Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 22.12.2016, Blaðsíða 18
18 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Eyþór Sæmundsson eythor@vf.is „Góðan daginn! Er möguleiki fyrir þig að hittast klukkan 13:00,“ segir Brenton og tekur þannig af allan vafa blaðamanns um hvort hann hafi átt að senda viðtalsbeiðnina á íslensku eða ensku. Brenton, sem fyrst kom til Íslands fyrir 18 árum hefur náð góðum tökum á íslenskunni og talar hana vel. Hann er giftur Njarðvík- ingnum Berglindi Sigþórsdóttur og saman eiga þau þrjá drengi sem hann tjáir sig við á ensku, enda vill hann að þeir læri hans móðurmál. Foreldrar Brentons áttu spænsku að móðurmáli og er hann satt að segja frekar súr að þau hafi ekki kennt honum spænsku þegar hann var að alast upp í Bronx hverfi New York borgar. Hann á rætur að rekja til Karíbahafsins. Móðir hans flúði Kúbu þegar Castro komst þar til valda. Faðir hans á svo uppruna sinn að rekja til Jamaíka og Kúbu. Lífið í Bronx var ekki auðvelt á áttunda ára- tug síðustu aldar þar sem mikið var um gengi og ofbeldi. Brenton segist þó ekki hafa upplifað ofbeldi eða neitt slíkt af eigin raun enda alinn upp til þess að halda sig á mottunni. Hann náði alfarið að sniðganga vandræði og öll vímuefni og var snemma farinn að stunda íþróttir. Brenton var góður íþróttamaður og frambærilegur náms- maður. Hann komst inn í mennta- skóla í Brooklyn þar sem hann byrjaði að mæta á körfuboltaæfingar. Hann segir sjálfur að hann hafi verið hrár leikmaður í fyrstu en hafði góðan grunn til að byggja á. Versti leikur ferilsins fyrir framan stóru skólana Ekki voru margir af stóru háskólunum sem sýndu Brenton áhuga þrátt fyrir fínan feril í framhaldsskóla. Skólar úr 2. og 3. deild sýndu honum áhuga. Aðeins einn skóli úr 1. deild háskóla- boltans vildi fá Brenton í sínar raðir. Það var Brooklyn háskólinn, sem er lítill einkaskóli sem lék utan deildar í þá daga. Brenton þekkti aðstoðar- þjálfarann sem vildi ólmur fá hann, en aðalþjáfarinn var ekki sannfærður. Brenton spilaði mikilvægan leik í úr- slitakeppni í borginni sem þjálfararnir komu að sjá. Þarna var stóra tæki- færið fyrir ungan leikmann. „Við töp- uðum leiknum og ég hitti úr einu af 18 skotum mínum í leiknum,“ rifjar Brenton upp og skellihlær. „Þetta er ennþá versti leikurinn á ferli mínum og það er óhætt að segja að þjálfar- arnir hafi ekki verið sannfærðir.“ Þjálfarar frá öðrum stórum skólum voru á leiknum og ljóst að nafn Bren- ton var strikað af mörgum listum þetta kvöld. Brenton fékk þó annað tæki- færi og komst í Brooklyn skólann á hálfum skólastyrk þar sem hann þótti ekki nægilega góður. Með góðri spila- mennsku vann Brenton sér inn fullan styrk og lék með skólanum í tvö ár. Þá fékk hann slæmar fréttir. Skólinn var í fjárhagskröggum og þurfti að leggja niður allar íþróttir. Þá var Bren- ton á byrjunarreit og þurfti að leita sér af nýjum skóla. Flestir skólarnir í umdæminu voru áhugasamir enda komst Brenton í úrvalslið í fylkinu eftir annað árið sitt í Brooklyn. „Ég gerði munnlegt samkomulag við Da- vidson skólann í Norður Karolínu en komst ekki inn þar sem einkunnirnar voru ekki nægilega góðar. Það var al- gjör vendipunktur í lífi mínu og ég var mjög vonsvikinn. Ég var bara að gera það sem þurfti til að skrimta námslega séð en það kom mér í koll á endanum.“ Á síðustu stundu kom Manhattan skólinn til sögunnar þar sem Brenton kláraði háskólaferilinn. Þar var Brenton í frægðarhöllinni og átti glæstan feril og leiddi liðið meðal annars til NCAA-úrslita þar sem liðið tapaði gegn sterku Virgina liði. Brenton varð besti leikmaður liðsins og einn af þeim bestu í New York um- dæminu auk þess sem hann bætti úr námsárangrinum og var verðlaunaður á þeim vettvangi. Hann taldi því að hann ætti möguleika á að verða at- vinnumaður. Ef ekki NBA deildin þá Evrópa. „Ef þú ferð í lítinn skóla þarftu að gera eitthvað stórkostlegt til þess að vekja athygli á þér. Þeir fá ekki mikla umfjöllun,“ segir Brenton en hann hlaut ekki náð fyrir augum NBA liða eða stóru liðanna í Evrópu. Hann þurfti virkilega að hafa fyrir því að komast í atvinnumennsku. Skrykkjótt leiðin í atvinnumennsku Eftir að ljóst varð að Brenton myndi ekki að ná að upplifa drauminn strax eftir útskrift lék hann með liði sem ferðaðist um landið og spilaði æf- ingaleiki við háskólalið. Hann segir það hafa verið mikið hark. „Við spiluðum 22 leiki á 30 dögum og fórum vítt og breitt um Banda- ríkin. Þjálfarinn í því liði kom mér á fyrsta samninginn minn sem at- vinnumaður í Finnlandi.“ Þar lék Brenton aðeins hluta af tímabili en fékk ekki áframhaldandi samn- ing. Á besta aldri sagði Brenton því skilið við körfubolta í þrjú ár. Hann þjálfaði þá kvennaliðið við gamla háskólann sinn. „Ég leit svo á að ég væri hættur í körfubolta 22 ára gamall. Ég ætlaði þá að snúa mér að þjálfun og gera starfsframa úr því.“ Ástríðan var ekki beint til staðar í þjálfun en Brenton hafði gaman af því að vera í kringum körfubolta. Þegar Brenton greip í körfubolta þá fór hann jafnan illa með and- stæðinga sína. Fólk furðaði sig á því af hverju hann væri ekki að spila. Fór í áheyrnarprufu hjá Spike Lee og lék vonda gaurinn í bíómynd Þegar hann var í fríi frá körfubolta daðraði Brenton við kvikmynda- iðnaðinn þar sem hann lék vonda gaurinn í körfuboltamyndinni Game day sem fór beint á dvd. Hann lék líka í auglýsingum sem sýndar voru um öll Bandaríkin og gáfu vel í aðra höndina. Brenton var einn af þeim sem komu til greina í stórmyndina He got game og fór í áheyrnar- prufu hjá sjálfum Spike Lee. „Það gekk ekki vel og ég var mjög stressaður. Ég er enginn leikari og hafði enga þannig þjálfun, ég las bara beint upp af blaðinu,“ rifjar Brenton upp og hlær. Brenton var hvattur til þess að leggja auglýsingar fyrir sig en þá var hann þegar farinn að huga að körfuboltanum aftur. Eftir þrjú ár í dvala fékk hann boð um að reyna fyrir sér hjá liði í Kýpur. Í lélegu formi skoraði Brenton 30 stig gegn sterku liði í sínum fyrsta leik. „Í lok leiks- ins komst ég í hraðaupphlaup og lagði boltann ofan í í stað þess ●● Átti●erindi●í●NBA● Ætlaði●að●hætta●22●ára ●● Lék●vonda●gaurinn●í●körfuboltamynd● Fór●í●áheyrnarprufu●hjá●Spike●Lee Flugumferðarstjórinn Brenton Birmingham um ferilinn og lífið eftir körfuboltann ÍSLENDINGUR MEÐ BANDARÍSKT VEGABRÉF Það mætti alveg deila um það hvort örlögin hafi hreinlega ætlað Bandaríkjamann- inum Brenton Birmingham að setjast að á Íslandi. Það var fyrir algjöra tilviljun að hann endaði hér þegar hann eltist við æskudrauminn. Í hans tilfelli féllu öll vötn til Njarð- víkur en þar hefur hann endað oftar en einu sinni eftir að hafa leitað á önnur mið. Þar fann hann ástina og átti ákaflega farsælan feril í körfubolta. Nú sér hann um að stjórna flugumferðinni á Keflavíkurflugvelli þar sem hinn yfirvegaði Brenton nýtur sín til fulls.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.