Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 50

Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 50
50 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Hvenær fékkstu áhuga á ljósmyndun? Váhh. Þetta er stór spurning. Ég vil meina að ég hafi alltaf haft áhuga á ljósmyndun og alltaf dáðst af fallegum myndum. Fyrsta alvöru myndavélin mín var Canon 40D. Hvað kveikti áhugann? Stórt er spurt. Hver hefur ekki setið eða staðið fyrir framan fallega mynd og dáðst að? Ég á auðvelt með að hríf- ast af landslagsmyndum og myndum sem tengjast sjónum á einhvern hátt og held að þannig myndir hafi kveikt í mér í upphafi. Hvernig er ljósmyndataskan í dag? Hvaða vél og linsur eru í töskunni og hvaða linsu ertu oftast að nota? Í dag er ég að nota tvær vélar, annars vegar Canon 7D og hins vegar er það Canon 7D Mark II. Ég nota Canon EF 100 - 400mm aðdráttarlinsu aðallega þegar að ég er að mynda báta koma að landi og svo nota ég Canon 16 - 35mm í nánast allt annað og bæti við hana „filterum“ og öðru sem við þarf að éta. Svo leynist reyndar í töskunni Sam- yang 2,8 - 14mm sem er dregin upp þegar norðurljósin sýna sig. Það er eitthvað fleira dót í pokunum en það er dýpra á því. Hvar liggur áhugasvið þitt í ljósmynduninni? Bátar eru þér hugleiknir. Já, bátar eru mér nánast allt, ef svo má segja. Maður er náttúrulega alinn upp við sjávarsíðuna og kemst þar af leiðandi ekki undan því að hrífast af því sem gengur á í kringum mann og eitt af því er náttúrulega sjórinn og allt í kringum hann. Hetjurnar sem voru á bátunum og einnig bátarnir sjálfir. Allt átti þetta sína sögu, og að heyra sögur þegar maður var að alast upp af Willard eða Venna á Grindvíking, Öl- ver á Geirfugli, Svenna Ísaks á Hrafni og Helga á Hafberginu þegar að þeir lentu í mokfiskiríii eða lentu í brjáluðu veðri og þar fram eftir götunum. Það kveikti ákveðinn áhuga og ljóma yfir sjómennsku og bátum. Ég geri ráð fyrir að þú hafir varið mörgum klukkustundum við innsigl- inguna í von um rétta augnablikið? Hefur þú náð því? Já, innsiglingin hefur verið á köflum mitt annað heimili og ég hef, þó ég segi sjálfur frá, náð nokkuð góðum myndum, en svo kemur alltaf upp kappið í manni að ná betri mynd en maður náði síðast. Þannig að svarið við þessari er já, ég er búinn að fanga rétta augnablikið, en á bara eftir að ná því „örlítið“ réttara. Þú hefur einnig gaman af því að mynda fugla. Áttu þér uppáhalds fugl? Já, ég hef gaman að því að mynda fugla og einnig að fylgjast með þeim, þó svo að ég hafi ekki sökkt mér í það að mynda þá. Það sagði mér maður sem er í fugla- ljósmyndun; „Þegar að þú ferð af fullum krafti í fuglana, þá getur þú kysst allt annað bless.“ Þannig að ég hef ekki farið að krafti í það frekar en golfið. Uppáhaldsfuglinn minn er tvímæla- laust himbriminn. Ég hef bæði þurft að slást við að ná góðum myndum af honum og einnig lent í slagsmálum við að greiða hann úr silunganetum. Kröftugur fugl sem að ég ber ómælda virðingu fyrir. Ferðu í sérstakar ljósmyndaferðir eða ertu bara með myndavélina til taks ef þú sérð eitthvað áhugavert? Ég fer í ljósmyndaferðir af og til þegar færi gefast og hins vegar þá er ég nán- ast alltaf með vélarnar með mér þegar ég er á ferðinni utan vinnutíma. Ég hafði marg oft lent í því að kíkja út um gluggann og ákveða, nei það er ekkert sérstakt veður, eða skyggni og ekkert að sjá og þar fram eftir götunum... Svo sá maður eitthvað, en engin vél með í för. Þannig að núna hef ég tamið mér að grípa vélarnar alltaf með. Ertu að fara um landið til að mynda eða er „nafli alheimsins“ og hans nánasta umhverfi þitt svæði? Nafli alheimsins er náttúrulega mitt svæði. En, jú ég rata alveg út fyrir grindahliðið og geri mér reglulega ferðir víðar um land. Hefur þú haldið sýningu eða stendur til að gera slíkt? Nei, ég hef ekki haldið sýningu en það hefur verið orðað við mig nokkrum sinnum að gera slíkt. Þá kikkar félags- fælnin inn. Nei, það hefur bara aldrei orðið af því, einhverra hluta vegna. Ágúst GK í brimi Áhugi minn á bátum og bátamyndum hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum. Það að hafa alist upp í kringum sjóinn og séð bátana koma að í alls kyns veðrum getur ekki gert annað en að byggja upp hjá manni ákveðna virðingu fyrir hafinu og þeim mönnum sem það sækja. Þessi mynd finnst mér sýna svo vel hvaða krafta menn eru að slást við þegar sótt er yfir vetrartímann og veður eru válynd. Tek hatt minn ofan fyrir sjómönnum þessa lands. Það eru myndir eins og þessi sem að gera þetta brölt þess virði að halda áfram og gera betur. Reyna að ná betri mynd næst... Jón Steinar Sæmundsson er fæddur á Ísafirði 30. júní en fluttist til Grindavíkur, sem hann kallar Nafla alheimsins, á fyrsta ári. Jón Steinar lauk grunnskólagöngu í Grindavík og fór í framhaldinu í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja og nam þar húsasmíði að mestu leiti, án þess þó að ljúka náminu. Hann starfar í dag sem tæknistjóri hjá Vísi h/f í Grindavík og sér um viðhald á vélum og búnaði í saltfiskvinnslu fyrirtækisins í Grindavík. Þegar Jón Steinar er ekki í vinnunni þá er hann út um allar koppa grundir með myndavélina. Norðurljósin Norðurljósin eru magnað fyrirbæri og heilla ábyggi- lega meirihluta ljósmyndara og er undirritaður þar engin undantekning. Þessi mynd er kannski mín besta en skorar samt hátt þar sem að þetta líka magnaða stjörnuhrap rataði inn á hana. Það eru svona augnablik sem gera það fullkomlega þess virði að standa klukkutímum saman úti í kaldri nóttinni, og maður fer sáttur á koddann. ●● Jón●Steinar●Sæmundsson●er●nánast●alltaf●með●myndavél●við●höndina Á auðvelt með að hrífast af landslagsmyndum Áhugaljósmyndarinn Jón Steinar Sæmundsson.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.