Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 34

Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 34
34 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Páll Orri Pálsson pop@vf.is Unnar Már Unnarsson er 21 árs Keflvíkingur sem stundar nám við skandinavíska Osteopataskólann í Svíþjóð og er að læra að verða osteo- pati. Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á líkamanum og heilsu en þegar hann fór til Péturs Péturssonar heitins sem hjálpaði honum í gegnum meiðsli kviknaði áhuginn á náminu. Fjórir aðrir Suðurnesjamenn eru í sama námi í skólanum. Námið fer fram eina viku í mánuði í Svíþjóð í 5 ár en sam- hliða því sinnir hann heimanámi á Íslandi. „Ég hef alltaf haft ótrúlega mikinn áhuga á líkamanum, líkamsrækt og heilsu yfir höfuð og svo hefur maður náttúrlega verið að spila fótbolta frá því maður byrjaði að standa í lapp- irnar, og þeir sem eru í boltanum vita vel að því geta fylgt meiðsli. Ég var svo ótrúlega heppinn að vera einn af þeim sem fékk að kynnast hinum elsku- lega Pétri Péturssyni sem við könn- umst öll við af Suðurnesjum og hann hjálpaði mér rosalega mikið þegar ég var að glíma við meiðsli. Það var þá þar sem ég fékk mikinn áhuga á að verða osteopati, þegar ég sá að hann hafði nánast alltaf svör við öllu. Hann náði einhvern veginn alltaf að koma mér á völlinn aftur með ótrúlegustu aðferðum sem er einmitt það sem osteopatar hafa oftast fram yfir aðra í þessum bransa, mjög mikið af að- ferðum til að laga fólk. Ég hafði það alltaf á bak við eyrað að ég vildi verða osteopati í framtíðinni þar sem ég hafði mikinn áhuga en á þessum tíma var ég bara ennþá í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Ég lét svo loksins verða af því eftir að hafa tekið eina önn í við- skiptafræði í Flórída í byrjun árs þar sem ég var engan veginn að fíla mig,“ segir Unnar. Það reynir mikið á skipulag og sjálf- saga í þessu námi þar sem stór hluti þess fer fram á Íslandi í heimanámi en mastersnámið tekur fimm ár og saman stendur af níu önnum. Námið er nokkuð dýrt en önnin kostar eina milljón króna. Með Unnari í náminu eru fjórir ungir Suðurnesjamenn. „Það er ótrúlegt að segja frá því en við sóttum öll um þetta nám án þess að vita hvert af öðru. Það er þvílík tilviljun að það séu eingöngu fjórir íslendingar í þessum bekk sem við erum í og að við séum öll frá Suður- nesjum og þekkjumst mjög vel, sem er náttúrlega bara stór plús.“ Unnar býr hjá keflvíska knattspyrnu- manninum Elíasi Má Ómarssyni, leik- manni IFK Gautaborg, þegar hann er úti en aðrir leigja sér íbúð. Er erfitt að fá starf sem osteopati á Íslandi? „Osteopatar starfa sjálfstætt eftir að þeir útskrifast, svo að svarið er nei, það er ekki erfitt að fá starf þar sem flestir stofna bara sitt eigið fyrirtæki og vinna sjálfstætt eða með öðrum osteopötum. Það eru náttúrlega ótrú- lega fáir osteopatar á Íslandi og tel ég mikla þörf fyrir fleiri svo ég held að það verði nóg að gera hjá manni að loknu námi. Draumastarfið mitt innan osteopatíunnar væri að vinna með íþróttamönnum í fremstu röð. Ég hef sjálfur verið í íþróttum allt mitt líf og held að osteopatar eigi eftir að koma enn meira inn í íþrótt- irnar á næstunni og þá sérstaklega hjá klúbbum og íþróttamönnum sem spila í efstu deildum.“ Hann segir það skemmtilegasta við námið að æfa sig í höndunum. Það er mjög stór hluti af starfinu. Anat- ómía er eftirlætis fagið þar sem hann lærir um alla vöðva í líkamanum, hvar þeir festast og hvernig þeir virka. „Við lærum svo öll bein og hvernig vöðvar og beinin vinna saman í að halda okkur uppi og hreyfa okkur. Það er allt kennt á latínu eins og oftast er gert í anatómíu. Þar þarf að læra rosa- lega djúpt inn á líkamann og öll kerfi í honum til að verða sem bestur og geta unnið vel með höndunum og hjálpað fólki. Það virkar vel að vera í verk- legum æfingum og bóklegum saman sem gerir þetta ótrúlega skemmtilegt. Það hjálpar mikið til þegar við erum að fara yfir þungt efni að komast í smá verklegar æfingar inn á milli, það er bara algjörlega nauðsynlegt,“ segir Unnar en honum finnst skemmtileg- ast að ‘palpate-a’, en þá æfa nemendur sig að finna vöðva á hver öðrum. ●● Reynir●á●skipulag●og●sjálfsaga ●● Nóg●að●gera●að●námi●loknu ●● Draumurinn●að●vinna●með●íþróttamönnum●í●fremstu●röð,●● segir●Unnar●Már●Unnarsson.●Suðurnesjamenn●fjölmennir●í●Svíðþjóð. Osteopatar alltaf með svör Sóley að athuga með vöðvann Psoas Major hja Unnari og er að losa um spennu þar. Unnar að skoða hreyfigetuna á milli hryggjaliða í viktori. Unnar og Emil á svokölluðum beinalager.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.