Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Side 20

Víkurfréttir - 15.12.2016, Side 20
20 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR „Þó var ég alin upp við að halda að ég sem manneskja þyrfti að borða kjöt og dýraafurðir, líkt og flest okkar erum alin upp við. Mér þótti því alltaf mjög leiðinlegt að ég, verandi manneskja, þyrfti að borða dýrin því maðurinn var jú kjötæta, eða það hef ég alltaf haldið.“ Því varð Tinna virkilega spennt þegar hún frétti af „veganisma“ frá vinkonu sinni í maí í fyrra. „Það má segja að það hafi verið mikill léttir fyrir mig að kynnast þeim lífsstíl og mér líður í raun eins og þar hafi ég loksins fundið sjálfa mig.“ Tinna tók sér eina helgi til þess að kynna sér út á hvað vegansimi gengur. Hún horfði á heimildamyndir eins og Cowspi- racy, Earthlings, Forks over knives, Vegucated og las heilan helling. „Heilsufarsþættirnir og umhverfis- áhrif dýraafurðariðnaðarins komu mér svakalega mikið á óvart. Þessi vegan heimildar-helgi gerði mig enn meira staðfasta í því að þetta væri lífs- stíll sem ég þyrfti að tileinka mér og einnig lífsstíll sem ég þyrfti að kynna fyrir öðrum og fræða aðra um. Neysla okkar skiptir mun meira máli fyrir jörðina okkar en fólk almennt gerir sér grein fyrir og kemur okkur því öllum við,“ segir Tinna. Gerðist vegan á einum degi Það tók Tinnu aðeins einn dag að leggja dýraafurðir til hliðar. Það kom henni sjálfri mikið á óvart hvað það reyndist auðvelt. „Helgina á undan var ég líka dugleg að afla mér upplýsinga um hvað fólk er að fá sér í staðinn fyrir dýraafurðirnar. Ég komst að því að til er vegan útfærsla af nánast öllum dýraafurðum og því minnsta mál að skipta því bara út. Ég er ekki mikill kokkur og því hélt ég að þetta yrði mikið mál, en komst svo að því að það þarf alls ekki að vera erfitt. Það er mikið til af tilbúnum og bragðgóðum vegan vörum sem maður skellir bara í ofninn og lítið mál að græja meðlæti með. Vegan mataræðið er svo mikið fjölbreyttara en ég bjóst við. Ég hélt fyrst að ég myndi bara lifa á grænmeti og ávöxtum en áttaði mig svo á að plönturíkið er mikið stærra og fjöl- breyttara en svo. Þetta ár er líka búið að vera svakalega magnað hvað varðar aukið úrval af vegan vörum í mat- vöruverslunum sem hafa aukið úrval sitt mjög mikið á því rúma ári sem ég hef verið vegan. Ég bjóst líka við því að það yrði dýrara að kaupa vegan kjötvörur en hef svo tekið eftir því að ég eyði minna í mat en ég gerði áður.“ Fjölskyldan hrifin af hnetusteik Fyrstu vegan-jól Tinnu í fyrra tók- ust vel. Hún ákvað að fara auðveldu leiðina að jólamatnum og keypti sér hnetusteik og sveppasósu hjá Sollu í Gló. „Hnetusteikin kom fjölskyldu minni skemmtilega á óvart. Fjöl- skyldan mín og nánasti vinahópur hefur að öllu jöfnu sýnt mér mikinn stuðning og skilning hvað varðar þessa lífsstílsbreytingu, enda kom það engum á óvart að Tinna dýrahippi myndi ákveða að hætta neyslu dýraaf- urða,“ segir hún létt í bragði. Erfitt að horfa upp á allt kjötátið „Það má segja að það helsta sem mér þykir erfitt í kringum jólahátíðina er að horfa upp á fólkið í kringum mig borða kjöt, og svona mikið magn af því. Sumir hafa spurt mig hvort það sé ekki erfitt vegna þess að ég „get ekki“ borðað hangikjötið eða hamborgar- hrygginn, sem mér þótti vissulega bragðgott áður, en ástæðan er þvert á móti sú að ég sé ekki mat lengur þegar ég sé kjöt heldur er ég mjög meðvituð um að kjötið komi af dýri sem vildi lifa en missti líf sitt fyrir máltíðina og það þykir mér erfitt að horfa upp á fólkið mitt styrkja þegar engin þörf er á slíku lengur.“ Fordómar í garð vegan fólks Hvernig finnst þér fólk bregðast við þeim sem eru vegan? „Ég hef fundið fyrir miklum for- dómum og í raun reiði og pirringi í garð vegan fólks, bæði gagnvart mér sjálfri og öðrum. Þó aðalega í gegnum samskiptamiðla eins og Facebook og í kommentakerfum vefmiðla. Það er sjaldan sem ég hef fundið það í eigin persónu en það hefur samt komið fyrir. Vegan fólki finnst siðferðis- lega rangt að nota dýr til manneldis, í fatnað, til afþreyingar eða nota þau á nokkurn annan hátt þegar engin þörf er á því lengur í nútíma samfélagi og vissulega finnst manni óþægilegt þegar hópi fólks finnst eitthvað sið- ferðislega rangt við lífstílinn manns. Þetta skapar oft mikla spennu á milli fólks. Þessi spenna getur þó verið já- kvæð þar sem í kjölfarið koma upp tækifæri á málefnalegum umræðum og fræðslu ef báðir aðilar eru tilbúnir til að ræða sín á milli með opnum hug, en það getur stundum reynst erfitt.“ „Veganisminn er lífsstíll sem snýst um það að valda sem minnstum skaða gagnvart dýrum, jörðinni og heilsunni okkar. Veganar eru fólk sem vill láta gott af sér leiða með sínum lífsstíl og eru að taka mjög upplýstar ákvarð- anir hvað varðar neyslu sína, reiði í garð vegana virðist aðalega vera vegna skilningsleysis og skorts á fræðslu en með aukinni umræðu og vitundar- vakningu í samfélaginu tel ég það smám saman vera að lagast.“ Tinna situr í stjórn samtaka sem kallast Aktívegan. Helsta markmið samtakanna er að vekja fólk til um- hugsunar um það hvaðan dýraafurð- irnar koma og hvaða afleiðingar sú framleiðsla hefur í för með sér fyrir dýrin, jörðina og heilsu okkar. „Ég tel mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að dýrin sem notuð eru til að framleiða þessar afurðir upplifa sömu grunn tilfinningar og gæludýrin okkar og jafnvel mennirnir, bæði andlega og líkamlega. Þessi dýr verða hrædd, einmanna, kvíðin, glöð, þau elska, finna fyrir sársauka og vilja lifa frjáls rétt eins og önnur dýr. Ís- lenskt þjóðfélag hefur reitt sig mikið á bændur og sjómenn þegar það kemur að framleiðslu matvæla, en núna er að koma í ljós að slík framleiðsla er skaðleg jörðinni okkar, neysla þessara matvæla ekki eins góð heilsu okkar og áður var haldið ásamt því að fólk er að verða meira meðvitað um tilfinninga- líf dýranna í þeim iðnaði og farið að líta gagnrýnum augum á siðferði þess að halda slíkri framleiðslu áfram núna þegar við þurfum þess ekki lengur. Við í Aktívegan viljum hjálpa fólki að ná tengingunni á milli dýranna og afurðanna sem koma frá þeim, að fólk geri sér betur grein fyrir því hvað dýrin þurfa að ganga í gegnum innan þessa iðnaðar fyrir þessar vörur. Það eru margir sem gera sér til dæmis ekki grein fyrir því að kýr þarf að fæða og missa kálf stuttu eftir fæðingu svo að fólk geti drukkið kúamjólk, mjólk sem var einungis framleidd fyrir kálfinn og við mennirnir höfum enga þörf fyrir frekar en hundamjólk. Enn færri sem átta sig á því að karlkyns ungar sem fæðast inn í eggja iðnaðinn missa líf sitt stuttu eftir fæðingu, eru gasaðir eða hakkaðir til dauða, þar sem engin not eru fyrir þá í þeim iðnaði bara svo eitthvað sé nefnt. Það er ótrúlega margt sem fólk almennt gerir sér ekki grein fyrir hvað það er að styrkja og þar sem dýrin geta ekki sagt frá því og beðið fólk að breyta neysluvenjum sínum þá tökum við það erfiða, en mikilvæga, verkefni að okkur.“ Tinna Björg Hilmarsdóttir hefur síðasta árið aðhyllst vegan lífstílinn sem sífellt er að verða vinsælli. Keflvíkingurinn Tinna segir að alveg síðan hún man eftir sér hafi hún verið mikill dýravinur. Hún skildi aldrei þörfina hjá fólki til þess að drepa dýr, þau ættu eins mikinn rétt og við á því að lifa. Auðvelt að verða VEGAN Gómsætar vegan uppskriftir fyrir jólin „Hnetusteikin kom fjölskyldu minni skemmtilega á óvart“

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.