Víkurfréttir - 15.12.2016, Side 2
2 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Nemendur í sjöunda bekk í Myllu-
bakkaskóla í Reykjanesbæ stóðu sig
best allra á landinu í samræmdu prófi
í stærðfræði sem lagt var fyrir í sept-
ember síðastliðnum. Af sex skólum í
Reykjanesbæ voru þrír sem komust
á lista þeirra skóla sem koma best út
úr prófunum; Njarðvíkurskóli, Holta-
skóli og Myllubakkaskóli. Enginn
skóli í Reykjanesbæ er meðal þeirra
sem lakasta útkomu fengu.
Prófað var í íslensku og stærðfræði
og er meðaltalið hjá Njarðvíkur-
skóla, Myllubakkaskóla og Heiðar-
skóla vel yfir meðaltali á landsvísu. Að
sögn Helga Arnarsonar, sviðsstjóra
fræðslusviðs hjá Reykjanesbæ, hefur
verið unnið mjög gott starf í mennta-
málum undanfarin ár og hefur það
skilað sér í bættum árangri á ýmsum
sviðum. „Meðal annars kemur það
fram í bættum árangri í samræmdum
könnunarprófum. Sá árangur er fyrst
og fremst til kominn vegna þess að
allir hafa lagst á árarnar. Sterk fagleg
forysta fræðsluskrifstofunnar hefur
gegnt lykilhlutverki.“ Þá segir Helgi
að stuðningur foreldra hafa skipt
sköpum og ekki síst framlag barnanna
sjálfra sem hann segir vert að vera
stolt af, ekki eingöngu vegna árangurs
þeirra í samræmdum prófum, heldur
á ýmsum sviðum lífs og leiks.
Að sögn Bryndísar Guðmundsdóttur,
skólastjóra Myllubakkaskóla, hefur
Reykjanesbær unnið ötullega að því
að bæta árangur nemenda. „Við teljum
þetta meðal annars vera árangur
þeirrar vinnu. Mikil vinna með nem-
endur og góð samvinna við foreldra
er að skila sér í þessum góða árangri.“
Þá segir hún kennara hafa lagt mikla
áherslu á að nemendur öðlist góðan
skilning á efninu og að atriðin sem
farið er yfir festist í sessi með endur-
tekningu.
Í gegnum tíðina hafa kennarar við
Myllubakkaskóla farið vel yfir niður-
stöður samræmdra prófa þegar þær
eru birtar og kennarar þeirra árganga
sem þreyta prófin hverju sinni taka
niðurstöðurnar saman og kynna fyrir
öðrum kennurum skólans. „Þetta
gerum við til að finna styrkleika okkar
og veikleika.“ Nemendur sem núna
eru í 7. bekk hafa haldið þeim góða ár-
angri sem þau náðu í 4. bekk og segir
Bryndís það mjög jákvætt. „Í Myllu-
bakkaskóla er lögð mikil áhersla á
fjölbreytni í skólastarfi. Hér eru mjög
góðir kennarar sem leggja áherslu á að
nemendum líði vel og að það sé gaman
í skólanum. Hér blómstrar listalífið og
við erum stolt af okkar nemendum
sem standa sig vel á mörgum sviðum.“
Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri
Njarðvíkurskóla, tekur í sama streng
og segir breytt vinnulag sem tekið var
upp fyrir fimm til sex árum hafa skipt
sköpum í skólastarfi. Niðurstöður
prófa séu nýttar til að sjá hvað megi
bæta og að mikil samstaða meðal for-
eldra og allra starfsmanna skólanna
hjálpi til við að bæta námsárangur.
Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og
jákvæðum starfsmanni í framtíðarstarf þjónustufulltrúa á
starfsstöð í Keflavík.
Stutt lýsing á starfi:
· Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og
móttaka við leiguskil
· Samskipti við innlenda sem erlenda söluaðila· Upplýsingagjöf, sala þjónustu og skráning bókana
Hæfniskröfur:
· Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi· Hæfni í tölvunotkun· Gilt bílpróf· Framúrskarandi þjónustulund· Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Unnið er á vöktum frá 06:00-18:00 (2,2,3).
Æskilegt er að viðkomandi sé búsettur á svæðinu.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.brimborg.is (laus störf)
Umsóknarfrestur er til 31. desember 2016
Þjónustufulltrúi
í Bílaleigu
í KEFLavík
FRAMTÍÐAR
STARF
Thrifty Atvinnuauglysing 20161201_END.indd 1 06/12/2016 09:31
Gleðjast yfir niðurstöðu
samræmdra prófa
Að sögn Bryndísar Guðmundsdóttur, skólastjóra Myllubakkaskóla, hafa kenn-
arar lagt mikla áherslu á að nemendur öðlist góðan skilning á námsefninu og að
það festist í sessi með endurtekningu.t
●● Góður●árangur●grunn-
skólanemenda●í●Reykja-
nesbæ●í●samræmdum●
prófum
ATVINNA
STARFSFÓLK ÓSKAST TIL RÆSTISTARFA FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR
Vinnutími er mán-fös frá 18:00 til 20:30
Kröfur:
Hreint sakavottorð
Ökuréttindi
Tungumál: Íslenska eða góð Ensku kunnátta
Áhugasamir farið inn á allthreint.is og sækið um undir liðnum störf í boði
STAFF NEEDED FOR CLEANING IN FLE ( KEF AIRPORT )
Working hours mon - fri from 18:00 to 20:30
Must have:
Clean criminal record
Language: Icelandic or good English
Drivers license
Interested go to allthreint.is and apply under the tab
atvinna í boði / jobs
Jólafötin komin
Glæsilegt úrval af jólagjöfum
Hafnargötu 15 // Keflavík // Sími 421 4440
2016
Skafmiðaleikur Víkur
frétta
og verslana á Suðurne
sjum
2016
Skafmiðaleikur Víkur
frétta
og verslana á Suðurne
sjum
2016
Skafmiðaleikur Víkur
frétta
og verslana á Suðurne
sjum
2016
Skafmiðaleikur Víkur
frétta
og verslana á Suðurne
sjum
NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA
Jólalukku miðum í Nettó því það
verður dregið 21. og 24. des.