Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 42
42 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
H
F
IÐAVÖLLUM 6 - 230 KEFLAVÍK - SÍMI 421 4700 - FAX 421 3320
Sendum Suðurnesja-
mönnum bestu óskir um
gleðileg jól og
farsælt nýtt ár.
Þökkum viðskiptin
á árinu
sem er að líða. Sendum félagsmönnum og
Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir
um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þökkum samstarf á árinu sem er að líða.
Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Sími 420 2500 | www.skolamatur.is
Jólabíómyndin sem kemur
þér í skapið?
Love Actually er mitt uppáhald.
Sendir þú jólakort eða
hefur Facebook tekið yfir?
Ég held enn í þann sið að senda jóla-
kort. Þeim hefur þó fækkað með ár-
unum, þar sem maður er í góðu sam-
bandi við vini og ættingja á Facebook.
Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað
sem þú gerir alltaf yfir hátíðirnar?
Við hjónin höfum haft það fyrir sið að
gera eitthvað með börnum og tengda-
börnum um jólin. Hvort sem það er
að fara út að borða saman eða bara
í bíó.
Eftirminnilegasta jólagjöf
sem þú hefur fengið?
Af jólagjöfum sem ég fékk sem barn
stendur upp úr uppblásið Barbie sófa-
sett og svefnherbergishúsgögn fyrir
Sindy sem ég fékk frá eldri systkinum
mínum. Þetta hafði verið á óska-
listanum mínum allt árið. Sérstak-
lega sófasettið fyrir Barbie. Það sem
stendur upp úr seinni árin er hringur
sem eiginmaðurinn gaf mér ein jólin
fyrir ansi mörgum árum. Við vorum
nýlega byrjuð að búa og engu eytt.
Við höfðum ákveðið að sleppa jóla-
gjöfum til hvors annars þetta árið en
svo beið eftir mér óvænt jólagjöf undir
jólatrénu.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér
frá yngri árum þínum á jólum?
Jólabarnaefnið í sjónvarpinu allan
daginn á aðfangadag, það var nú eitt-
hvað góðmeti sem maður var ekki
vanur. Þegar ég var barn (ekki svo
langt síðan) var Stundin okkar á
sunnudögum það eina sem var í boði.
Nú, svo fékk maður nammi allan dag-
inn eins og maður gat í sig látið. Mér
fannst líka nauðsynlegt að öll systk-
inin mín sem voru flutt að heiman
kæmu í mat á aðfangadagskvöld til
foreldra okkar, fannst ómögulegt að
við Kristín systir værum bara tvær
með gamla settinu. Eldri systkini
mín voru auðvitað komin með börn
og tóku því ekki alveg eins vel í hug-
myndir mínar.
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Eiginmaðurinn sér um að grilla
humar í forrétt, við erum með ham-
borgarahrygg í aðalrétt. Eftirrétturinn
samanstendur af ís og heitri snickers-
íssósu.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Ég ólst upp við það að setjast niður við
matarborðið þegar að kirkjuklukk-
urnar hringja inn jólin á Gufunni
klukkan 18:00. Ég hef reynt að halda
í þennan sið og þó að ég sé ekkert
sérstaklega trúrækin eru jólin komin
þegar ég heyri í kirkjuklukkunum í
útvarpinu.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað
þér að vera erlendis um jólin?
Ég hef aldrei verið erlendis um jólin
og gæti ekki hugsað mér það eins og
staðan er núna. En maður á aldrei að
segja aldrei og ef það myndi gerast,
yrði ég að hafa alla fjölskylduna með
mér!
Hvernig brástu við þegar þú komst
að leyndarmálinu um jólasveininn?
Þetta var að sjálfsögu mikið áfall. Við
erum að tala um mikið leyndarmál
sem var upplýst. Ég neitaði algerlega
að horfast í augu við leyndamál sem
lak út í Grunnskólanum í Njarðvík.
Seinni árin hef ég svo komist að því að
þetta er ekki alveg svona svart/hvítt.
Ég hef nefnilega hitt nokkra jólasveina
og segi því að þeir eru til.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Uppáhalds jólaskrautið mitt er jóla-
skraut sem börnin mín hafa gefið
okkur hjónunum. Aníta, dóttir okkar,
hefur gefið okkur jólakúlur á tréð í
jólagjöf undanfarin ár, sem ég held
mikið upp á. Svo er það jólaengill úr
gleri sem sonur okkar, hann Aron, gaf
okkur eitt árið, hann var ekki nema
7 ára. Hann hafði safnað peningum
fyrir gjöfinni og fór og keypti hana
sjálfur. Á leiðinni heim rann þetta
eitthvað úr höndunum á honum og
engillinn brotnaði. Hann fór því aftur
í búðina og ætlaði að kaupa annan
en afgreiðslukonan ákvað að gefna
honum bara annan engil. Þessa sögu
sagði hann mér þegar ég opnaði pakk-
ann og því finnst mér þessi gjöf inni-
halda sannan jólaanda.
Hvernig verð þú jóladegi?
Þetta er dagurinn þegar maður borðar
allan daginn og reynir að leggja sig
á milli. Við höfum hitt fjölskylduna
mína í hádegismat og svo hittist fjöl-
skylda eiginmannsins um kvöld-
matarleytið. Það er stundum gripið í
borðspil á jóladagskvöld eða bara eytt
kvöldinu í gott spjall. Mér finnst þetta
dýrmætur tími og maður á að muna
að njóta hans vel. Samveran er senni-
lega eitt það besta sem hægt er að óska
sér í jólagjöf.
Ég sendi mínar bestu jólakveðjur til
allra íbúa á Suðurnesjum. Megi nýja
árið færa okkur öllum birtu og yl.
Hefur hitt
nokkra jólasveina
Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri
Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, heldur
enn í þann sið að senda jólakort en þeim hefur
þó fækkað með tilkomu Facebook. Ein ef eftir-
minnilegri jólagjöfum sem hún hefur fengið er
uppblásið Barbie sófasett og hún segir að jólin
komi þegar jólaklukkurnar klingi í „Gufu“ Rík-
isútvarpsins klukkan sex á aðfangadag.