Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 14
14 umræða
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
aðalnúmer: 512 7000
auglýsingar: 512 7050
ritstjórn: 512 7010
fréttaskot
512 70 70
Heimilisfang
Kringlan 4-12, 4. hæð
103 Reykjavík
Sandkorn
Helgarblað 24. nóvember 2017
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl
Garðarsson Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurvin Ólafsson Ritstjóri dv.is: Kristjón Kormákur
Guðjónsson Aðstoðarritstjóri dv.is: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Umbreyting bókabúðanna
Á
liðnum árum hefur orðið
sú vonda þróun að bóka-
búðir landsins eru farnar
að minna æ meir á minja-
gripabúðir en bókabúðir. Alls
kyns dót er þar orðið jafn áber-
andi og bækurnar. Stundum
hvarflar að manni að bókabúðar-
eigendur hafi hreinlega gefist upp
við að halda bókum að viðskipta-
vinum og því kosið að fylla búð-
irnar af auðseljanlegri smávöru
og minjagripum. Þetta er ansi
dapurleg þróun.
Gleðileg umbreyting verður
í nóvember og desember þegar
búðarborðin svigna undan jóla-
bókum. Þá er ekki hægt að kvarta
undan því að viðskiptavinir láti
ekki sjá sig. Þeir mæta áhugasam-
ir og fletta bókunum, spá og spek-
úlera. Manna á milli er rætt um
bækur, oftar en ekki glæpa- og
spennusögurnar sem svo þægi-
legt er að gleyma sér yfir á þess-
um tíma. „Hvernig er Arnaldur?“,
„Hvernig er nýja bókin hennar
Yrsu?“ er spurt. Svo kemur hinn
frábærlega ritfæri Jón Kalman
og stillir sér upp við hlið þeirra á
metsölulistum. Hinir fjölmörgu
unnendur bóka hans er alveg jafn
sannfærðir um ágæti síns manns
og aðdáendur glæpasagnahöf-
undanna eru um snilli sinna höf-
unda. Gunnar Helgason, Ævar
Þór Benediktsson og fleiri barna-
bókahöfundar slá svo rækilega
í gegn hjá yngri kynslóðunum.
Starf þeirra höfunda sem skrifa
fyrir börn er gríðarlega mikil-
vægt, eins og þeir átta sig örugg-
lega sjálfir á. Launaumslagið er
kannski ekki þykkt og mikið en
þakklæti ungra lesenda er ósvikið.
Blessunarlega er enn siður á
Íslandi að gefa bækur í jólagjöf.
Bók er þakklát gjöf á þessum
árstíma. Þá er ekkert sem bend-
ir til minnkandi bóklesturs og lítil
ástæða virðist til að hafa áhyggj-
ur af hnignun íslenskunnar. Þessi
tími stendur reyndar alltof stutt.
Nokkrum vikum eftir jól eru bóka-
búðirnar aftur farnar að minna á
minjagripaverslanir.
Er ekki hægt að snúa þessari
þróun við? Það ætti að vera hægt
að auka bókaúrval í bókabúð-
um svo þær standi undir nafni.
Þar eiga búðarborðin að svigna
undan bókum allan ársins hring,
ekki bara um jól. Bókabúð á að
vera samkomustaður þar sem
bókaunnendur geta mætt, rabbað
við starfsfólk um bækur og unað
sér þar lengi. Bókaunnendur eiga
ekki að þurfa að skima eftir bók-
um innan um alls kyns dót heldur
ganga fagnandi inn í verslun þar
sem bækur blasa við hvert sem
litið er.
Heyra má þær spár að tími
eigin legra bókabúða muni líða
undir lok innan einhverra ára-
tuga. Eigum við ekki að líta svo
á að þar sé enn ein dómsdags-
spáin sem ekki muni rætast?
Alltaf á að vera pláss fyrir bækur.
Helst ætti bókabúð að vera allan
ársins hring jafn skemmtilegur
og forvitnilegur staður og hún er í
nóvember og desember. n
Geirssaga
Niðurstaða Mannréttinda-
dómstóls Evrópu í máli Geirs
Haarde hefur farið misjafnlega
í menn. Stuðningsmenn Geirs
hafa haldið því á lofti að málið
hafi ekki snúist um niðurstöðu
Landsdóms, heldur miklu
frekar þá meintu pólitísku að-
för sem átti sér stað á Alþingi,
þar sem ráðherrar Samfylk-
ingar sluppu á meðan Geir var
krossfestur. Andstæðingar hans
telja niðurstöðuna sönnun
þess að þeir hafi allan tímann
haft rétt fyrir sér. Eitt eru þó
nánast allir sammála um – það
er að Landsdómur sé barn síns
tíma og fara þurfi aðrar leiðir ef
gera eigi ráðamenn ábyrga fyrir
gjörðum sínum. Svo er auðvit-
að bara spurning hvort ekki sé
rétt að láta kjósendum eftir það
mat í kjörklefanum.
Davíðssaga
Margir hafa spáð því að Davíð
Oddsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins, muni setjast í helgan
stein eftir viðburðaríkan feril
og þá í janúar þegar hann verð-
ur sjötugur. Samkvæmt heim-
ildum DV er það heldur ólík-
legt. Þannig mun Davíð kunna
ágætlega við sig á Morgun-
blaðinu þar sem hann mundar
beittan pennann þannig að eft-
ir er tekið. Reyndar er það svo
að Reykjavíkurbréf hans þykja
ómissandi lesning, hvort sem
menn eru samherjar í pólitík
eða ekki. Svo er líka annað sem
spilar inn í. Á næsta ári verða
10 ár liðin frá hruni. Davíð mun
umhugað um að þeirra tíma-
móta verði minnst á viðeigandi
hátt og að sagan verði skrif-
uð samkvæmt hans höfði, ekki
pólitískra andstæðinga.
Vond tilfinning að hafa
verið lélegt foreldri
Eitt atvik? Nei. Má ekki
neitt? Jú, með samþykki
Ég lifi í lausnum
Kári Stefánsson – Fréttablaðið Jóhanna María Sigmundsdóttir – eyjan.is Áslaug Ýr Hjartardóttir – DV
Myndin Öræfajökull Jarðhitavatn seytlar undan Öræfajökli þessa dagana og sigketill hefur tekið að myndast ofan á ísfylltri öskju þessa næststærsta eldfjalls Evrópu. Haft er eftir vísindamönnum að gera þurfi nákvæmari mælingar til þess að skilja hvort fjallið sé að búa sig undir eldgos. MynD SiGtryGGur Ari
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Heyra má
þær spár
að tími eiginlegra
bókabúða muni
líða undir lok
innan einhverra
áratuga