Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Qupperneq 13
umræða 13Helgarblað 24. nóvember 2017
má sem sé sjá hliðstæður á milli
orða og örlaga húsfreyjunnar á
bænum sem er sóttur með eldi,
og sömuleiðis sona húsráðand-
ans. John Meegaard bendir einnig
á hliðstæðu sem varðar tengda-
dóttur húsráðenda: bæði Ingi-
björg Sturludóttir á Flugumýri og
Þórhalla Ásgrímsdóttir á Berg-
þórshvoli eru komnar í námunda
við dyragætt eftir að eldur hefur
læst sig í húsin, og þá er kallað til
þeirra að utan og þeim boðin út-
ganga. Báðar hika, vilja helst ekki
skiljast við eiginmenn sína. Ingi-
björg Sturludóttir Þórðarson-
ar höfundar frásagnarinnar um
Flugumýrarbrennu var þá nýgift
Halli Gissurarsyni, en Þórhalla var
kona Helga Njálssonar“ (Haust-
hefti Skírnis 2012)
Stórmerkileg rannsókn
í nýjum Skírni
Þennan bút læt ég nægja því að ef
ég færi að telja upp allar hliðstæð-
urnar á milli beggja bóka, jafnt í
efnisatriðum sem orðalagi, þá væri
ég fljótur að fylla það rými sem ég
hef til að birta þessi skrif. Og sam-
svaranirnar eru reyndar hafnar yfir
vafa og ekki um þær deilt. Ég hef
beðið eftir að fá viðbrögð við mín-
um skrifum og athugunum, og þá
helst eftir að heyra aðrar skýringa
sem menn aðhyllast á því hversu
hliðstæðar þessar fornu bækur eru
– báðar skrifaðar um svipað leyti.
Hvaða skýringar aðrar séu yfirleitt
tiltækar önnur en sú eina sem mér
finnst blasa við, það er að segja að
hér sé um sama höfund að ræða?
Því er ég nú að rifja þetta upp að
eins og margir hafa heyrt þá birtu-
st í nýútgefnu hefti hins fornfræga
bókmenntatímarits Skírnis niður-
stöður nokkurra fræðimanna sem
gerðu nýstárlega og stærðfræði-
lega rannsókn á stíl ýmissa ís-
lenskra miðaldabóka, bæði þeirra
sem við þykjumst vita hverjir skrif-
uðu og svo annarra, með það fyrir
augum að fá vísbendingar um
hverjir gætu hafa samið þær sem
við teljum ófeðraðar. En niður-
stöður þeirra Jóns Karls Helga-
sonar íslenskufræðings og stærð-
fræðinganna Sigurðar Ingibergs
Björnssonar og Steingríms Páls
Kárasonar voru kannski þær
helstar að margt benti til að Snorri
Sturluson hafi samið Egils sögu,
eins og margir hafa getið sér til
um, en að sömu vísbendingar
væri ekki að finna um að Sturla
Þórðarson hafi samið Njálssögu,
með stíllegri samanburðarrann-
sókn á þeirri bók og svo fræg-
asta verki Sturlu, Íslendingasögu,
sem er mikilvægasti partur Sturl-
ungusafnsins.
En aðalatriðin standa óhögguð
Þar sem, eins og hér hefur komið
fram, mörgum er kunnugt um að
ég hef á síðari árum verið einna
helstur talsmaður þess að ekki sé
unnt að líta framhjá þeim líkind-
um sem eru á milli þessara tveggja
frægu snilldarverka, Íslendinga-
sögu og Njálu, hafa menn getið
sér þess til að umrædd niðurstaða
hljóti að vera mér mikil vonbrigði
og að nú verði ég að endurskoða
mín sjónarmið. En ég ætla að
segja það strax að þótt mér finn-
ist umrædd rannsókn stórmerki-
leg og tímabær, þá tel ég engu
að síður að sem svar við spurn-
ingunni um Njálu og Sturlu tel ég
hana litlu breyta. Ég held að þótt
líkindi í stíl á milli tveggja verka sé
vissulega vísbending um að sami
höfundur geti verið á ferðinni, þá
þarf frábrugðin tækni ekki endi-
lega að benda til hins gagnstæða.
Einfaldlega vegna þess að list-
rænir höfundar geta brugðið fyrir
sig ólíkum stílbrigðum. Og það á
við um Sturlu Þórðarson; það eru
til dæmis mjög ólík-
ar bækur Íslendinga-
sagan hans og svo
ævisagan sem hann
skrifaði um Hákon
Noregskonung Há-
konarson. Sumir höf-
undar breyta um stíl
í einni og sömu bók-
inni; mig minnir að
James Joyce geri það
að minnsta kosti sex
sinnum í Ódysseifi, og
mér fljúga í hug ýmsir
nútímahöfundar; ég
held til dæmis að það
væri tæplega hægt
með stílrannsókn
að komast að þeirri
niðurstöðu að bækur Sjóns, Stál-
nótt og Rökkurbýsnir, væru eftir
sama höfundinn.
Engin bókaprentun eða dreifing
Einu skýringarnar sem hafa heyrst
á þessum sláandi líkindum, aðr-
ar en þær sem ég aðhyllist,
eru þær að höfundur Njálu
hafi verið búinn að lesa Ís-
lendingabók Sturlu, og af ein-
hverjum ástæðum ákveðið
að laga sína bók að henni;
eiginlega tekið hana eins og
litaspjald með númerum og
ákveðið að mála í reitina með
öðrum litum. En við verð-
um að hafa í huga að á þess-
um tímum var engin bóka-
útgáfa eða bókaprentun og
dreifing. Bækur flugu ekkert
um land allt. Hin viðamiklu
skrif Sturlu um Sturlungaöldina
hafa verið afar þykkur bunki skrif-
aðra skinnblaða heima hjá honum
á Staðar hóli vestur eða úti í Fagur-
ey á Breiðafirði, þangað sem hann
síðar flutti. Þetta hefur ekkert ver-
ið tvist og bast um landið, og engar
heimildir eru um að þetta hafi ver-
ið afritað um hans ævidaga, en
hann lést 1284. Trúlegt er að fyrsta
afritunin hafi verið sú sem einn
af hans samstarfsmönnum gerði
snemma á fjórtándu öld, er hann
steypti saman úr ólíkum bókum
Sturlungusafninu eins og við síð-
an þekkjum það.
Fyrir nú utan það sem blasir
við að Sturla er eini höfundurinn á
hans tímum sem hafði þá reynslu,
þá miklu æfingu, og þá snilli til að
bera sem þarf svo hægt sé að skrifa
jafn viðamikið, úthugsað og marg-
slungið listaverk og sem Brennu-
Njáls sögu. n
Brennu-Njáls saga
í Möðruvallabók
jólinÞað eru ekki alltaf
Ávaxtaðu betur
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.