Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 64

Víkurfréttir - 22.12.2016, Qupperneq 64
64 fimmtudagur 22. desember 2016VÍKURFRÉTTIR Hildur Björk Pálsdóttir hildur@vf.is Þrettán ára gömul ákvað Súsanna Edith Guðlaugsdóttir að einn daginn færi hún til Afríku að hjálpa börnum. Í fyrra lét hún verða af því og fór til Höfðaborgar í Suður-Afríku í eins konar samfélagsþjónustu þar sem hún vann með börnum sem bjuggu við erfiðar aðstæður og mikla fátækt. Hún fór einnig til Jóhannesarborgar og vann í dýraathvarfi fyrir munaðar- laus og slösuð dýr, en hún segir þá reynslu hafa gert sér enn betri grein fyrir mikilvægi dýraverndar. „Ég man eftir að hafa horft á þátt um styrktarforeldra Unicef og verið mjög hissa á að foreldrar mínir væru ekki styrktarforeldrar. Ég tók málið í mínar hendur og hringdi inn fyrir hönd foreldra minna.“ Hún ákvað þá að hún skyldi einhvern tímann fara til Afríku og láta gott af sér leiða. Undir lok framhaldsskólagöngunnar, þegar flestir voru að safna fyrir útskriftar- ferð safnaði Súsanna fyrir ferðinni til Afríku, en hana hafði hún skipulagt í samstarfi við ferðaskrifstofuna Kilroy. Súsanna valdi verkefnið „Heart for juniors Noordhoek“ sem er á vegum You 2 Africa samtakanna og er stað- sett í Noordhoek, í um 40 mínútna fjarlægð frá Höfðaborg. „Verkefni okkar var að aðstoða börn á aldrinum 1 til 15 ára með að læra ensku, lesa og leika sér ásamt því að sýna þeim ást og umhyggju. Við byrjuðum alla morgna í bænum Ocean View, þar sem okkur var skipt niður á mismunandi verk- efni. Það virkaði þannig að þeir sem voru lengst fengu yfirleitt erfiðustu verkefnin því það var mikilvægt að kynnast krökkunum og aðstæðunum vel. Verkefnin voru mjög misjöfn en mitt var að mæta á leikvöll á hverjum morgni sem er í miðju hverfinu og rölta í kringum hann til að finna þau börn sem komust ekki í skólann og voru þau á aldrinum 7 til 15 ára. Við lögðum mikið upp úr því að hafa alltaf gaman, fara í leiki, á bókasafnið að lesa eða kæla börnin niður með vatns- slöngum þegar það var alltof heitt úti. Mikið var haft upp úr því að halda börnunum uppteknum til að koma í veg fyrir að þau færu í slæman félags- skap.“ Foreldrarnir þakklátir Sjálfboðaliðunum var bent á að koma ekki með verðmæti með sér þar sem foreldrar og eldri systkini margra barnanna hafa þjálfað þau til að stela öllu sem þau koma höndum yfir. „En með tímanum kynntumst við börnunum, lærðum nöfnin þeirra og fórum í heimsókn heim til þeirra þar sem við sáum aðstæðurnar sem þau bjuggu við. Það var gaman að sjá hve þakklátir foreldrar þeirra voru,“ segir Súsanna. Seinni part dags fóru sjálfboðaliðarnir í bæinn Masiphum- elele og var verkefni Súsönnu þar að fara í svokölluð „wetlands,“ eða hverfi með moldarkofum, engu rafmagni né rennandi vatni og vera til staðar fyrir börnin sem búa þar. „Við vorum með tvo kofa. Í öðrum þeirra voru ungabörn og í hinum voru munaðarlaus börn á aldrinum 1 til 5 ára. Þegar ég kom þangað fyrst fékk ég létt hjartaáfall. Börnin höfðu eina fóstru en hún svaf allan daginn og þegar börnin reyndu að ná athygli hennar þá lamdi hún þau. Hún talaði ekki ensku svo við gátum ekki talað við hana né börnin. Ég og önnur stelpa í hjálparstarfinu töluðum við samtökin og útskýrðum að okkur þætti erfitt að horfa upp á þetta. Börnin fengu nýja fóstru sem talaði örlitla ensku og var tilbúin að vinna með okkur. Hvert verkefni hafði svokallaða ömmu sem allir kalla „mama,“ líka sjálfboðalið- arnir. Mama, ásamt fóstrunni sáu um að skipta á börnunum og hlúa að þeim ef þau slösuðu sig, en um 40 prósent íbúa bæjarins eru smituð af HIV. Í Ma- siphumelele, eða Masi eins og hann er kallaður, er einungis talað tungumálið Xhosa, svo við lögðum mikið upp úr því að kenna krökkunum að syngja lög á ensku, telja upp á tíu og læra um litina og dýrin. Áður en við komum héngu börnin inni í kofanum allan daginn og sum þeirra fengu ekkert að borða. Í framhaldi af því ákváðum við að byrja alla daga á því að syngja höfuð, herðar, hné og tær ásamt alls konar litaleikjum. Við fórum með börnin á leikvelli á hverjum degi til að leyfa þeim að fá útrás svo allir væru vel þreyttir fyrir lúr dagsins. Um leið og við sáum að sum barnanna fengu ekki að borða ákváðum við að byrja að smyrja nesti fyrir alla. Eitt af því sem við áttum mest erfitt með að meðtaka var að það voru engin klósett, enginn klósettpappír og flest barnanna voru aðeins með eina tau- bleyju allan daginn. Við reyndum að venjast þessu en enduðum á því að koma með klósettpappír með okkur á hverjum degi. Þar sem ég og sjálfboða- liðinn með mér í verkefninu vorum þarna í einn og hálfan mánuð langaði okkur að gera eitthvað meira. Við til dæmis máluðum kofann að innan, keyptum borð og stóla ásamt því að útbúa blöð með litum, dýrum, tölum og líkamanum sem hengd voru upp á vegg. Þetta hjálpaði okkur mikið við að kenna krökkunum líkamsparta og liti. Við ákváðum einnig að kaupa kló- sett og borga fyrir að leggja lagnir sem kostaði okkur litlar 15 þúsund krónur íslenskar.“ Skotárás á leikvelli Súsanna dvaldi með hinum sjálfboða- liðunum í bænum Kommetjie í húsi sem hún segir líta að vissu leyti út eins og húsin á Íslandi nema þau eru opin, og bjóða því dýrum eins og slöngum, ●● Súsanna●Edith●Guðlaugsdóttir●vann●með●börnum●sem●búa●við●mikla●fátækt● ●● Starfaði●líka●í●dýraathvarfi●fyrir●munaðarlaus●og●slösuð●dýr Sjálfboðastarf Súsönnu í Suður-Afríku Súsanna að kyssa fílinn Three. „Fílinn var klárlega uppá- halds dýrið mitt í Glen Afric og finnst mér þeir vera ein mögnuðustu dýr sem til eru.“ Súsanna með Ashalele, eins árs, sofandi í fanginu í Masi. „Ég náði vel til As- halele en hún og tvíbura- systir hennar eru báðar mjög veikar af nýrnasjúk- dóm.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.