Morgunblaðið - 30.06.2017, Side 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
Kr. 51.000,-
með VSK
Greinakurlarar
í garðinn eða sumarbústaðinn
Einfasa rafmótor 2800 W
Sjálfbrýnandi kurlaravals
Koma með safnkassa
Meðfærilegir og hljóðlátir
45 mm hámarks sverleiki stofna
Flottur í garðinn eða í sumarbústaðinn
Öflugur og afkastamikill
9 HP Honda bensínmótor
60 mm hámarks sverleiki stofna
Hámarks afköst 2.5 m3 / klst
Tilvalinn í sumarbústaðinn
Jo Beau
Model M200
Wolf Garten
Model SDL2800
Kr. 395.000,-
með VSK
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ég hef alltaf verið í tónlist, alveg frá því ég
var barn. Ég fór 17 eða 18 ára í Söngskóla
Reykjavíkur og hef tekið upp alls konar
plötur og reynt að finna mig. Það tók mig
rosalega langan tíma en loksins er ég komin
á þann stað,“ segir söngkonan og lagasmið-
urinn Þórunn Egilsdóttir sem leiðir hljóm-
sveitina When ’airy met fairy sem gaf ný-
verið út sína fyrstu plötu, Glow. Hljóm-
sveitina skipar hún með lúxemborgíska
bassa- og Moog-leikaranum Mike Koster og
franska trommaranum Thomas Copier.
Þórunn fæddist í Lúxemborg en gekk í
menntaskóla á Íslandi. Að útskrift lokinni
hélt hún í bókmenntafræðinám í Frakklandi
og starfaði svo sem sjónvarpskona í Lúx-
emborg. Þaðan var förinni heitið til Berlínar
þar sem hún bjó í þrjú ár en hélt svo aftur
til Lúxemborgar, stofnaði hljómsveitina árið
2015 og fann þá fjölina sína. Hljómsveitin
hefur leikið á þekktum tónlistarhátíðum á
borð við Reeperbahn, The Great Escape,
Eurosonic og Iceland Airwaves og er á leið í
aðra tónleikaferð sína um Japan þegar þetta
er skrifað.
Glimrandi dómar
Glow kom út 19. maí og hefur hlotið
glimrandi dóma í Frakklandi og Þýskalandi,
að sögn Þórunnar. „Platan var eiginlega
tilbúin löngu fyrr en við betrumbættum
hana því við erum dálítið smámunasöm og
svo erum við líka komin með frábæra um-
boðsskrifstofu í Hamborg,“ segir Þórunn.
Plötunni verði dreift til fjölda landa en hægt
að kaupa hana í rafrænu formi í Þýskalandi,
Frakklandi, Þýskalandi, Benelux-löndunum
og á Íslandi. „Svo herjum við á næsta mark-
að, við gerum þetta skref fyrir skref,“ segir
Þórunn. Næst á dagskrá eru svo Skandin-
avía og Bretland.
„Við erum rosalega hissa á því hvað við
höfum fengið ótrúlega jákvæða dóma. Það
er rosalega gaman að sjá hversu margar
pælingar eru í gangi. Okkur finnst gaman
að lesa þegar blaðamennirnir og tónlistar-
tímaritin eru að spá í af hverju við tökum
ýmsar ákvarðanir. Þessar pælingar sýna
plötuna í nýju ljósi og það er ákaflega
spennandi fyrir okkur,“ segir Þórunn.
Systrasamstarf
Hún segir gjarnan fjallað um hljómsveit-
ina sem íslenska, þótt hún sé eini Íslending-
urinn í henni. „Maður sér að fjölmiðlamönn-
um þykir íslenski hlutinn mest spennandi,“
segir Þórunn og á þar við sjálfa sig. Strák-
unum í hljómsveitinni þyki það bara skondið
og skemmtilegt. Þórunn segir að reyndar
megi bæta við systur hennar, Rúnu, sem
veiti listræna ráðgjöf í hljóðveri. „Hún er
mælikvarðinn á það hvort eitthvað sé orðið
leiðinlegt eða yfirdrifið. Hún er listrænn
stjórnandi á furðulegan hátt,“ segir Þórunn
og hlær. Þær systur séu
mjög nánar og sam-
starfið því kærkomið.
Allir í hljómsveitinni eru
fjölskyldufólk, eiga maka
og börn og segir Þórunn
því stundum flókið að
ferðast um heiminn. „En
við erum tónlistarmenn
og þetta tilheyrir starf-
inu,“ segir hún. Samt
sem áður hafi allt gengið
tiltölulega snurðulaust
fyrir sig því skipulagið
sé gott og hver taki tillit
til annars.
Varð til á sushi-stað
–Hljómsveitarnafnið, hvaðan kemur það?
„Ég var með systur minni og tveimur vin-
konum á sushi-stað og þá kom það upp. Það
er sake að kenna að við heitum þessu
nafni,“ svarar Þórunn kímin.
Hún semur öll lög hljómsveitarinnar og
texta og segir að hljómsveitinni hafi verið
líkt við sveitir á borð við Portishead. „Við
sjálf getum ekki flokkað okkur, erum senni-
lega einhvers staðar milli popps og „alterna-
tive“,“ segir hún um tón-
listina. Þórunn segist ekki
vera að reyna að halda
sig við ákveðinn tónlist-
arstíl, hún sé undir áhrif-
um frá tónlistarmönnum
á borð við Peter Gabriel,
Jeff Buckley og líka
Björk og Portishead.
„Það segja margir að
þetta sé popp og ég segi
þá bara já, þetta er
örugglega popp,“ segir
Þórunn.
Tilfinningaríkur söng-
ur gamallar konu
–Söngstíllinn hjá þér er
dálítið sérstakur, minnir mig á köflum á
Ólöfu Arnalds. Er þetta stíll sem þú tileink-
aðir þér eða er hann ómeðvitaður?
„Mestu áhrifin koma frá ömmu minni
heitinni, hún spilaði á píanó allan daginn og
söng og mér finnst söngur gamals fólks
ótrúlega áhrifamikill. Það eru svo miklar til-
finningar í söngnum, hún var búin að lifa
svo margt, m.a. seinni heimsstyrjöldina og
þetta var svo erfitt líf og ég heyrði það al-
veg á röddinni. Söngur hennar hafði einhver
áhrif á mig, dálítið bjagaður og ég fæ bara
illt í hjartað þegar ég hugsa um þetta. Mér
finnst ég syngja eins og amma, einhvern
veginn,“ svarar Þórunn.
–Og þú syngur einhverja texta á íslensku
og þá skilja hinir tveir í hljómsveitinni ekk-
ert?
„Nei, en það er það besta við þetta,“ segir
Þórunn kímin. Íslenskan sé afar framandi
þeim sem ekki skilja hana, eðlilega, og
hljómi fallega með sínum hörðu r-um. Fólk
skynji tilfinningarnar í textunum þótt það
skilji ekki orðin. Flestir lagatexta Þórunnar
eru þó á ensku og segist hún leggja mikinn
metnað í skrifin, enda með bókmennta-
fræðinám að baki.
When ’airy met fairy lék á Iceland Airwa-
ves árið 2015 og segir Þórunn það hafa ver-
ið æðislega upplifun. Hún segir umboðs-
mann hljómsveitarinnar vinna að því nú að
hljómsveitin fái að leika á hátíðinni í ár.
Iceland Airwaves og The Great Escape séu
í sérstöku uppáhaldi hjá henni.
Tríó Þórunn Egilsdóttir með félögum sínum í hljómsveitinni When ’airy met fairy, Mike Koster og Thomas Copier.
Undir áhrifum frá ömmu
Þórunn Egilsdóttir er forsprakki hljómsveitarinnar When ’airy met fairy sem gaf út sína fyrstu
plötu í vor Lofsamlegir dómar Hljómsveitin sögð íslensk þótt liðsmenn séu frá þremur löndum
Glow Umslag nýútkominnar hljóm-
plötu When Airy Met Fairy.
Vefsíða hljómsveitarinnar:
whenairymetfairy.com
Bandaríski píanóleikarinn, djass-
tónlistarmaðurinn og kennarinn Geri
Allen lést á þriðjudaginn á spítala í
Philadelphiu, 60 ára að aldri. Bana-
mein hennar var krabbamein. Frá
þessu greinir The New York Times.
Allen var vel kunn fyrir að hafa brú-
að bilið milli ólíkra stíla djasstónlistar
miðrar síðustu aldar og nútímans.
Þetta gerði hún með framsýnni nálg-
un sinni á píanóleik, hæfni til að
bregða sér milli listastefna án þess að
gera verulegar breytingar á eigin
hljóðfæraleik og viðleitni til að stofna
tengsl milli djasstónlistar og annarra
hefðbundinna listastefna bandarískra
blökkumanna.
Geri Allen látin
Framsýn Geri Allen heitin.