Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 65

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Page 65
24. nóvember 2017 Ábyrgðarmaður: Sigurvin Ólafsson / sigurvin@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is Skreytum heimilið KYNNINGARBLAÐ Skreytingarefni fyrir öll tækifæri hjá Skreytum.is TILvALIÐ fYRIR þÁ Sem vILjA úTBúA fALLeGAR SKReYTINGAR Mér fannst vanta vefverslun á þessum vettvangi, ekki síst fyrir þá sem búa úti á landi, fólk sem á erfitt með að kom- ast í verslanir á höfuðborgar- svæðinu sem margar hverjar eru ekki með vefverslun. þetta er hugsað fyrir fólk sem er að undirbúa brúðkaups-, fermingar-, skírnar- eða afmælisveislur, eða langar einfaldlega til að skreyta heimilið sitt,“ segir elín Heiða þorsteinsdóttir, eigandi vef- verslunarinnar Skreytum.is. Á Skreytum.is er mikið úrval af alls konar skreytingarvörum í margvíslegum litum, efni sem hentar vel fyrir þá sem vilja skreyta sjálfir og láta sköp- unargleðina njóta sín. „Ég byrjaði á þessum fyrir rúmum tveimur árum þegar ég var í fæðingarorlofi og síðan hefur þetta vaxið hægt og rólega. vörurnar koma flestar frá Bandaríkjunum og Kína. þegar ég tek inn nýjar vörur, panta ég lítið í einu og sé hvernig mér líkar þær og hvernig gengur að selja þær. ef mér og kúnnunum mínum líst vel á, þá panta ég meira. Ég miða við það sem mér finnst fallegt og ég gæti hugsað mér að nota, ásamt því sem ég held að öðrum þyki fallegt – oft fer þetta vel saman,“ segir elín. Sem fyrr segir eru vörurn- ar ætlaðar þeim sem vilja skreyta sjálfir og möguleik- arnir eru ótæmandi. en ef fólk vantar hugmyndir veitir elín ráðgjöf með glöðu geði. Núna eru margir farnir að huga að skreytingum fyrir jólin. þó að ekki sé eiginlegt jólaskraut til sölu hjá Skreyt- um.is er hægt að útbúa fallegar jólaskreytingar úr því sem þar fæst, því það er þess eðlis að það er hægt að nota það við hvaða tilefni sem er. Til dæmis eru til sölu afar smekklegar litlar ljósa- seríur sem geta hvort sem er orðið rómantískar eða jólalegar, allt eftir litavali og samsetningu. marglitar gelkúlur, glimmerlímborðar og stjörnur og hjörtu eru líka dæmi um hluti sem fara vel í jólaskreytingar eða aðrar skreytingar – allt eftir því hvað hentar og hvernig þetta er sett saman. Fyrir áhugasama er ekki eftir neinu að bíða – farið inn á skreytum.is, skoðið úrval, verð og aðrar upplýsingar, og kaupið skreytingarvörurn- ar sem ykkur hentar. Heimsending um land allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.