu á guðs
vegum.
Rúna Hauksdóttir
Hvannberg.
Ég var lánsamur að ráðast í
vinnu til hjónanna Guðmundar
og Katrínar í Kjörbúð Vestur-
bæjar fyrir tæpum fjórum ára-
tugum. Ég starfaði þar í ár til að
læra af meistaranum. Guðmund-
ur kom af sjónum en hann hafði
ferðast um heimsins höf sem
stýrimaður – tók síðan við að
byggja upp rekstur kjörbúðar-
innar. Það gekk vel og fljótt varð
þar góð verslun og hélst alla tíð.
Tryggur viðskiptamannahópur
úr Vesturbænum kom þar og
verslaði og fór helst ekki annað.
Guðmundur var duglegur og
aldrei man ég eftir því að hann
hafi sest niður nokkurn tíma til
að hvílast. Hann tók öllum vel og
af mikilli hlýju sem þurftu að
ræða við hann. Glaðsinna og vel-
viljaður við sína viðskiptavini var
hann alltaf og lagði mikið upp úr
gæðum á öllum sviðum. Hann
tók síðan við Melabúðinni og
fluttu viðskiptavinirnir sig með
þeim hjónum. Þau Guðmundur
og Katrín settu skemmtilegan
andblæ í verslunina með per-
sónuleika sínum. Katrín stór-
glæsileg með mikla reisn og út-
geislun ásamt því að vera hlátur-
mild og gefandi. Guðmundur
vinalegur og jákvæður og hvers
manns hugljúfi. Þeim hélst ætíð
vel á starfsfólki sem starfaði vel
í anda þeirra og hafa nokkrir
starfað hjá þeim í áratugi.
Strákarnir þeirra Pétur og Frið-
rik tóku keflið og hafa síðan rek-
ið verslunina og gert að einni
þekktustu verslun landsins.
Hafa þeir bræður þróað versl-
unina enn frekar í tímans rás.
Melabúðin er góður minnisvarði
um kaupmanninn á horninu sem
við svo mörg fengum að kynn-
ast. Kaupmaðurinn sem þekkti
sína viðskiptavini og fjölskyldur.
Mín mestu kynni af Guð-
mundi og Katrínu eru í gegnum
hestamennsku og ferðalög á
hestum á víðernum landsins.
Farnar voru ferðir í fjölskyldu-
tengdum vinahóp um miðhálend-
ið, t.a.m. Fjallabak. Guðmundur
sem hafði verið duglegur og
lunkinn laxveiðimaður og ekki
svo hestsinnaður smitaðist af
miklum hestaáhuga Katrínar og
má segja að veiðistönginni hafi
síðar verið úthýst. Snorri yngsti
sonur þeirra var jafnan með í
þessum fyrstu ferðum okkar.
Síðar tóku við nokkrar ferðir
með hestamannafélaginu Fáki
og svo fór Guðmundur með mér
fjórar vikuferðir með Íshestum
þar sem ég starfaði sem far-
arstjóri. Fórum við m.a. tvær
ferðir í Mývatnssveit, eina yfir
Kjöl og síðan ferð á Löngu-
fjörur. Var Guðmundur þá kom-
inn vel á áttræðisaldurinn, átti
gæðinga sem voru viljugir og
kraftmiklir. Í ferðunum gætti ég
vel að því að halda við klárinn,
þar til hann var kominn í hnakk-
inn. Þegar Guðmundur var kom-
inn í hnakkinn þá sat hann hnar-
reistur og var „kóngur um
stund“. Guðmundur var hvergi
meira í essinu sínu en í hesta-
ferðunum. Hann var glaðsinna
og hláturmildur, naut þess að
segja stuttar skemmtisögur og
var góður tungumálamaður.
Hann naut þess mikið að fara í
þessar ferðir en hann gaf líka
vel af sér. Hef ég oft verið
spurður um Guðmund af þeim
sem ferðuðust með okkur og
alltaf af mikilli hlýju og áhuga.
Einnig höfum við Guðmundur
verið félagar í þeim ágæta fé-
lagsskap Lionsklúbbi Reykjavík-
ur.
Með virðingu og þakklæti
kveð ég kæran félaga og vin og
votta Katrínu og strákunum
mína samúð.
Þormar Ingimarsson.
Dagurinn er daginn fyrir
sprengidag, fyrir ca. 30 árum,
sviðið er kjötborðið í Melabúð-
inni. Það er handagangur í öskj-
unni, húsmæður í Vesturbænum
bíða í röð eftir að fá afgreitt salt-
kjötið fyrir sprengidag. Sá sem
stendur og stjórnar öllu af rögg-
semi er kaupmaðurinn í Mela-
búðinni, Guðmundur sjálfur.
Stelpuhnokkinn fylgist með
álengdar, henni finnst kaupmað-
urinn svo flottur í hvíta búð-
arjakkanum, búðin hans er stór
og það er hægt að kaupa allan
heiminn í Melabúðinni. Árin liðu
og stelpan óx og dafnaði alveg
eins og Melabúðin, alltaf jafn-
gaman að hitta Guðmund í búð-
inni, spurt var frétta, málefni líð-
andi stundar rædd. Þegar
stelpan fór utan í nám til Noregs
kom í ljós að hún var að stúdera
á sömu slóðum og kaupmaðurinn
hafði eitt sinn starfað og í jóla-
leyfinu það árið voru minningar
rifjaðar upp og hann komst að
því að sumt var enn á sínum stað
á gömlum slóðum. Eftir að búð-
arjakkinn var hengdur upp og
synir teknir við rekstrinum var
enn skemmtilegra að hitta Guð-
mund í búðinni, hann fagnaði
manni innilega og spurði frétta.
Það var ánægjulegt að hlusta á
hann segja frá hestunum sínum,
það var gott að heyra að hann
naut þess að vera kominn á efri
ár. Melabúðin er nokkurs konar
félagsmiðstöð okkar í Vestur-
bænum og þótt stelpunni hafi
þótt búðin stór þegar hún var
yngri þá hefur hún, eftir að hún
komst til vits og ára, áttað sig á
því að fermetrafjöldinn er ekki
svo ýkja mikill. Þrátt fyrir
smæðina í grunnfleti virðist það
einhvern veginn þó vera þannig
að það fæst allt í búðinni og and-
rúmsloftið sem Guðmundur
skapaði, og strákarnir hans hafa
haldið á lofti, gerir hana ómet-
anlegan gimstein í hverfinu.
Þegar stelpan spurði pabba sinn
hvort hann ætlaði ekki með
henni í Costco til að kíkja á am-
erísku dýrðina var svarið frekar
einfalt: „Í Costco? Nei, þangað
fer ég aldrei inn. Ef hluturinn er
ekki til hjá honum Guðmundi í
Melabúðinni þá þarf ég ekki á
honum að halda!“
Við, fjölskyldan á Víðimel 51,
vottum Katrínu, Pétri, Friðriki,
Snorra og fjölskyldum þeirra
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Guð-
mundar kaupmanns í Melabúð-
inni.
Ásta Camilla Gylfadóttir.
Það er með söknuði sem ég
kveð kæran vin, Guðmund Júl-
íusson.
Fyrstu kynni okkar voru fyrir
52 árum, þegar ég sótti um sum-
arvinnu í Kjörbúð Vesturbæjar.
Kynni okkar þróuðust yfir í góða
vináttu alla tíð.
Það eru margar skemmtilegar
og fallegar minningar sem við
eigum við ferðalok.
Kjörbúð Vesturbæjar, Mel-
haga 2, lokaði um helgar frá há-
degi á laugardegi, árið 1965. Í þá
daga var ein reiknivél, peninga-
skúffa og lagerinn í bílskúrnum.
Þetta voru ævintýralegir tímar,
fjórir starfmenn; Þórunn, Helga,
Sigrún og ég, sem var þá lang-
yngst.
Einn laugardaginn bauð Guð-
mundur okkur öllum á Hótel
Sögu í Súlnasalinn í opnar sam-
lokur og kaffi fyrir vel unnin
störf . Þetta var í fyrsta skipti
sem við komum á Hótel Sögu og
fannst okkur við verða heims-
borgarar á eftir.
Þetta sumar fóru Guðmundur
og Katrín Stella með synina tvo,
Friðrik og Pétur, vestur að veiða
og fengum við Helga sem vann
líka í búðinni að fara með. Þetta
var mjög skemmtileg ferð hjá
okkur öllum.
Guðmundur var mjög hávax-
inn og grannur, þvílíkt snyrti-
menni, hörkuduglegur, sann-
gjarn og mikill kaupmaður, sem
gerði miklar kröfur til síns og
annarra. Það var t.d. allt kapp
lagt á að veita sem besta þjón-
ustu og allar vörur og kjöt í
hæstu gæðum. Guðmundur
verkaði allt kjötið sjálfur. Frægu
kindakjötskæfuna bjó hann til á
staðnum en í upphafi bjó Katrín
Stella hana til heima. Besta kæf-
an enn í dag.
Þegar jólafrí var í skólanum
bauð hann mér vinnu í fríinu og
borgaði Guðmundur mér 13.
mánuðinn eins og öðrum starfs-
mönnum.
Guðmundur var alltaf í hvít-
um stíf straujuðum afgreiðslu-
jakka, í hvítum tréklossum við
búðarborðið á fullri ferð. Hann
ruggaði sér fram og aftur eins
og hann væri á fullri ferð á sjón-
um enda stýrimaður til margra
ára áður fyrr.
Guðmundur í Melabúðinni var
hornsteinn Vesturbæjar. Mela-
búðin er enn í dag hálfgerð fé-
lagsmiðstöð, þar hittist fólk úr
öllum þjóðfélagsstigum og póli-
tík að sjálfsögðu rædd.
Seinni árin tóku hestar,
hundar og sumarbústaðurinn
við. Enda reksturinn í mjög góð-
um höndum nýju kynslóðarinn-
ar. Synirnir halda áfram með
eina bestu nýlenduvöruverslun
sem eftir er á höfuðborgarsvæð-
inu, sannkölluð delicatessen.
Guðmundur var frá Hellis-
sandi og í seinni tíð kom í ljós að
við vorum skyldmenni. Þannig
er að amma mín í móðurætt var
þaðan líka og voru mamma mín
og Guðmundur fjórmenningar.
Kom einnig í ljós að Jón bróðir
Guðmundar og Adolf móður-
bróðir minn voru æskuvinir.
Síðastliðið sumar fórum við
Guðmundur í ísbíltúr og keyrð-
um um slóð minninganna. Við
keyrðum á Blikastaði, þar sem
hestarnir voru í sumarbeit, Víði-
dalinn C-tröð 12, en þar var
hesthús þeirra hjóna. Við keyrð-
um um Heiðmörk þar sem við
riðum oft út og rifjuðum upp
minningar eins og þegar Katrín
Stella fann hestinn fyrir mig.
Takk Guðmundur fyrir ynd-
islega vináttu, trygglyndið, virð-
inguna, góðar minningar, reið-
túrana frá Víðidalnum og
morgunkaffi í Laugarásnum á
þriðjudögum.
Ég kveð þig Guðmundur með
þakklæti fyrir öll árin. Guð
blessi þig kæri vinur.
Ég votta fjölskyldunni allri
mína innilegustu samúð.
Ásta Denise.
Við hjónin og fjölskyldan öll á
Laugarásvegi 50 viljum minnast
Guðmundar með kærri þökk fyr-
ir öll okkar góðu samskipti. Það
voru mikil tímamót í hverfinu og
gæfuspor fyrir okkur þegar
Guðmundur og Katrín fluttust á
Laugarásveginn með synina
þrjá; Friðrik, Pétur og Snorra,
og við vorum vinir og nágrannar
í rúmlega 40 ár og aldrei bar
skugga á þá vináttu.
Guðmundur vann mikið ævi-
starf og vinnusemi var honum í
blóð borin en í okkar samskipt-
um þá var hann líka ljúfur,
hjálpsamur og skemmtilegur
vinur og nágranni sem við minn-
umst með hlýju.
Minning hans mun lifa með
okkur og fjölskyldunni og ein-
lægar samúðarkveðjur sendum
við til fjölskyldu og vina.
Dóra, Þór og fjölskylda.
Hávaxinn, í klossum og gulu
peysunni, hárið svolítið úfið og
með heimsins stærsta yfirvara-
skegg.
Þannig kom Guðmundur mér
fyrst fyrir sjónir þar sem hann
var að þvo Wagoneerinn fyrir
utan Laugarásveginn á sólríkum
sumardegi. Hann tók vel þessari
stelpu sem ekki borðaði fituna af
kjötinu og vildi frekar Smjörva
en smjör og líka einstaka kálblað
með matnum. Hann fyrirgaf
henni líka að vilja ekki borða
með honum steikta lúðu í morg-
unmat á sunnudögum og fyrir að
vera ekki alltaf sammála honum.
Aldrei bar skugga á samskiptin,
bæði fengu að segja sínar skoð-
anir, sama hvort þær voru réttar
eða rangar að mati hins og stóru
hendurnar, mjúkur vanginn og
bjarnarfaðmurinn stóðu alltaf til
boða. Reiðtúrar á svarta stóðinu,
gönguferðir á Langanesmelum
og sögur sagðar við kjötsögina í
Melabúðinni, þannig vil ég minn-
ast hans og geri það með hlýju
og þakklæti.
Maríanna.
Við kveðjum nú eftirminnileg-
an mann. Ég og Snorri, sem er
jafnaldri minn og kær vinur, ól-
umst upp í nágrenni hvor ann-
ars. Ég var oft á heimili þeirra,
sérstaklega þegar brall ung-
lingsáranna stóð sem hæst.
Minningarnar eru margar. Guð-
mundur sagði krassandi sjó-
ferðasögur og fræddi okkur um
eituráhrif tóniks sem voru okkur
vinunum kærkomin skýring á
vanlíðan eftir skemmtanir. Í
Melabúðinni var hann kóngur.
Þangað var gott að koma til að
hitta Snorra og lagði metnaður
Guðmundar grundvöllinn að vel-
gengni búðarinnar. Ég veit samt
ekki hvort hann hefur frétt af
því þegar við Snorri skúruðum
búðina í laugardagsgalsa á
Adamsklæðunum. Hann hefði
vafalaust haft gaman af og verið
ánægður með, enda var búðin al-
veg skínandi hrein á eftir. Guð-
mundur var af þeirri gerð
manna sem lét verkin tala. Um-
hyggja hans fyrir sínum nánustu
og manngæska kom vel fram í
þeirri umgjörð og öryggi sem
hann tók þátt í að skapa fjöl-
skyldunni. Þetta kom líka fram í
því hversu gaman hann hafði af
því að umgangast og gera vel við
vini Snorra eins og þegar ég og
Evgenía heimsóttum Melabúð-
ina nýgift, þá hann gaf okkur
stærðarinnar villilax. Hann hafði
yndi af hestum og átti hund svo
lengi sem ég man eftir honum,
sem segir líka mikið um gæsku
Guðmundar. Það er hægt að
halda lengi áfram því hann er
órjúfanlegur hluti af mótunar-
árum mínum. Ég er þakklátur
fyrir að hafa notið kynna við
hann, ég er ríkari fyrir vikið og
mun sakna þess að hafa hann
ekki í nágrenni við mig lengur.
Fjölskyldu Guðmundar votta ég
innilega samúð mína.
Gunnar Bjarni Ragnarsson.
Mig langar að setja nokkur
orð á blað um góðan og ljúfan
mann sem heitir Guðmundur
Júlíusson. Ég kynntist Guð-
mundi þar sem ég var starfs-
maður Melabúðarinnar. Ég var
að stíga mín fyrstu skref í versl-
un og vissi varla hvað sneri upp
og niður.
Get ég sagt með góðri sam-
visku að Guðmundur var góður
kennari og kenndi mér það vel
og vandlega að ég var mjög fljót-
ur að ná því sem að hann kenndi
mér, yfirleitt var það hvernig
maður ætti að gera það og af
hverju það ætti ekki að gera
þetta svona. Verslunin var rekin
prýðisvel og ekkert skorti þessa
búð nokkurn skapaðan hlut. Það
sýnir hversu góður Guðmundur
var að reka verslun með mikilli
prýði og voru viðskiptavinirnir
einstaklega ánægðir með hvað
þjónustan var góð og hversu vel
var tekið á móti þeim.
Guðmundur var hvers manns
hugljúfi og var einstaklega
hjálpsamur og hafði einstaklega
gott hjartalag og verður hans
ávallt minnst sem góðs og heið-
arlegs manns.
Kæra fjölskylda, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð og
mun ég biðja góðan Guð um að
styrkja ykkur í komandi framtíð.
Himneskt
er að vera
með vorið
vistað í sálinni,
sólina
og eilíft sumar
í hjarta.
Því hamingjan
felst í því
að vera með
himininn
í hjartanu.
Lifi lífið!
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Guðmundur Árni Sigurðsson.
Kveðja frá Lionsklúbbi
Reykjavíkur
Látinn er Guðmundur Júl-
íusson, kaupmaður í Melabúð-
inni, á 89. aldursári. Guðmundur
var félagi í Lionsklúbbi Reykja-
víkur um langa tíð. Hann gekk í
klúbbinn árið 1981 og starfaði í
honum sleitulaust þar til yfir
lauk. Hann var traustur félagi,
sótti fundi vel og leysti með
prýði þau verkefni sem honum
voru falin. Guðmundur var for-
maður klúbbsins starfsárið 1999-
2000. Hann var gerður að Melv-
in Jones-félaga árið 2014, en það
er æðsta viðurkenning Lions-
hreyfingarinnar, einn þriggja fé-
laga í Lionsklúbbi Reykjavíkur
en klúbburinn er mjög spar á
slíka viðurkenningu.
Guðmundur var glaðbeittur í
framkomu, sagði sína meiningu
vafningalaust á sinn kjarnyrta
hátt, enda upprunninn undan
Jökli. Áður en hann gerðist um-
svifamikill kaupmaður í Mela-
búðinni var hann til sjós og
sigldi á norskum skipum um öll
heimsins höf. Um það kunni
hann margar sögur eins og sjó-
mönnum er tamt.
Félagar í Lionsklúbbi Reykja-
víkur þakka Guðmundi trausta
vináttu og votta eiginkonu hans,
Katrínu Briem, og ástvinum
hans öllum dýpstu samúð.
Far þú í friði kæri vinur og
félagi.
Fyrir hönd Lionsklúbbs
Reykjavíkur,
Guðjón P. Ólafsson,
formaður.
Guðmundur
Júlíusson