Morgunblaðið - 30.06.2017, Side 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA
INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is
geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum,
heilsuvöruverslunum, Hagkaupum, Nettó,
Fjarðarkaupum og vefverslun geoSilica.
KRISTÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
„Ég heiti Kristín
og var ráðlagt að
prófa geosilica
vegna hármissis. Fékk nokkra skallabletti líklegast
vegna áfalls og að vera 23 með skalla var ekki
drauma aðstæðurnar! Fyrst leit þetta ekkert
svakalega vel út þar sem hárið virtist ekki ætla að koma til baka. Ég byrjaði að taka
þetta inn á hverjum degi og viti menn. Hárið byrjaði að vaxa á ógnarhraða!
Ég er svo ánægð að þetta gerðist svona fljótt því læknarnir sögðu að kannski kemur
það aftur kannski ekki og ekki til eitthvað úrræði sem er betra en annað.
En geosilica fékk allavega hárið til þess að vaxa!
Hér er smá fyrir og eftir myndir. “
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni@hitataekni.is
hitataekni.is
Bjóðum m.a. upp á loftræstisamstæður með varmanýtingu sem
henta vel fyrir heimili eða smærri rými, stærð frá 200-700 m3.
Samstæður koma tilbúnar með stjórnbúnaði.
Þarf ekki að hreinsa andrúmsloftið
heima hjá þér?
200m3 samstæða
með eldhúsháf, varmahjóli
og öllum stjórnbúnaði, tilbúin
í eldhúsinnréttinguna.
450m3 samstæða með
varmahjóli og öllum
tjó bú ðis rn n .
Sýndarveruleikamyndband Bjark-
ar, Notget, við samnefnt lag hennar
af plötunni Vulnicura, hlaut fyrstu
verðlaun á Cannes Lions í flokk-
inum stafræn iðn (e. Digital Craft)
og nefnast verðlaunin Digital
Grand Prix. Myndbandinu leik-
stýrðu Warren Du Preez og Nick
Thorton Jones, ásamt listrænni
leikstjórn frá Björk og James
Merry. Myndbandið sýnir Björk
sem stafræna veru í myrkum heimi
en veran flytur töfrandi flutning á
laginu í veruleika sem áhorfandinn
sekkur inn í, eins og því er lýst í til-
kynningu.
Myndbandið er nýjasta viðbótin
við sýninguna Björk Digital sem
hefur verið sett upp víða um lönd,
en á henni er unnið með sýndar-
veruleika á nýstárlegan hátt, út frá
lögum af síðustu plötu Bjarkar,
fyrrnefndri Vulnicura.
Cannes Lions er alþjóðlegur við-
burður helgaður fólki sem vinnur
með samskiptamiðla á skapandi
hátt og þá m.a. þeim sem starfa í
auglýsingageiranum. Þar koma
saman fagmenn úr auglýsingageir-
anum, hönnuðir, frumkvöðlar á
sviði stafrænnar miðlunar og mark-
aðsmenn. Verðlaun sem veitt eru á
Cannes Lions þykja með þeim
merkustu í heimi á sviði auglýsinga
og skapandi miðlunar.
Um sýndarveruleika og fram-
leiðslu myndbandsins sá fyrirtækið
ANALOG og myndataka var í hönd-
um Andy Serkis. Tvívíða útgáfu
myndbandsins má finna á YouTube,
á slóðinni youtu.be/
pJDcwXQc5CU.
Notget hlaut fyrstu
verðlaun á Cannes Lions
Töfraheimur Úr myndbandi Bjarkar við lagið „Notget“ af Vulnicura, en í
því er unnið með sýndarveruleika á nýstárlegan hátt. VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Einn þekkasti og áhrifamesti djass-
tónlistarmaður sögunnar, Banda-
ríkjamaðurinn Herbie Hancock,
heldur tónleika í Eldborgarsal Hörpu
20. júlí nk. með einvalaliði hljóðfæra-
leikara: trommaranum Vinnie Cola-
iuta, bassaleikaranum James Genus,
gítarleikaranum og söngvaranum
Lionel Loueke og Terrace Martin
sem leikur á ýmis hljóðfæri.
Áhrif Hancock á nútímatónlist og
þróun dægurtónlistar verða seint of-
metin og þá einkum þegar kemur að
djassi og fönkskotnum djassi sem
nefndur hefur verið sýrudjass. Þá var
hann einnig með þeim fyrstu til að til-
einka sér tölvutækni í tónlistar-
sköpun og -flutningi, hljóðgervla m.a.
og hefur ávallt verið óttalaus þegar
kemur að því að gera tilraunir í tón-
list og blanda saman ólíkum tónlist-
arstílum á borð við rokk, fönk og raf-
eindatónlist. Af áhrifamestu
hljómplötum hans má nefna Head-
hunters og Future Shock en einnig
má nefna Empyrean Isles og Maiden
Voyage sem eru með þekktustu og
merkustu djassplötum sjöunda ára-
tugarins. Allir hljóta svo að kannast
við lög á borð við „Cantaloupe Isl-
and“ (sem hljómsveitin US3 gerði að
sínu um aldarfjórðungi eftir útgáfu
þess og bætti við rappi og ýmsum
kryddum) og hið víðfræga „Rockit“.
Hancock fæddist árið 1940 og slær
ekki slöku við í tónlistinni, þótt orðinn
sé 77 ára. Hann hóf sjö ára gamall að
læra á píanó og þótti undrabarn, var
aðeins 11 ára þegar hann lék einn af
píanókonsertum Mozarts með sin-
fóníunni í Chicago í tónlistarkeppni
fyrir ungmenni. Hann gaf út fyrstu
sólóplötuna, Takin’ Off, árið 1962 og
ári síðar gekk hann til liðs við djass-
kvintett hins margfræga trompet-
leikara Miles Davis. Þar fann hann
fjölina sína sem píanóleikari og eigin
rödd í tónlistinni og fór áður ótroðnar
slóðir í djasspíanóleik.
Á nærri 60 ára löngum ferli sínum
hefur Hancock gefið út og leikið á yfir
60 hljómplötum, hlotið 14 Grammy-
verðlaun og fjölda annarra verðlauna,
m.a. Óskarsverðlaun fyrir tónlist sína
við kvikmyndina Round Midnight ár-
ið 1986 en hann hefur samið tónlist
fyrir fjölda annarra kvikmynda og
auglýsinga, auk þess að hafa leikið í
nokkrum kvikmyndum.
Titillinn ekki gefinn upp
Hancock kom fram á Listahátíð í
Reykjavík árið 1986 og lék þá einn á
órafmagnað píanó. „Það er heldur
óvanaleg reynsla fyrir mig að halda
tónleika sem þessa, ég hef aðeins
gert það fimm sinnum áður. Ég er því
mjög spenntur sjálfur að sjá hvernig
þeir verða,“ sagði Hancock í samtali
við Morgunblaðið fyrir tónleikana
það ár.
En skyldi hann muna eftir tónleik-
unum, 31 ári síðar? „Já, ég man eftir
þeim. Ég fór reyndar aftur til
Reykjavíkur seinna, tvisvar að mig
minnir,“ svarar Hancock og bætir við
að minnið sé aðeins að stríða honum.
„Þetta var fyrir löngu síðan,“ segir
hann, minninu til varnar.
Hancock er í kjölfarið spurður að
því hvað hann ætli að spila í þetta
sinn, á tónleikunum í Eldborg. Hann
tekur sér dágóða stund til umhugs-
unar. „Ja, í fyrsta lagi er ég að koma
með hljómsveit og við ætlum að spila
einhver lög eftir mig úr fjarlægri for-
tíð, önnur sem eru ekki eins gömul og
vonandi lög sem ég er að vinna að
þessa dagana, fyrir næstu plötu
mína,“ segir hann.
–Er hljómsveitin skipuð tónlist-
armönnum sem þú hefur unnið mikið
með?
„Ég hef unnið með flestum þeirra í
mörg ár en aðeins í átta eða níu mán-
uði með einum þeirra, Terrace Mart-
in. Hann er líka aðalframleiðandinn
að plötunni sem ég er að vinna í,“
svarar Hancock. Og hvað kemur sú
plata til með að heita? „Ég veit það
ekki,“ svarar Hancock en færist svo
allur í aukana og segist reyndar vita
hvað platan muni heita. „En ég vil
ekki segja frá því að svo stöddu!“ seg-
ir hann og hlær innilega að eigin
fyndni.
Enginn Snoop án „Rockit“
–Þú hefur verið mjög áhrifamikill
tónlistarmaður og tónlist þín hafði
mikil áhrif á djassinn á sínum tíma og
þá m.a. á sýrudjass, fönkdjassinn. Ór-
aði þig fyrir því á sínum tíma að tón-
list þín myndi hafa svona mikil áhrif á
djass og hip hop síðar meir?
„Nei, ég hafði enga hugmynd um
það, datt það ekki í hug,“ segir Han-
cock sposkur og er í framhaldi spurð-
ur að því hvort þessi áhrif hafi komið
honum á óvart. „Algjörlega! Þetta
kom öllum á óvart því öll hip hop-
hreyfingin var meira eða minna neð-
anjarðar. Hún var nýfarin að leita
upp á yfirborðið og var á jaðrinum.
En þegar lagið „Rockit“ kom út, á
plötunni Future Shock, komst hún
allt í einu í sviðsljósið þó að ég væri
ekki með neitt rapp á þeirri plötu.
Rappið, eins og við þekkjum það í
dag, var farið að láta á sér kræla á
þessum tíma og var mjög mikilvægur
hluti af hip hop-hreyfingunni,“ svarar
Hancock og verður í framhaldi hugs-
að til rapparans Snoop Dogg.
„Reyndar sagði Snoop Dogg mér að
ef ekki hefði verið fyrir „Rockit“ hefði
hann ekki lagt rappið fyrir sig. Það
kom mér virkilega á óvart og ég hef
hitt margt EDM-fólk sem hefur
sömu sögu að segja, að „Rockit“ hafi
komið því í gang,“ segir Hancock en
með EDM á hann við „electronic
dance music“, þ.e. rafræna dans-
tónlist.
Fræi var sáð í LA
Bandarískir hip hop-tónlistarmenn
hafa verið iðnir við að nýta sér hljóð-
búta úr lögum gömlu djass- og sál-
armeistaranna, m.a. lögum Hancock
og jafnvel meira hin síðustu misseri
en áður var, t.d. rappararnir Kanye
West og Kendrick Lamar. Blaðamað-
ur vekur máls á þessu og Hancock
segir fræi upphaflega hafa verið sáð í
heimaborg hans, Los Angeles. „Við
heyrum það á plötum Kendrick Lam-
ar og annarra. Sumt af þessu byrjaði
Herbie Hancock heldur tónleika í Hörpu 20. júlí Verk
hans hafa haft víðtæk áhrif Forvitinn listamaður sem
segist hafa orðið víðsýnni eftir að hann tók upp búddatrú
„Lífið er eldsneyti
sköpunarinnar“
Nokkrar góðar Herbie Hancock hefur gefið út tugi platna og hér sjást
nokkrar vel valdar: The Imagine Project, Empyrean Isles, Future Shock,
Maiden Voyage, Round Midnight, Crossings, Thrust og Head Hunters.