Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Síða 21

Víkurfréttir - 15.12.2016, Síða 21
21fimmtudagur 15. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR Innihald: · 100 gr vegan smjör (Fæst í Hagkaup og heitir Earth Balance) · 1/2 til 1 laukur · 200 gr frosin villisveppablanda · 250 (1 pakki) sveppir · hveitiblanda (2 kúfullar msk hveiti + 1 dl vatn hrisst saman) · 1 til 2 greinar ferskt timian · 1 tsk þurrkað timian · salt og pipar · 1 sveppateningur · 1 til 2 tsk grænmetiskraftur · 250 ml vatn · 750 ml Oatly haframjólk (Oatly vörurnar fást í Krónunni) · 500 ml (tvær fernur) Oatly hafrarjómi Aðferð: 1. Leyfið frosnu sveppunum að þiðna í nokkrar mínútur. Skerið þá svo niður ásamt fersku sveppunum og saxið laukinn. 2. Bræðið smjörið í potti og bætið sveppunum og lauknum saman við. Steikið við lágan hita í dágóðan tíma eða í u.þ.b. 15 mínútur. 3. Nýtið tímann á meðan til að sjóða vatn í katli eða í öðrum potti. Þetta er ekki nauðsynlegt en okkur þykir gott að búa til grænmetissoð með því að sjóða vatn, hella því í skál og leyfa kraftinum að leysast almennilega upp í því áður en við hellum því út í pottinn með sveppunum. 4. Hristið saman hveitiblönduna þar til engir kekkir eru eftir. Okkur þykir fínt að nota sultukrukku í verkið því þá er engin hætta á að þetta hristist upp úr. Hellið blöndunni hægt út í og hrærið vel í á meðan. 5. Hellið grænmetissoðinu út í, 50 ml í einu, og hrærið vel í á meðan svo ekki myndist kekkir í súpunni. Leyfið suðunni svo að koma upp og hellið síðan mjólkinni út í. 6. Látið súpuna malla í 15 til 20 mínútur áður en rjóminn fer út í. Á þessu stigi er fínt að smakka súpuna og sjá hvort meira vanti af kryddi. 7. Hellið hafrarjómanum út í, látið suðuna að koma upp, slökkvið undir og berið fram. 8. Ef gera á súpuna daginn áður, líkt og við gerum til dæmis oft á jólunum, er fínt að geyma það að setja rjóm- ann út í þar til hún er hituð upp rétt áður en á að borða hana. 9. Það má auðvitað mauka súpuna með töfrasprota ef fólk vill en við kjósum að gera það ekki. Steikin er elduð í ofni eftir leiðbeiningum á pakkanum. Hún fæst frosin í Hagkaup í ýmsum gerðum en Smokey Forager‘s Roast finnst mér mjög góð. Fylltir sveppir hráefni: 15 stórir sveppir Fylling: 230 gr kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 1 klukkutstund 2 hvítlauksgeirar 1 msk sítrónusafi 1 msk dijon sinnep 220 ml basilikulauf (ekki þjöppuð) 3 msk næringarger 1 tsk salt og pipar 1/2 tsk laukduft (onion powder) 1/2 dl vatn Fylltir sveppir aðferð Skerið stilkana af sveppunum (ekki henda þeim, þið notið þá í sósuna) svo það myndist holrúm í þeim og leggið til hliðar á bakka. Takið fram matvinnsluvélina og setjið kasjúhneturnar í. Bætið við hráefninu í fyllinguna, vatnið síðast og hellið vatninu hægt og rólega út í á meðan matvinnsluvélin er í gangi. Þegar fyllingin er orðin frekar mjúk þá setjið hana ofan í sveppina. Best er að grilla sveppina stutt á miðlungshita en hægt að setja í ofn á grillstillingu í smá tíma og þeir verða tilbúnir þegar fyllingin er orðin aðeins brún ofan á. Sveppasósa hráefni: 400-560 ml kókosmjólk 2 1/2 dl kasjúhnetur 2 msk næringarger 1/2 tsk hvítlaukskrydd 1 tsk reykt paprikukrydd salt og pipar eftir smekk bas i l ikukr ydd e f t i r smekk*má sleppa 1/2 saxaður laukur 2-3 dropar af tabasco 6-8 litlir sveppir og stilk- arnir sem ekki voru notaðir þegar verið var að gera fylltu sveppina. 1 sveppateningur Hvítlauksolía við steikingu á sveppunum. Sveppasósa aðferð: Byrjið á því að saxa sveppina og laukinn og steikja á pönnu upp úr hvítlauksolíu, bætið salti og pipar við. Hellið 400ml af kókosmjólkinni í blandara, takið vatnið af kasjúhnetunum og bætið þeim í blandarann með kókós- mjólkinni, blandið vel þar til engir kögglar eru eftir. Setjið kókosmjólkina í pott með blönduðu kasjúhnet- unum og bætið öllum kryddunum við, sveppateningnum og tabasco sósunni. Sveppunum og lauknum bætt út í og látið malla, mjög gott að setja olíuna frá steikingunni með í sósuna. Ef sósan er of þykk, þá er gott að bæta 160 ml sem eftir er af kókosmjólkinni og/eða þynna með smá vatni. Smakkið til og kryddið meira ef ykkur finnst vanta. Mér fannst mjög gott að bæta smá rifsberjasultu í sósuna en það er algjört smekksatriði. Sætkartöflumús hráefni og aðferð: 2 miðlungs stórar sætar kartöflur 1 dl sæt sojamjólk Skerið sætu kartöflurnar, takið hýðið af og sjóðið. Þegar þær eru tilbúnar þá stappið þær vel og vandlega með kartöflustöppu og bætið sojamjólkinni hægt við, ekki setja alla mjólkina í einu. Það fer eftir stærð kart- aflanna hvað þarf mikið svo þið verðið að meta það sjálf. Salt og sykur eftir smekk en farið varlega með sykurinn þar sem sojamjólkin er sæt fyrir. Eftirrétturinn er hreinlega bara keyptur út í búð. Mikið úrval er til af vegan ís, til dæmis í Hagkaup og Krónunni. Mínir uppáhalds ísframleiðendur eru Coconut Bliss og Ben&Jerry‘s, og þá er ég að sjálfsögðu að tala um vegan ísinn þeirra. Forréttur Villisveppasúpa (Fengin af heimasíðunni veganistur.is) Aðalréttur Steik frá Field Roast með sveppasósu, fylltum sveppum og sætkartöflumús (fengið af thebrokevegans.wordpress.com) Eftirréttur Gómsætur vegan ís LAUS STÖRF Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki. Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði. Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/ storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. VELFERÐARSVIÐ FRÆÐSLUSVIÐ HOLTASKÓLI HEIÐARSKÓLI HEIÐARSKÓLI Umönnun á heimili fatlaðra barna Sálfræðingur í 50% starfshlutfall Staða kennara Íslenskukennari Náttúrufræðikennari VIÐBURÐIR FJÖLBREYTTIR JÓLATÓNLEIKAR Jólatónleikaröð Tónlistarskóla Reykjanesbæjar stendur nú yfir og lýkur að kvöldi þriðjudagsins 20. desember. Nánar í Tónvísi á vefsíðu skólans, tonlistarskoli.reykjanesbaer.is og á skrifstofu í síma 420-1400. Aðgangur á tónleikana er ókeypis og allir velkomnir. Kennsla hefst að loknu jólaleyfi miðviku- daginn 4. janúar 2017. JÓLASKÁKMÓT SAMSUÐS OG KRAKKASKÁKAR Mótið verður haldið laugardaginn 17. desember kl. 13:00 - 16:00 í Gerðaskóla Garði. Glæsilegir happdrættisvinningar í mótslok. Keppt verður í fjórum flokkum, drengir og stúlkur 7-10 ára og 11-16 ára. Skráning á fjorheimar.is BRÉFAMARAÞON AMNESTY INTERNATIONAL Bréf til bjargar lífi í Bókasafni Reykjanesbæjar til 17. desember. Reykjanesbær, óskar eftir tilboðum í verkið. Fráveita leidd úr Helguvíkurhöfn 2017. Verkið felst í uppgreftri, klapparvinnu, söndun, lagningu hol- ræsa, þverun brimvarnargarðs og frágangsvinnu ýmiskonar. Verk þetta skal unnið frá 1. febrúar 2017 til 1. júlí 2017 Helstu magntölur eru eftirfarandi: Skurðgröftur 373m Sjóvarnargarður fjarlægður 1.285m³ Fleygun á klöpp 256m Fylling í skurði 373m Sjóvarnargarður endurgerður 1.285m³ Fráveitulagnir Ø600 456m Fráveitulagnir Ø630 30m Steyptar sökkur í sjó 10 stk Steyptur lagnastokkur 60m Útboðsgögn verða afhend á geisladisk á skrifstofu Verkfræði- stofu Suðurnesja, Víkurbraut 13, 230 Reykjanesbæ. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10. janúar 2017, kl. 11:00. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar ÚTBOÐ

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.