Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Side 10

Víkurfréttir - 15.12.2016, Side 10
10 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Jólahittingur með vinunum: „Smart-Casual“ klæðnaður er málið hérna. Þó að veturinn sé nú ekki búinn að vera harður í ár þá erum við að spila með jarðliti í bland við þykkari efni. Rúllukraginn er frá Sand og er úr merino-ull sem að er einstaklega hlý ullartegund. Yfir rúllukragann stekk ég í mest notuðu flíkina í fataskápnum, en það er klass- ískur blár blazer jakki. Allir karl- menn ættu að eiga eitt eintak af bláum blazer, enda passar hann jafnt hversdags sem og aðeins í fínni kantinum. Jakkinn er frá Armani. Við þetta klæðist ég dökkbláum gallabuxum, þær eru einnig frá Sand líkt og rúllukragabolurinn. Að lokum þeyti ég rjómann með smá súkkulaðispæni og kirsuberjum, en þar á ég við aukahlutina sem oftar en ekki skapa heildar út- litið. Að lokum vel ég mér brún- mynstraðan vasaklút til að skreyta mig í stíl við rúllukragann og skóna. Klúturinn er frá Monti og skórnir frá Barker. Þumalputtaregla: Reyndu eftir fremsta megni að hafa leðrið í sama lit (belti í sama lit og skór og úraól). Jakkafötin: „Tvíhnepptu jakkafötin virðast koma og fara á nokkura ára fresti og eru nú komin aftur. Það gerðist rétt eftir að Ólafur Ragnar lét af emb- ætti, en tvíhneppt jakkaföt voru hans einkennis- merki. Þegar kemur að jakkafötum myndi ég segja að dökkblá föt séu fjölhæfust og mest tímalaus, þ.e. þau fara aldrei neitt og haldast alltaf í stað. Kostirnir eru þeir að þér er frjálst að nota jakkann stakan sem blazer. Þar að auki geta þau þjónað sem dökk föt þegar að svo ber undir t.d. í jarðarförum, en líka verið sumarleg og björt ef þau eiga að þjóna sem slík, þetta er allt spurning um aukahlutina sem þú notar. Þannig nýtast dökkblá jakka- föt á sem flesta vegu, fyrir mann sem að á ekki jakkaföt fyrir þá myndi ég klárlega byrja á þessum lit. Hérna er ég að vinna með frekar klassískan stíl innblásinn af átt- unda áratugnum og Wall street. Ég vel mér teinótt blá föt með að- eins meiri smáatriðum heldur en þessi venjulegu bláu jakkaföt. Svo- kallað „three piece“ (jakki,buxur og vesti). Jakkafötin eru frá Van- Gils. Við þetta klæðist ég skyrtu frá Stenströms, einstaklega þægilegar og vandaðar skyrtur úr tvíofnum súper- bómul. Skórnir eru ljósbrúnir svokall- aðir wing-tips skór, en það heiti kemur frá mynstrinu sem er að finna á tánni á skónum, þessir eru frá Hugo Boss. Að lokum skreyti ég mig með stríp- uðu háskólabindi frá Ralph Laur- en og vasaklút frá sama merki. Þumalputtaregla: Haltu þig frá samlituðum pökkum með einlitum bindum og vasaklútum. Fallegt er að hafa vasaklútinn í stíl við bindið upp að vissu marki, á myndinni er ég t.a.m. að einblína á litinn í strípunum á bindinu í stíl við klútinn, en ekki allt bindið sjálft.“ Skórnir: „Þessa dagana er ég mikið í uppháum wing-tip skóm sem henta vel sem vetrarskór og halda frosti og snjó frá. Verandi uppháir henta þeir vel til hvers- dagsbrúks en eru þann- ig í laginu að þeir henta líka beint í partýið, svokallað „smart-casual lúkk.“ Ég mæli með skóm frá Barker, en allt frá þeim er handsmíðað frá grunni og aðeins úr gæða- leðri. Þegar kemur að spariskóm vel ég mér svokallaða monk-strap skó, en það heiti kemur frá evrópskum munkum sem klæddust leður- skóm með beltum á í stað reima. Þessir sem ég er í hér eru einn- ig frá Barker.“ Jólagjöfin fyrir hann: „Ég mæli með B edale jakkanum frá Barbour en sá jakki er lífstíðareign og fjárfesting út af fyrir sig. Ég á einn slíkan og fer vart úr honum, enda ver hann mig frá veðrum og vindum og svo þar að auki er hann einnig klassískur og tímalaus í útliti. Einnig getur verið klassískt að gefa undirföt og sokka, ég mæli með micro fiber nærbuxunum frá Ralph Lauren sem eru einstaklega þægilegar. Fyrir herra- manninn sem er annt um útlit sitt og framkomu getur einnig verið sniðugt að bregða aðeins út af vananum og gefa honum áskrift af GQ tímaritinu fornfræga og vinsæla.“ Aukahluturinn: Aukahlutir geta hreinlega búið til út- litið. Rúsínan í pylsuendanum, kirsuberið á rjómanum og fleiri aðrir frasar. Skartgripir tíðkast ekki mikið hjá karlmönnum fyrir utan giftingahringi eða einstaka hálsmen. Herraúr eru þó skartgripur sem herramenn geta borið með sæmd og er alltaf fallegt. Klæðistu jakkafötum eða blazer er alltaf fallegt að skreyta sig með vasaklút eða hálstaui, hvort sem þú velur þér hið klassíska bindi eða slaufu, þó mæli ég með því fyrrnefnda. Ef þú velur slaufu á annað borð passaðu að hún sé sjálf- hnýtt. Reyndu að forðast forhnýttar slaufur, það gildir það sama um þær og smellubindi. Sé kalt í veðri er alltaf fallegt að nota trefil og leðurhanska.“ Dressið: Um daginn fékk ég þennan gullfal- lega samfesting sem er úr nýrri fata- línu sem var að fara í sölu í Gallerí Sautján, Edda x Moss, og ætla ég að vera í honum um jólin. Ég para hann svo við svartan blúndubol úr sömu línu og svarta hæla. Jólahittingur með vinunum: Þegar við vinkonurnar hittumst þá erum við alltaf heima hjá einhverri og komumst því upp með að klæðast eitt- hverju þægilegu. Þá enda ég langoftast í síðri prjóna- peysu við rifnar svartar gallabuxur og svört ökla- stígvél. Sparikjólinn: Ég er ein af þeim sem vel einfaldleika og þægindi yfir allt annað þegar ég klæði mig fínt og eru samfestingar og lausir kjólar í miklu uppáhaldi. Skórnir: Uppáhalds vetrarskórnir mínir eru Timberland og var ég að næla mér í svart par fyrir veturinn - þeir eru langbestir í snjónum og slabbinu. Fyrir fínni tilefni eru ökla- stígvél úr línunni hennar Camilla Pihl fyrir Bianco í miklu uppáhaldi og einnig upphá stígvél úr Zara. Aukahluturinn: Ég er ekki mikið fyrir auka- hluti en ég er að elska „jewe- led chokers” núna. Ég nældi mér í eitt slíkt fyrir jólin sem ég gæti notað við Eddu x Moss kjólinn minn. Jólagjöfin fyrir hana: Persónulega finnst mér alltaf gaman að fá dekur í gjöf og þá sérstaklega í nudd eða andlitsbað. Fleur De Parfum ilmur- inn frá Chloé er í uppá- haldi hjá mér og tel ég að hann muni slá í gegn ásamt Andlit förðunarbók- inni og húfu frá Feld Verkstæði. Hvað er inni? Stórar prjónapeysur - upphá stígvél - síðar kápur. Hvað er úti? Að vera illa klæddur á veturna. Jólafötin: FYRIR HANN Njarðvíkingurinn Bjarki Már Viðarsson er gjarnan flottur í tauinu. Hann er hrifinn af klassískum herrafatnaði sem stenst tímans tönn. Bjarki fór yfir það hvernig karlpeningurinn getur komist hjá því að fara í jólaköttinn þetta árið. Jólafötin: FYRIR HANA Alexsandra Bernharð er 24 ára tískubloggari úr Keflavík sem heldur úti vefsíðunni Shades of style. Hún er viðskipta- fræðingur og starfar sem flugfreyja hjá Icelandair. Alexsandra ætlar að klæðast Edda x Moss samfesting um jólin en hún velur einfaldleika og þægindi yfir hátíðarnar.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.