Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 37

Víkurfréttir - 15.12.2016, Blaðsíða 37
37fimmtudagur 15. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR S TA R F S S T Ö Ð : K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R U M S Ó K N I R : I S AV I A . I S/AT V I N N A U M S Ó K N A R F R E S T U R : 2 2 . J A N Ú A R , 2 0 1 7 V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ? F L U G V E R N D Helstu verkefni eru vopna- og öryggisleit, eftirlit í flugstöð og á flughlöðum á Keflavíkurflugvelli. Óskað er eftir starfsfólki í hluta- og heilsdagsstörf en um er að ræða vaktavinnu. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í apríl og maí. Við bjóðum upp á fríar rútuferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu fyrir starfsmenn sem þurfa á því að halda. Hæfniskröfur: • 18 ára aldurstakmark • Gott vald á íslenskri og enskri tungu, bæði rituðu og mæltu máli • Rétt litaskynjun • Lágmark tveggja ára framhaldskólanám eða sambærilegt • Hæfni í mannlegum samskiptum og framúrskarandi þjónustulund Allir umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að sækja undirbúningsnámskeið í tíu virka daga áður en þeir hefja störf og standast próf í lok námskeiðs. Einnig þurfa umsækjendur að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar. Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur. Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað. Arnar starfar við flugvernd á Keflavíkur- flugvelli. Hann er hluti af góðu ferðalagi. Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Miracle on 34th street frá árinu 1947. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Ég hef aldrei sent jólakort sjálf þannig að ég myndi ekki segja að Facebook hafi tekið yfir. Ertu vanafastur um jólin, eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Já, ég hef alltaf keypt mér jólanáttföt sem ég sef í á Þorláksmessunótt. Svo rífumst við systur um að vaska upp Mávastellið eftir matinn. En svo eru spilakvöld með fjölskyldu og vinum, jólaboðin, jólamaturinn og Nóa Siríus konfektið er allt mjög mikilvægt. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég er ein af fjórum systrum og eitt árið fengum við allar mjög fallegar gærur. Þetta var áður en gærur urðu vinsælt punt þannig okkur brá öllum mjög en gefandinn vissi greinilega í hvað stefndi í tískubylgjunni, við hlógum okkur máttlausar yfir þessu fyrst en í dag er þetta í stofunum hjá okkur öllum og við erum rosa ánægðar með þessa gjöf. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Það er efst í huga hvað það var gaman þegar við systurnar vorum allar saman að spila og kúra yfir jólaskrípóinu í jólalandinu sem mamma býr alltaf til heima. Hvað er í matinn á aðfangadag? Í aðalrétt verður hamborgarhryggur með öllu tilheyrandi. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Ekki fyrr en bjöllurnar hringja kl. 18 á aðfangadagskvöld. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Já, hef verið erlendis og gæti alveg hugsað mér að gera það aftur. Hvernig brástu við þegar þú komst að leyndarmálinu um jólasveininn? Viðbrögðin voru ekki mikil, ég þóttist trúa lengi vel eftir að leyndarmálinu var uppljóstrað fannst það réttlátt því mamma plataði mig svo lengi. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Ég held að George Jensen skrautin sem fara á jólatré séu í uppáhaldi, finnst þau svo hátíðleg og eru ein fyrsta minning mín frá jólum en Ásta frænka, amma og afi hafa verið dugleg að gefa okkur barnabörnunum skraut og óróa. Hvernig verð þú jóladegi? Ég fer í jólaboð til ömmu og afa í Reykjavík og hitti þar alla föðurfjöl- skylduna. Jólaspjall: Rifist um uppvask á mávastellinu Sigrún Björnsdóttir er 22 ára Keflavíkurmær og vinnur í Arion banka á Keflavíkurflugvelli. Jólin eru komin hjá henni klukkan 18 á aðfanga- dag þegar klukkurnar hringja. Georg Jensen jólaskrautið er í uppáhaldi og í aðalrétt á að- fangadag er hamborgarahryggur. Föstudaginn 16. desember. Samkomuhúsinu í Garðinum. Á boðstólnum verður meðal annars saltfiskur, plokkfiskur, siginn fiskur að ógleymdri skötunni ásamt tilheyrandi meðlæti. Verðinu er stillt í hóf og kostar aðeins 3000 kr. á manninn. Opið er í hlaðborðið frá kl. 11:30 - 13:30 og frá kl. 18:00 – 20:00. Borðapantanir fyrir stærri hópa hjá Gullý á netfangið gullysig@simnet.is SKÖTUHLAÐBORÐ VÍÐIS 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum 2016 Skafmiðaleikur Víkur frétta og verslana á Suðurne sjum NÚ BORGAR SIG AÐ SKILA Jólalukku miðum í Nettó því það verður dregið 21. og 24. des. „Ég hef alltaf keypt mér jólanáttföt sem ég sef í á Þorláksmessunótt“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.