Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 56

Víkurfréttir - 22.12.2016, Síða 56
56 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Börn af pólskum uppruna á jólatrésskemmtun ■ Jólatrésskemmtun Krakka Akademíunnar var haldin í húsnæði Keilis á Ásbrú laugardaginn 17. desember síðastliðinn. Jólasveinninn mætti og gladdi börnin með ýmsum gjöfum. Í Krakka Akademíunni læra börn af pólskum uppruna pólsku á sama hátt og jafnaldrar þeirra í Póllandi. Með- fylgjandi myndir voru teknar á skemmtuninni. OPNUNARTÍMAR UM JÓL OG ÁRAMÓT Starfstöðvar Kölku í Helguvík, Grindavík og Vogum verða lokaðar á aðfangadag, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag. Að öðru leyti verða starfstöðvar fyrirtækisins opnar eins og venjulega. Sjá nánar á heimasíðu fyrirtækisins: www.kalka.is Við óskum Suðurnesjamönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða! Það er jólaös í Pólsku búðinni Mini Market í miðbæ Reykjanesbæjar eins og víðast hvar í verslunum þessa dag- ana. Þar versla Pólverjar í jólamatinn sem er nokkuð frábrugðinn þeim hefðbundna íslenska. Á veisluborð- inu á aðfangadag í Póllandi tíðkast að bjóða upp á tólf rétti og á það að tákna velsæld alla mánuðina á nýja árinu. Ekki er kjöt í neinum réttanna. Að sögn Agnesar Agnieszku hjá Pólsku búðinni er aðalrétturinn yfirleitt fisk- réttur sem kallaður er „carb.“ Meðal annarra rétta á aðfangadagskvöld eru síld, rauðrófusúpa eða sveppasúpa með ravioli, hálfmánar með káli og sveppum og birkikaka. Undir dúk- inn á veisluborðinu er sett hey til að minnast þess að Jesús hafi verið lagður í jötu eftir fæðingu. „Ofan á dúkinn á miðju borði setjum við alltaf brauð eða oblátu og deilum henni áður en við óskum hvert öðru gleðilegra jóla og gleðilegs árs og byrjum að borða,“ segir Agnes. Við pólskt jólaveisluborð er alltaf eitt autt sæti, svona til öryggis ef óvæntur gestur skyldi kíkja við. Einnig tíðkast að fólk bjóði til sín þeim sem ekki eiga fjölskyldu til að verja aðfanga- dagskvöldi með. Eftir jólamáltíðina eru jólalög sungin saman og sæl- gætismolar eru hengdir á jólatréð og börnin fá leyfi til að næla sér í nokkra. ●● Í●Póllandi●tíðkast●að●bjóða●upp●á●tólf●rétti●á●aðfangadagskvöld●og●eiga●þeir●að● tákna●gæfu●alla●tólf●mánuðina●á●nýja●árinu. Borða fisk á aðfangadagskvöld „Undir dúkinn á veisluborðinu er sett hey til að minnast þess að Jesús hafi verið lagður í jötu eftir fæðingu“ Beata Mioduszewska og Martyna Praznowska, starfsmenn Pólsku búðarinnar í Reykjanesbæ. VF-mynd/dagnyhulda HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTUR YFIR JÓL OG ÁRAMÓT Í KEFLAVÍKURKIRKJU AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER Jólin allsstaðar, hátíðar barna- og fjölskyldustund kl. 16:00. Aftansöngur kl. 18:00. Nóttin var sú ágæt ein kl. 23:30. Miðnæturstund í kirkjunni. Karlakvartettinn Kóngarnir syngur. JÓLADAGUR 25. DESEMBER Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Helgistundir á Hrafnistu á jóladag Nesvellir – hjúkrunarheimili kl. 15:00. Hlévangur – hjúkrunarheimili kl. 15:30. GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00. NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur við allar stundirnar undir stjórn Arnór Vilbergsonar organista. Sr. Erla og sr. Eva Björk þjóna ásamt messuþjónum.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.