Morgunblaðið - 30.06.2017, Qupperneq 84
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 2017
VIÐTAL
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Ef maður stendur frammi fyrir
alvöru listaverki andar það, það
talar við mann,“ segir Ari Alex-
ander Ergis Magnússon, kvik-
myndagerðarmaður og leikstjóri
kvikmyndarinnar Undir hala-
stjörnu, eða Mihkel á ensku, sem
byggir lauslega á líkfundarmáli frá
árinu 2004, en mannslík vafið inn í
plastdúk fannst í höfninni í Nes-
kaupstað í febrúar það ár. „Ekki
er nóg að listaverkið sé smekklegt
og þóknanlegt skraut sem skilur
ekkert eftir sig,“ segir Ari.
Geimáhugi leiðir í listina
„Sem barn hafði ég áhuga á
geimnum og þegar ég var tíu ára
var Erró með stóra myndlistar-
sýningu á Kjarvalsstöðum með
geimfaraseríuna. Amma mín,
Ragnheiður Möller, tók mig á sýn-
inguna. Ég varð yfir mig hrifinn
og tilkynnti henni að ég ætlaði að
verða listamaður,“ segir Ari. Tví-
tugur fór hann í myndlistarnám til
Parísar og kynntist Erró fyrir til-
viljun. Mörgum árum seinna skrif-
aði Ari lokaritgerð í listasögu sem
síðar varð að heimildarmynd um
Erró. „Ferlið við gerð myndar-
innar var svo skemmtilegt að ég
ákvað að gera fleiri myndir um
uppáhaldslistamennina mína,“ seg-
ir Ari, sem gerði myndir um Sig-
urð Guðmundsson SÚM-ara,
Magnús Blöndal, fyrsta raf-
tónskáld Íslands, Jórunni Viðar
tónskáld og Yoko Ono. „Sigurður
er einhver ótrúlegasti maður sem
ég þekki,“ segir Ari og hlær. „Ég
legg áherslu á að umgangast
skemmtilegt fólk, lífið er svo
stutt,“ bætir hann við. Eftir að
hafa kynnst þessum listamönnum
fékk Ari meiri áhuga á kvik-
myndagerð en myndlistinni. „Kvik-
myndagerðin sameinar allar list-
greinar og mannlega þáttinn,“
segir hann.
Samfélagsmálin áhugaverð
Í dag er Ari kvikmyndagerðar-
maður en hefur ekki gefið mynd-
listina alveg upp á bátinn, hann
vinnur sem listrænn ráðgjafi fyrir
fyrirtæki og einstaklinga sem vilja
kaupa listaverk. Ein áhrifaríkasta
kvikmynd Ara fram að þessu er
Syndir feðranna, en hún fjallaði
um börn sem send voru á Breiða-
vík. Sýning hennar olli mikilli um-
ræðu í þjóðfélaginu sem endaði
með því að tilraun var gerð til að
rétta hlut þeirra einstaklinga sem
höfðu dvalið við harðræði á op-
inberum stofnunum fyrir börn og
unglinga. Ari segist hafa mikinn
áhuga á samfélagsmálum, það hafi
hann frá ömmu sinni og móður.
„Ragnheiður amma mín mátti ekk-
ert aumt sjá,“ segir Ari, sem
minnist hennar með hlýju.
Harmleikur sem snertir marga
Um myndina Undir halastjörnu
segir Ari: „Ég hef ekki haft áhuga
á glæpasögum eða löggudrama síð-
an ég hætti að horfa á Derrick.“
Ari fékk áhuga á líkfundarmálinu í
Neskaupstað frá 2004, eftir að
hann rakst á mann sem tengdist
því á sínum tíma. „Það sem vakti
áhuga minn við þetta mál var að
einn forsprakkinn flúði heim til
mömmu sinnar,“ segir Ari, sem sá
hvernig aðstandendur fólks sem er
viðriðið slíka atburði sem þann
sem þarna átti sér stað geta sog-
ast inn í dramað sem fylgir. „Ég
fékk þá áhuga á því hvernig þess-
um mönnum líður og hvernig væri
með fjölskyldur þeirra,“ segir Ari.
Í grunninn sé þetta nauða-
ómerkilegt mál, þarna séu ein-
hverjir smákrimmar að smygla eit-
urlyfjum og að handritið hafi m.a.
verið gagnrýnt fyrir það á hand-
ritaþingi. „Ég var t.d. spurður
hvers vegna ég væri að segja
þessa sögu, hún væri ekki um
merkilegt fólk, heldur um þá sem
eru taldir vera dragbítar á sam-
félaginu. En það er akkúrat þess
vegna sem mig langar að segja
söguna,“ segir Ari.
Tenging við heimsmálin
Ari var staddur í Moskvu í
ágúst 1991 þegar Sovétríkin liðu
undir lok, en Ísland hafði rétt áður
viðurkennt sjálfstæði Eystrasalts-
ríkjanna og Ari vildi líka spyrja
sig hvaða þýðingu það hefði. Kvik-
myndin Undir halastjörnu byrjar
því árið 1991 þegar aðalpersónur
myndarinnar eru litlir strákar
heima hjá öðrum þeirra í Eistlandi
að horfa á sjónvarpsfréttir með
pabbanum og sjá að Íslendingar
voru fyrstir til að viðurkenna sjálf-
stæði Eystrasaltsríkjanna. Þá fer
af stað umræða um Ísland sem
enginn þekkir og strákurinn
ímyndar sér að það hafi verið ís-
lenskar geimverur sem hjálpuðu
þeim.
Ari kveðst hafa notað atburða-
rásina úr opinberum gögnum lík-
fundarmálsins sem beinagrind fyr-
ir handritið ásamt viðtölum við
fólk sem vann við málið en að öðru
leyti sé það skáldskapur með teng-
ingu við sögulega atburði.
Lygin og ógæfan sem fylgir
„Sagan er svört og sýnir hvað
það er auðvelt að taka rangar
ákvarðanir og vera vitur eftir á,“
segir Ari. „Án þess að ég vilji rétt-
læta það sem gerðist í þessu sorg-
lega máli þori ég að fullyrða að
það ætlaði sér enginn að hlutirnir
færu á þann veg sem þeir gerðu,“
segir Ari með tilvísun í atburðarás
málsins.
Strákurinn finnur stein í byrjun
myndarinnar sem hann heldur að
sé halastjarna. „Halastjörnur hafa
alltaf boðað ógæfu,“ segir Ari, en
steinninn verður stef í myndinni
sem límir æsku aðalpersónanna við
fullorðinsárin.
„Myndin er tileinkuð foreldrum
sem missa syni og dætur inn í
heim fíkniefna,“ segir Ari, sem
vonast til að vekja áhorfendur til
umhugsunar um að allir þessir ein-
staklingar séu fólk.
„Ég á erfitt með að trúa því að
fólk sé í grunninn vont, einhvers
staðar að baki liggja ástæður. En
svo fjallar myndin líka um lygina
og hversu alvarlegar afleiðingar
hún getur haft, því lygin er það
flóknasta sem maðurinn þarf að
kljást við og á endanum þarf að
taka afleiðingunum,“ segir Ari að
lokum.
Halastjörnur boða alltaf ógæfu
Kvikmyndin Mihkel byggir á líkfundarmáli í höfninni í Neskaupstað frá í febrúar 2004
Ari Alexander Ergis Magnússon segir frá því hvers vegna hann vildi gera kvikmynd um málið
Morgunblaðið/RAX
Heima Ari Alexander Ergis
Magnússon á heimili sínu í
Skuggahverfinu í Reykjavík.
Ljósmynd/Ýr Þrastardóttir
Leikstjórar Ari og aðstoðarleikstjóri myndarinnar, Fahad Falur Jabali. Á ströndinni Stilla úr Undir halastjörnu sem hefst árið 1991 í Eistlandi.
Litháinn Vaidas Jucevicius, kom til Íslands 2.
febrúar 2004 með um 400 grömm af amfeta-
míni innvortis. Vaidas lést vegna stíflu í iðrum
og veiktist fljótlega eftir að hann kom til
landsins af völdum hylkja sem hann hafði
gleypt. Lík hans var sett í plastpoka, vafið inn í
teppi og flutt í bílaleigubíl í Neskaupstað þar
sem því var sökkt í höfnina. Níu dögum eftir
að líkið fannst voru þrír menn handteknir. Þeir
voru síðar dæmdir í tveggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir innflutning á amfetamíni, fyrir að
koma Vaidasi ekki til hjálpar og fyrir illa með-
ferð á líki.
Óheillaspor leiddu til dauða
LÍKFUNDARMÁLIÐ Í NESKAUPSTAÐ RÚMLEGA 13 ÁRA
Lést Vaidas Jucevicius.