Víkurfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 24
24 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
RAUÐA KROSS BÚÐIN
kom unga
fólkinu á óvart
„Þetta verkefni sem við fengum var afar krefjandi. Ég vissi í
rauninni ekki hvað ég var að koma mér út í en það hljómaði
spennandi. Um leið og ég gekk inn í Rauða Krossinn blasti
við mér fullt af fallegum flíkum og það tók mig ekki langan
tíma að finna mér föt sem ég varð strax ástfangin af,“ sagði
Azra Crnac.
„Ég valdi mér tvær yfirhafnir, tvennar buxur, peysu og bol.
Yfirhafnirnar hafði ég hugsað sem smá „blast from the past“
sem ætti við okkar nútíma tísku. Ég hef lengi leitað mér að
dúnúlpu við hæfi, sem mér þykir temmilega „oversized“ en
ekki of síð. Viti menn, það leyndist ein slík í fatarekkanum
í búðinni. Það var fyrsta flíkin sem ég fann. Svo fann ég
fallegan „vintage“ pels sem mig hefur lengi dreymt um en
það er ótrúlegt hvað það leynast margar gersemar þarna
inni. Pelsinn er hægt að nota við marga viðburði, hvort
sem það er rölt á Laugaveginum á köldum vetrardegi eða
á leiðinni í jólaboð. Buxurnar voru ekki af verri gerðinni,
mjög einfaldar gallabuxur sem ég fann með aðstoð starfs-
fólks. Starfsfólkið átti mikinn þátt í fatavalinu en ég þurfti
ekki annað en að lýsa fyrir þeim flíkinni sem ég hafði séð
fyrir mér og á augabragði voru þær mættar með hana skæl-
brosandi. Svoleiðis fann ég einmitt fínu, útvíðu buxurnar
sem ég klæðist við pelsinn. Ég vildi fá slíkar buxur við fal-
legan bol sem myndi falla vel saman. Bolurinn sem ég valdi
er ekkert ósvipaður „gatsby“ fílingnum og fannst mér hann
mjög viðeigandi. Þessi ferð mín í Rauða krossinn skildi
eftir hlýja minningu í hjartanu. Ég sá svo mikið og mér
finnst magnað að geta endurnýtt gamlar flíkur sem eru að
koma aftur í tísku á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Það skemmir ekki reynsluna að starfsfólkið er gríðarlega
hvetjandi og huggulegt. Reynslan mín var svo jákvæð að
ég mun hiklaust nýta mér það að fara þangað aftur og helst
með vinkonur mínar í eftirdragi.“
„Þetta verkefni sem við fengum að taka þátt í var
mjög spennandi og skemmtilegt. Ég var ekki alveg
viss um hvað ég væri að koma mér út í og ég hafði
ekki hugmynd um það hvort ég myndi finna mér
eitthvað af flottum fötum. Ég hafði litlar væntingar
en mér brá verulega þegar ég kom á staðinn og sá
mikið af flottum fatnaði sem ég bjóst ekki við að
væri til. Ég valdi mér flottan vaxjakka, svartan bol,
svartar gallabuxur og brúna fína kuldaskó í venju-
lega „outfittið“ mitt. Það tók mig ekki langan tíma
að finna fötin en ég var gríðarlega ánægður með út-
komuna og þetta er klárlega fatnaður sem ég myndi
ganga í hversdagslega.
Að velja jóladressið var aðeins meira krefjandi
en gaman. Það var mikið af flottum jakkafötum í
ýmsum stærðum. Eftir dágóða leit fann ég geggjuð
kjólföt sem ég gat bara ekki látið vera. Þau pössuðu
vel á mig og urðu fyrir valinu. Jóladressið var því
samsett af kjólfötum að ofan, svartri skyrtu, vín-
rauðri slaufu og fann svo þessa fínu „Chelsea bo-
ots.“ Ég er virkilega ánægður með það sem ég valdi
mér. Þetta var mjög skemmtileg reynsla. Starfs-
fólkið er alveg yndislegt og virkilega hjálpsamt og
vil ég þakka þeim sérstaklega. Það er alveg klárt mál
að ég mun fara oftar í Rauða Krossinn að skoða mér
og kaupa föt. Þar leynist greinilega mikið af flottum
fötum á mjög ódýru verði.“
AZRA:
„Mun hiklaust fara aftur
með vinkonurnar í eftirdragi“
●● Magnað●að●geta●endurnýtt●gamlar●flíkur●sem●eru●að●●
koma●aftur●í●tísku●á●hagkvæman●og●umhverfisvænan●hátt
Rauði Krossinn á Suðurnesjum rekur fataverslun við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ þar sem boðið er
upp á fatnað sem fólk á svæðinu hefur gefið. Þar er mikið úrval af alls kyns fatnaði í öllum stærðum og
gerðum. Við fengum með okkur tvo unga Suðurnesjamenn, þau Özru Crnac og Arnór Breka til þess að
fara í Rauðakross-búðina og kaupa tvö „outfit“, eitt hversdags og annað aðeins fínna fyrir jólin. Þau
fengu 10.000 krónur í heildina til þess og tókst vel til.
ARNÓR BREKI:
„Klárt mál að ég mun fara oftar
að skoða og kaupa mér föt“
●● Þarna●leynast●mikið●af●flottum●ódýrum●fatnaði
„Starfsfólkið er alveg yndislegt og virkilega
hjálpsamt og vil ég þakka þeim sérstaklega“
„Pelsinn er
hægt að nota
við marga við-
burði hvort sem
það er rölt á
Laugaveginum
á köldum vetra-
degi eða á leið-
inni í jólaboð.“
„Ég hef lengi leitað
mér að dúnúlpu
við hæfi, sem mér
þykir temmi-
lega „oversized“
en ekki of síð.“
„Jóladressið
var því sam-
sett af kjól-
fötum að
ofan, svartri
skyrtu, vín-
rauðri slaufu
og fann svo
þessa fínu
Chelsea
boots.“
Ég valdi mér
flottan vax
jakka, svartan
bol, svartar
gallabuxur
og brúna fína
kuldaskó í
venjulega
„outfittið“
mitt.“
Páll Orri Pálsson
pop@vf.is