Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Side 40

Víkurfréttir - 22.12.2016, Side 40
40 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Opnunartíminn yfir hátíðarnar: Virkadaga kl. 7:00 - 17:30. Laugardaga kl. 8:00 - 16:00 og sunnudaga kl. 9:00 - 16:00. Þorláksmessa  kl. 7:00 - 17:30. Aðfangadagur jóla kl. 8:00 - 13:00 . Lokað verður 25. og 26. desember. Óska öllum Suðurnesjamönnum gleðilegra hátíðar og velferðar á nýju ári. Sigurjónsbakarí // Hólmgarður 2 // 230 Reykjanesbæ // Sími 421-5255 Hafnargötu 29, 230 Reykjanesbær - Sími 421 8585 Full búð af fallegum skóm á alla fjölskylduna Gleðilega hátíð og takk fyrir viðskiptin á árinu. OP IÐ T IL K L. 2 2:0 0 TI L JÓ LA Jólabíómyndin sem kemur þér í skapið? Það koma náttúrulega ekki jól nema maður horfi á the Holiday. Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir? Við sendum jólakort fyrstu tvö jólin eftir að eldri strákurinn okkar fæddist en svo er ég því miður sek um að hafa ekki nennt ekki að standa í þessum jólakortum síðustu tvö ár og frekar skellt í eina jólakveðju á Facebook. Stefni samt á að senda jólakort á næsta ári.. ef ég nenni. Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem þú gerir alltaf um hátíðarnar? Nei er alls ekki vanaföst um jólin. Eina sem mér dettur í hug er að við systk- inin höfum alltaf opnað pakkana frá hvort öðru fyrir matinn á aðfangadag en annars er ég bara nokkuð slök með allt annað. Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið? Hef fengið alveg ótrúlega margar fal- legar gjafir en eftirminnilegasta jóla- gjöfin er líklega karaoke græjan sem ég fékk frá mömmu og pabba þegar ég var yngri. Get ekki sungið fyrir fim- maur og er líklega falskari en flestir á Íslandi en þetta var svaka sport og var mikið notað, ætli mamma og pabbi hafi ekki fljótlega séð eftir þessari gjöf. Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum þínum á jólum? Eitt sem ég man vel eftir er þegar afi Pétur datt á aðfangadagskvöld niður þessar heilu tvær tröppur sem liggja niður í stofu heima hjá foreldrum mínum og lenti ofan á Knúti bróður sem þá var tveggja ára og sat í sínu mesta sakleysi á nýju snjóþotunni sinni. Þeir meiddust nú hvorugir sem betur fer en gamli var eðlilega alveg miður sín yfir þessu, greyið. Hvað er í matinn á aðfangadag? Hamborgarhryggur, brúnaðar kart- öflur og meðlæti. Svo er alltaf Toble- rone ís í eftirrétt. Hvenær eru jólin komin fyrir þér? Mér finnst jólin ekki vera komin nema ég fari á Baggalúts-tónleika. Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér að vera erlendis um jólin? Við vorum úti á Tenerife síðustu jól og áramót, ég ásamt einum bumbubúa, Danni kærastinn minn, strákurinn okkar Eyþór, mamma, pabbi, Svein- laug systir, Davíð mágur minn og börnin þeirra Hafþór og Elísabet. Svo hitti svo skemmtilega á að tengda- foreldrar mínir voru líka úti á Tene á sama tíma. Okkur fannst rosa nota- legt að vera úti um jólin og myndum alveg pottþétt vilja gera það aftur. Allt öðruvísi jól auðvitað en skemmtilegt samt að upplifa svona öðruvísi jól einu sinni. Áttu þér uppáhalds jólaskraut? Já, ég á tvö uppáhalds jólaskraut sem strákurinn minn föndraði í leikskól- anum. Hvernig verð þú jóladegi? Ég fer með fjölskyldunni minni í jóla- boð bæði til mömmu og pabba og svo til tengdó seinna um daginn. Svo höfum við það bara kósý saman um kvöldið. Jólaspjall: Karaoke græjan þótti mikið sport Hafdís Ásta Guðmundsdóttir, snyrtifræðingur er búsett í Garð- inum ásamt fjölskyldu sinni, en þar er hún fædd og uppalin. Henni finnst jólin koma með Baggalúts-tónleikum ár hvert en er að öðru leyti ekki vanaföst yfir hátíðarnar. Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að líða •  Fitjabraut 30 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 • Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem eru að lí • Brekkustíg 38 • 260 Reykjanesbær • Sími: 420-0040 • GSM: 698-5693 •  Bílasprautun • Réttingar • Sprautulökkun • Plastviðgerðir • Mössun • Bílrúðuskipti Ef þú lendir í tjóni þá sér Bílnet um málin ! Hjá Bílneti færð þú bestu viðgerð og þjónustu sem völ er á. Bílnet er gæðavottað verkstæði og með 5 stjörnur frá Sjóvá. Bílnet leggur áherslu á fagleg og snögg vinnubrögð. Við notum einungis vottað hágæða lakk frá Du Pont í samstarfi við Poulsen. Þjónusta í boði hjá Bílnet Bílasprautun - Bílaréttingar - Tjónaskoðun - Plastviðgerðir Bílrúðuskipti - Mössun - Sprautulökkun Bílnet ehf. - 420 0020 - Brekkustíg 38 - 260 Reykjanesbæ - www.bilnet.is

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.