Víkurfréttir - 15.12.2016, Side 42
42 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Þórey Kristín Sveinsdóttir
Get núna
aðstoðað börn-
in í náminu
■ Þegar ég hóf nám við MSS gerði ég
það fyrir sjálfa mig til að auka sjálf-
traust mitt og efla þekkingu mína.
Eftir þennan vetur er ég fær um að
aðstoða krakkanna mína, sem eru á
öllum skólastigum, við nám og það
sem fylgir því.
Að vera í fjarnámi er ekki auðvelt en
með skipulagningu, góðum kenn-
urum og upplýsingum á milli skóla
og nemenda eru okkur allar leiðir
færar.
Sindri Heiðarsson
Hefur gengið
vel með sjó-
mennskunni
■ Til að byrja með var ég ekki viss
um hvort að það gengi upp að vera
í skóla á sjó. En svo var bara að
henda sér af stað og allt hefur gengið
vonum framar. Allir starfsmenn
MSS koma svo mikið til móts við
þarfir mínar að hálfa væri nóg. Ég
er að róa í skiptakerfinu 3-1 og hef
aldrei þurft að taka auka frí túr til að
sinna náminu.
Menntastoðir eru undirbúningsnám
fyrir frumgreinadeildir Háskólanna
eða fyrir nemendur sem stefna á frek-
ara iðnnám. Markmið með námsleið-
inni er meðal annars það að veita full-
orðnum námsmönnum tækifæri til að
ljúka almennum bóklegum greinum
á stuttum tíma og taka þannig fyrstu
skrefin að frekara námi.
Rúmlega 420 nemendur hafa lokið
námsleiðinni hjá MSS og hefur stór
hluti nemenda haldið áfram í meira
nám. Menntastoðir hafa reynst
mörgum fullorðnum námsmönnum
stuðningur og hvati til þess að halda
áfram í námi, til dæmis á háskólabrú
Keilis og svo í háskólanámi.
Nemendahópur Menntastoða er fjöl-
breyttur og á öllum aldri. Fólk með
mismunandi bakgrunn og reynslu.
Sjómenn, atvinnumenn í fótbolta,
nemendur með erlendan bakgrunn
svo eitthvað sé nefnt.
MSS hefur verið leiðandi í Fjarnámi
í Menntastoðum og þjónustar nem-
endur af öllu landinu og þá sem búa
erlendis.
Í janúar fer af stað nýr hópur í fjar-
námi Menntastoða. Námið er 10
mánaða langt og metið til allt að 50
eininga. Kennsla fer fram á netinu en
boðið er upp á staðlotur á sex vikna
fresti.
Þetta fyrirkomulag getur verið frá-
bær lausn fyrir þá sem eru í vinnu en
hyggja á frekara nám. Miðað er við
lotukennslu og því er eitt fag kennt
í einu en námstækni dreifist á báðar
annirnar.
Opið er fyrir skráningar í fjarnám sem
hefst í janúar 2017.
Meira en 400 manns
hafa farið í fjarnám
●● í●Menntastoðum●hjá●MSS
Rúrik Gíslason
Frábær
tilfinning
■ Ég lauk við fjarnám frá Mennta-
stoðum fyrir tveimur árum og til-
finningin að ná þeim áfanga var frá-
bær. Fjarnámið frá Menntastoðum
er vel sett upp, viðmót kennara og
starfsmanna skólans var gott og
greinilegt er að lagt er upp með að
hafa hvetjandi áhrif á nemendur
sem byggir upp sjálfstraust í námi,
sem að skilar svo betri námsárangri.
Námið í Menntastoðum er frábær
grunnur fyrir næstu námsskref og
fann ég hvað það kom sér vel að hafa
farið í Menntastoðir þegar ég hélt
námi mínu áfram eftir útskrift. Með
jákvæðu hugarfari, skipulagningu
og metnaði tókst mér að ljúka við
námið á tilsettum tíma, þrátt fyrir
búsetu erlendis og annir í vinnu.
Fyrirlestrar og beinar útsendingar
frá vinnuhelgum eru eins og best
verður á kosið þannig að nálægðin
við námið er töluverð þó svo að fjar-
lægðin frá skólanum sé mikil. Ég get
svo sannarlega mælt með fjarnámi
Menntastoða og efast ég ekki um að
framtíðarnemendur skólans munu
deila sömu skoðun og ég.
DRAUMALAND
TJARNARGÖTU 3, 421-3855
VIÐ ERUM Á FACEBOOK.
Jólin
ERU MÆTT Í DRAUMALAND.
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM.
METTE DITMER - JUST
JELLYBEAN - ÍSLENSK HÖNNUN.
FALLEGAR LEIÐISGREINAR
OG LEIÐISVENDIR.
OPIÐ ALLA DAGA VIKUNAR
Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbæ | www.siraf.is | Si01@simnet.is | Sími: 421 7104
Jólagjöfina
færðu hjá okkur