Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 6
6 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Óskum bæjarbúum
gleðilegra jóla með ósk
um friðsæla jólahátíð
og farsælt komandi ár
Þökkum fyrir ánægjuleg
samskipti á árinu sem
er að líða.
Fálkavöllur 7 - 235 Keflavíkurflugvelli - Sími 420 0700 - www.airportassociates.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykja-
nesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Eyþór Sæmundsson, sími
421 0002, eythor@vf.is, Dagný Hulda Erlendsdóttir, sími 421 0002, dagnyhulda@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús
Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is, // Umbrot og hönnun: Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421
0006 // Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
// Prentvinnsla: Landsprent // Upplag: 9000 eintök. // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: www.
vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag
sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist
fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða
myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
STARFSSTÖÐ HRINGRÁSAR
HELGUVÍK
MUN LOKA UM ÁRAMÓT
Viðskiptavinir velkomnir í Klettagarða 9.
Gleðilegt ár og þökkum viðskiptin á árinu. Þ egar horft er upp í stjörnuhimininn sækir sú hugsun að okkur, hvort líf sé að finna einhvers staðar í þeim ómælisvíddum sem þar mæta augum okkar. Horfir ekki hvelfingin til baka á
okkur eins og vera með þúsund augu? Er einhver þarna
úti sem spyr sig sömu spurninga? Þrátt fyrir alla þekk-
ingu okkar vitum við ekki enn hvort líf sé að finna víðar
en á þessari plánetu – en spurningin lætur okkur ekki í
friði og enn leitum við. Af hverju? Jú, vegna þess að þrátt
fyrir stærðirnar, fjöldann, aflið og furðurnar sem blasa við
augum okkar er ekkert eins merkilegt og lífið
Á jólahátíðinni fyrstu fengu hirðarnir óvænta heimsókn –
ef til vill úr fjarlægum kimum alheimsins eða jafnvel ein-
hverjum öðrum víddum tilverunnar. Boðskapurinn sem
gestirnir færðu hirðunum var sá að nýtt líf væri komið í
heiminn: „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Heimurinn varð
aldrei samur, því lífið breytir öllu.
Frelsari sá sem fæddist þessi fyrstu jól átti eftir að hafa
mikil áhrif og fylgjendur hans halda heilög jól í minn-
ingu fæðingar hans. Jólin eru hátíð lífsins. Þau fjalla um
dýrðina sem lífinu fylgir. Með þeim hætti birtist hinn
almáttugi Guð sem lítið barn, eins og Einar í Heydölum
lýsir þessum atburði: Fjármenn hrepptu fögnuð þann,
þeir fundu bæði Guð og mann,
í lágan stall var lagður hann,
þó lausnarinn heimsins væri.
Sá sem þar kom í heiminn starfar enn og lifir enn. Hann
er sá sem lét dauðann lúta í lægra haldi fyrir lífinu. Hann
minnir okkur enn á undur lífsins og það hversu ríkar
skyldur við berum gagnvart því. Sjálfur sagðist hann
mæta okkur í okkar minnsta bróður – og einmitt þannig
mætum við honum hvað eftir annað.
Boðskapurinn er sá sami. Jafnvel þegar lífið er umkomu-
laust í smæð sinni og hverfulleik er það ríkulegri vottur
um sköpun Guðs en stærstu furður alheimsins.
Erla Guðmundsdóttir
Sóknarprestur í Keflavíkurkirkju
JÓLAHUGVEKJA ERLU
Horft til himins
LAUS STÖRF
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef
Reykjanesbæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf eða
beint á Ráðningavefinn https://reykjanesbaer.hcm.is/
storf/. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um
auglýst störf.
VELFERÐARSVIÐ
FRÆÐSLUSVIÐ
HOLTASKÓLI
AKURSKÓLI
AKURSKÓLI
Umönnun á heimili fatlaðra barna
Sálfræðingur í 50% starfshlutfall
Staða kennara
Skólaliði
Kennari í íslensku og samfélagsfræði
VIÐBURÐIR
OPNUNARTÍMI YFIR JÓL OG ÁRAMÓT
Ráðhús
-þjónustuver og bókasafn
Lokað 24.-26. desember
Opnar kl. 10:00 27. desember
Lokað 31. desember-2. janúar
Aðra daga er hefðbundinn
opnunartími.
Íþróttamiðstöð Njarðvíkur
Opið 23. desember til kl. 13:00
Lokað 24.-26. desember
Lokað 31. desember og 1. janúar
Aðra daga er hefðbundinn
opnunartími.
Sundmiðstöð/Vatnaveröld
Opið 23. desember til kl. 16:00
Lokað 24.-26. desember
Opið 31. desember til kl. 11:00
Lokað 1. janúar
Aðra daga er hefðbundinn
opnunartími.
Duus Safnahús og Rokksafn
Lokað 24. og 25. desember
Lokað 31. desember og 1. janúar
Aðra daga er hefðbundinn
opnunartími.
Gleðilega hátíð!
Ég ætla að muna eftir ykkur á jólunum
Þetta voru orð frú Ásu Olavsen þegar hún kvaddi börnin
í Keflavík sem hún hafði boðið til veislu heim til sín, í
fínasta hús bæjarins, Fischershús, einn fagran sumardag.
Frú Ása var eiginkona Ólafs Olavsens forstjóra og með-
eiganda Duusverslunar í kringum aldamótin 1900.
Frú Ása stóð við sitt. Frá þessum tíma stóð Duusverslunin
fyrir glæsilegum jólatrésskemmtunum í Bryggjuhúsinu
um 20 ára skeið. Þarna komu saman öll börn bæjarins
og úr nágrannabyggðum, allt upp undir 300 börn og sáu
þá mörg þeirra jólatré í fyrsta sinn. Skemmtunin hófst
seinni partinn og stóð fram undir miðnætti. Dansað var
í kringum jólatréð, söngvar sungnir og veitingar reiddar
fram. Um miðnættið tók fullorðna fólkið við og skemmti
sér fram eftir nóttu. Ljóst er að þessar skemmtanir hafa
verið mikil upplyfting á þessum tímum þegar Keflavík
var bara lítið, fátækt þorp og fátt um að vera. Kannski
hafa þær haft svipað gildi og Ljósanótt fyrir okkur í dag.
Í desember var litið til baka og þessi aldargamli við-
burður rifjaður upp með jólatrésskemmtun í Bryggju-
húsinu. Þessi mynd var tekin þar á aðventunni.